Heilsuvernd - 01.11.1958, Page 22

Heilsuvernd - 01.11.1958, Page 22
84 HEILSUVERND sinn þátt í því, en ef með þarf, verður að nota volgar stól- pípur, unz hægðir komast í lag. 5. Sé sjúklingurinn feitur, þarf hann að megra sig. Eitt bezta ráðið til þess — og til að lækna liðagigt yfirleitt — er að fasta við og við í nokkra daga, og forðast þess á milli fitandi fæðutegundir, svo sem kökur og sætindi, feitmeti og mikinn brauðmat. Föstur verður þó að viðhafa með varúð. 6. Heit böð tvisvar eða þrisvar í viku. Baðvatnið er haft eins heitt og sjúklingurinn þolir með góðu móti, og hann liggur í því 10—20 mínútur.* 7. Sumir halda því fram, að nauðsynlegt sé að reyna mikið á liðamótin, til þess að liðka þau. Reynsla mín er á annan veg. Þeim mun meira sem reynt er á þau, þeim mun siður læknast þau. Gott er að leggja heita bakstra á liðamótin og hreyfa þau gætilega við og við, svo að þau stirðni ekki. Þetta eru aðeins bendingar, en ekki nákvæm lýsing á meðferð liðagigtar, enda verður meðferð hvers sjúklings að miðast við allsherjarástand hans, andlegt og líkamlegt, eftir því sem batanum miðar áfram. Engir tveir sjúkling- ar eru eins, og þess vegna er ekki fyrirfram hægt að láta í té nema ónákvæma lýsingu á meðferðinni. Reyndur læknir þarf að fylgjast með sjúklingnum og leggja á ráðin jafnharðan. Með þolinmæði geta flestir fengið meiri eða minni bata, jafnvel þeir, sem verst eru leiknir. (Þýtt úr Health Culture). * Áhrifin af baðinu verða meiri, ef sjúklingurinn liggur allt að klukkutima vafinn teppum, eftir að hafa svitnað vel í baðinu.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.