Heilsuvernd - 01.11.1958, Síða 21
HEILSUVERND
Rasmus Alsaker, lceknir:
Lækning liðagigtar
Höfundur þessarar greinar er lesendum Heilsuverndar þegar
kunnur því að liér í ritinu hefur ýmislegt birzt eftir hann, og
auk þess er hann höfundur greinar um meðferð ungbarna í „Nýj-
um leiSum II.“ Hann er gamall og reyndur bandarískur læknir,
sem beitt liefur jafnan náttúrlegum lækningaaSferSum meS hin-
um bezta árangri. Er fróSlegt aS bera sarnan aSferSir hans og
frú Ölmu Nissen viS lækningu á liSagigt. Eins og sjá má, eru
aSferSirnar í meginatriSum þær sömu.
Aðferðin við lækningu liðagigtar er þessi í megin-
atriðum:
1. Fyrst af öllu þarf að reyna að glæða von og bjart-
sýni í huga sjúklingsins. Kvíði, ótti og bölsýni tefja fyrir
bata og geta komið í veg fyrir hann með öllu.
2. Nauðsynlegt er að drekka mikið af volgu vatni. Lítill
maður þarf að drekka fimm vatnsglös á dag ,stórir menn
meira. í heitu veðri, eða ef menn svitna mikið, þarf að
drekka meira en ella.
3. Um fæðið er það að segja, að fyrst og fremst þarf
að borða mikið af grænmeti og rótarávöxtum, sem mest
ósoðið. Grænmetið hefir enn meiri þýðingu en ávextir, sem
einna helzt ætti að borða í morgunverð. Súra ávexti ætti
að forðast fyrst í stað, ef sjúklingurinn hefir miklar þrautir,
unz innri hreinsun líkamans er vel á veg komin. Sneiða
verður hjá öllum fjörefnasviptum fæðutegundum, öllum
réttum og drykkjum, sem í er hvítur sykur eða hvítt hveiti.
Þá verður að forðast allan steiktan mat, kjöt, krydd, og
að sjálfsögðu te, kaffi, tóbak, gosdrykki og áfengi.
4. Tregar hægðir gefa liðagigtinni byr í seglin. Verður
því að kappkosta að vinna bug á þeim. Rétt mataræði á