Heilsuvernd - 01.11.1958, Blaðsíða 9

Heilsuvernd - 01.11.1958, Blaðsíða 9
HEILSUVERND 71 reistu „Guðs hús á grýttri braut“, — heilsuhælið í Hvera- gerði. Vinirnir Jónas Kristjánsson og Sigurjón Danivals- son fóru fyrir og þeim bættust margir góðir liðsmenn. Er sérstök ástæða til að minnast Ágústs Steingrímssonar, húsameistara, sem lézt á þessu ári. Að kalla með tvær hendur tómar var starfið hafið, og enn sannaðist, að vilj- inn dregur hálft hlass. Hlýlegt og bjart reis hælið af grunni og varð sannkölluð heilsulind. Margur, sem áður brast trú á starfsemi félagsins, breytti afstöðu sinni. Tóm- asarnir fengu eitthvað til að þreyfa á og trúðu. Sigurjón virtist óþreytandi og vann nótt með degi. Hann var borinn uppi af eldlegum áhuga, og engan grunaði, að hann ætti svo skammt eftir ólifað. Svo kom reiðarslagið. Á svipstundu hvarf hann héðan og við hin stóðum eftir og spurðum: „Hvers vegna?“ Hver kann að svara? Hætt er við, að svörin yrðu mörg og vafasamt, að þau væru okkur ávinningur. Það er ekki það ,sem máli skiptir. Ævi- skeið Sigurjóns Danivalssonar getur aftur á móti verið okkur ábending um, hvað það er, sem við ættum að sjá og muna- Það er að leita hins bezta í eðli okkar og reynast því trú. Ef við gleymum því ekki, þarf engu að kvíða þó að einn maður stígi yfir þröskuldinn. Svona virðist ævi Sigurjóns frá ytra sjónarmiði. Gaman væri að ganga nær og sjá manninn að baki atburða og ævikjara. Oft reynast menn aðrir en þeir sýnast. Það, sem vel er unnið fer ekki ávallt hátt. Sumir setja ekki stimpil sinn á góðverkin, sem þeir vinna, sýnist litlu máli skipta hver þau vinnur, ef þau aðeins eru unnin. Þannig var Sigurjón. Mörg eru þau verk hans, sem hvergi verða bókuð nema í bók lífsins, þeirri sem upp er lokið á degi dómsins. Oft eru góðverkin svo persónulegs eðlis, að þeirra verður aldrei getið á torgi mannlífsins þar sem kaupmenn auglýsa vöru sína og menn dæma að ytra áliti, oft ranglega vegna þess að hjörtu þeirra eru ekki hrein. Þeir, sem eiga næmleik hjartans, hrópa ekki, heldur færa fram gjöf sína musteri þagnarinnar. Sigurjón safnaði þeim verðmætum, sem

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.