Heilsuvernd - 01.11.1958, Blaðsíða 28
HEILSUVERND
Samvaxnir tvíburar
Ýmiskonar vanskapnaður er æði algengur, bæði á
mönnum og dýrum, og á mismunandi háu stigi. Það er
kunnugt og viðurkennt af læknavísindunum, að vanskapn-
aður getur stafað af rangri næringu og efnaskorti móður-
innar um meðgöngutímann. Hefir áður verið að því vikið
hér í ritinu. Fyrir nokkru var í erlendum fréttum sagt
frá barni, sem fæddist með tvö höfuð og fjóra handleggi.
Mun þetta vera einskonar afbrigði af samvöxnum tvíbur-
um, en um þá hefir fréttamönnum einnig orðði tíðrætt
fyrir skemmstu. Fer hér á eftir útdráttur úr grein, sem
birtist í franska tímaritinu „Vie et santé“ (Líf og heil-
brigði) í nóvember 1953.
Árið 1811 fæddust í Síam samvaxnir tvíburar, sem voru
skírðir Chang og Eng Bunker (síðan eru samvaxnir tví-
burar oft kallaðir síams-tvíburar). Foreldrar þeirra voru
kínverskir. Þeir voru vaxnir saman á brjóstbeininu. Þeir
döfnuðu og uxu eins og önnur börn og náðu fullorðinsaldri.
Chang varð 155 cm á hæð og Eng 2 cm hærri. Á æsku-
árum stunduðu þeir andarækt og undu sér vel. En árið
1829 sá amerískur skipstjóri þá, fékk þá með sér til Boston
og hélt síðan sýningar á þeim við geysiaðsókn víðsvegar
um Bandaríkin og í Englandi. Síðan héldu þeir aftur til
Ameríku, sýndu sig í fjölleikahúsum og græddu stórfé.
Að nokkrum tíma liðnum drógu þeir sig í hlé, settust
að í Norður-Karólínu og tóku að stunda tóbaksrækt. Þar
urðu þeir ástfangnir af sinni systurinni hvor, og þær hétu
þeim eiginorði og giftust þeim árið 1843. Tvíþurarnir voru
miklir mátar og báðir vel menntaðir. En því miður fór
samkomulag eiginkvennanna fljótt út um þúfur. Tóku þeir
þá það til bragðs, að þeir byggðu tvö hús, 5 km hvort frá