Heilsuvernd - 01.11.1958, Síða 8

Heilsuvernd - 01.11.1958, Síða 8
70 HEILSUVERND að leita gullsins, meðal annarra þá félaga. Lögðu þeir upp með mal og nesti og gengu síðan í þrjá daga um skóga svo þétta, að sjaldan sá til sólar. Þreyttir og fótsárir komu þeir úr þeirri leit aðeins reynslunni ríkari. En heim stefndi hugurinn, heim í nóttlausa voraldar veröld, þar sem ný verkefni biðu. Nokkru eftir heimkom- una kynntist hann eftirlifandi konu sinni Sólveigu Lúð- vígsdóttur. Þeim varð tveggja barna auðið. Erla, dóttir þeirra, býr nú í Reykjavík gift núverandi arkitekt heilsu- hælisins í Hveragerði, en son sinn misstu þau ungan af slysförum. Sigurjón stofnaði Bifreiðastöð Islands og rak um ára- bil þar til hann seldi hana Ferðaskrifstofu ríkisins, þar sem hann starfaði áður en hann tók við framkvæmda- stjórn N.L.F-I. Nutu þá margir leiðsagnar hans sem farar- stjóra í hópferðum um landið. Ýms aukastörf hafði Sigur- jón með höndum t. d. í þágu æskulýðssamtaka og Guð- spekifélagsins. Auk alls þessa sinnti hann fjölbreyttum áhugamálum, ferðamennsku, iþróttum og andlegum hugð- arefnum. Engan mann hefi ég þekkt, sem hefur haft jafn- mikla unun af íslenzkri náttúru og hann. Hann stundaði skauta og skíði af miklu kappi, þegar tími og atvik leyfðu, og hugurinn leitaði víða. Hann hafði náin kynni af trúar- brögðum spíritisma og Guðspeki, batt sig engum trúflokk- um og lét aðra hafa trú sína í friði. Ekkert væri þó fjær sanni en tala um trúleysi. Hvar sem hann fór, reyndi hann að vera trúr hinu bezta í sjálfum sér. Menn kalla það ýms- um nöfnum, — því ekki nefna það Guð? Það var mikið lán að litla dýrið brást ekki vini sínum í hríðinni forðum. Á umbrotatímum í ævi Náttúrulækn- ingafélags Islands var komið til drengsins, og drengskapur hans brást ekki. Loksins sá fram úr svörtu éli, maðurinn fundinn, sem safnaði örlagaþráðum fámenns félagsskapar í hönd sér og vann stórvirki vegna trúar sinnar á málefnið- Vakinn og sofinn vann hann að framgangi félagsins, og nú sáust merkin. Traustir menn tóku höndum saman,

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.