Heilsuvernd - 01.06.1956, Qupperneq 33
HEILSUVERND
Jónas Kristjánsson:
Oínæmi (allergi).
Sjúkdómur með þessu heiti er einn hinna nýju kvilla, sem
gert hafa vart við sig á síðari árum. Það er tiltölulega nýr
fugl í eyju, eins og menn segja — nýr í varplandi hinnar
gömlu læknisfræði, stingur sér víða niður, og vex við-
kvæmnin fyrir honum svo hratt, að læknum þykir nóg um.
Fugl þessi er marghöfðaður. Ein grein hans er heykvef
eða frjómæði, og lýsir sér í því, að einstaka menn þola ekki
gróðurilm, þegar blóm taka að vaxa og frævast, og fá þeir
þá astmakennd andþrengsli og hæsi. Þessum sjúklingum
hefur þá stundum verið ráðlagt að forða sér út á afskekkt-
ar og gróðurlausar eyjar og dvelja þar, unz mesta gróður-
timabil vorsins væri liðið hjá. Eða þá að reynt er að ráða
bót á, eða öllu heldur að halda ofnæmisverkununum í skef j-
um með eiturlyfjum. Stundum er ofnæmið bundið við allt
aðra hluti, jafnvel kattarhár til dæmis — og ráðið er þá
að láta köttinn víkja af heimilinu þar sem hinn viðkvæmi
maður dvelur!
Þess eru hinsvegar dæmi, að blóm, köttur og sjúklingur
hafa mátt vera kyrr á sínum stað og ógæfufuglinn hefur
horfið jafnhljóðlega eins og hann kom. Þannig var um einn
þennan andþrengslasjúkling, að hann fékk jafnframt melt-
ingarkvilla, sem gerði það að verkum, að hann varð að
liggja á sjúkrahúsi og fylgja því læknisráði að neyta jurta-
fæðu eingöngu og umfram allt lifandi fæðu. Vorið kom nú
og grundin greri. Og svo illa sem sjúklingurinn hafði áður
verið haldinn af andþrengslum sínum, þá brá nú svo við,
að ofnæmisköstin létu standa á sér, og honum varð ljóst,
að þau höfðu stafað af því einu, að ónáttúrleg fæða hafði
raskað eðlilegu jafnvægi í líkama hans og dregið úr við-
námsþrótti.
Ofnæmi og ónæmi eru tvær andstæður. Ónæmi er af-
kvæmi fullkominnar heilbrigði. Ofnæmi er hinsvegar af-