Heilsuvernd - 01.11.1958, Blaðsíða 20

Heilsuvernd - 01.11.1958, Blaðsíða 20
82 HEILSUVERND 21/2 lítra af vatni og soðnar hægt í eina klukkustund. Við þetta fara raunar C-fjörefnin að nokkru forgörðum, en steinefnin verða eftir í soðinu, og það eru þau, sem hér er verið að sækjast eftir. Þau eru lútargæf og hafa það hlut- verk að ganga í samband við súr sölt, sem safnazt hafa fyrir í líkamsvefjunum í stórum stíl, einkum í liðamótum. Þegar lútarefnin bindast hinum súru úrgangsefnum, verða þau uppleysanleg, svo að þau geta borizt út úr líkamanum. Þá drekka sjúklingarnir gulrótasafa — hann verður að vera alveg nýr — og hafrasoð, sem er búið til úr einum bolla af skornum höfrum soðnum í einum lítra af vatni í 6—7 mínútur, síðan hrært vel í með þeytara, síað og blandað jafnmiklu af gulrótasafa. Þetta verða 5 til 6 decí- lítrar, og er þess neytt þrisvar á dag, í morgunverð, há- degisverð og kvöldverð. Þannig fær sjúklingurinn um 3 lítra af vökva á dag, 1 y2 lítra af kartöflusoði og annað eins af blöndu af gulrótasafa og hafrasoði. Með því að sjúklingar eru mjög mishraustir og þola auk þess ekki allir svona mikla vökvun í byrjun, er nauðsynlegt, að þeir séu undir eftirliti iæknis, meðan þessi drykkjar- meðferð varir. En þeir mega alls ekki nota nein meðul, hvorki deyfilyf né önnur lyf. Og þeir mega heldur ekki borða neina fasta fæðu. Þá eru notaðar stólpípur kvölds og morgna, heit sóda- böð (i/2 kg af sóda í baðkerið), og köld steypiböð með var- úð. Þá þarf sjúklingurinn, ef hann hefir fótavist, að ganga úti daglega, og rúmliggjandi sjúklingar þurfa að liggja fyrir opnum gluggum eftir föngum, vel klæddir, svo að öruggt sé, að þeir ofkælist ekki. Þessi drykkjarmeðferð varir venjulega 3 til 6 vikur, og síðan fer sjúklingurinn smátt og smátt að nærast á aldinum, kornmat og hráu grænmeti. Áframhald og varanleiki batans er algerlega undir því komið, að sjúklingurinn haldi áfram hinum nýju lifnað- arháttum. Annars má eiga það víst, að fljótt sæki í sama horfið aftur. (Þýtt úr sænsku).

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.