Heilsuvernd - 01.11.1958, Síða 19
HEILSUVERND
Lækningaaðferðir frú Ölmu Nissen
I síðasta hefti Heilsuverndar var skýrt frá lækninga-
starfsemi dönsku konunnar frú ölmu Nissen. Hér fer á
eftir lýsing hennar sjálfrar á aðferðum þeim, sem hún beit-
ir við lækningu liðagigtar.
Þegar byrjað var að nota Cortison og ACTH við liða-
gigt, fór gleðibylgja um alla liðagigtarsjúklinga, er til þess
fréttu. En þeim mun átakanlegri urðu vonbrigðin, þegar
í ljós kom, að lækningaáhrif þessara nýju lyfja voru
skammvinn, auk þess sem í kjölfar þeirra komu hættulegir
fylgikvillar. Spurningin um lækningu þessa sjúkdóms var
óleyst sem áður, og vísindamenn vilja ekki hlusta á okkur,
sem þykjumst geta bent á orsakir sjúkdómsins og ráð við
honum, enda þótt aðferðir okkar beri augljósan og ótví-
ræðan árangur. En eftir að ég fékk bata af langvarandi
liðagigt, hefi ég talið mér skylt að vísa sem flestum þá
náttúrlegu leið, sem kom mér að svo miklum notum.
Aðferð sú, sem ég notaði sjálf og hefi síðan beitt við
fjölda annarra sjúklinga með hinum ágætasta árangri, er
mjög einföld og styðst við kenningar Are Waerlands. Hún
er fólgin í innvortis hreinsun likamans og líkamsvefjanna
og endurnýjun þess, sem rangir lífshættir hafa eytt.
Kartöflusoð er mjög lútargæft. Af því drekka sjúkling-
ar mínir hálfan lítra í einu þrisvar á dag, fyrst á morgn-
ana og síðan á milli máltíða. Það er drukkið volgt. Það
er búið til þannig, að 1 kg af vel þvegnum kartöflum með
hýði er skorið í þunnar sneiðar. Sneiðarnar eru settar í
telur prófessor Wilska sterkar líkur benda til þess, að syk-
urneyzla og tannskemmdir séu meðal orsaka mænuveiki.
(Þýtt úr sænsku).