Heilsuvernd - 01.11.1958, Blaðsíða 31

Heilsuvernd - 01.11.1958, Blaðsíða 31
HEILSUVERND 93 Radica og Dvodica aðskildar með uppskurði. an á brjóstbeininu (sjá mynd). Uppskurðurinn virtist tak- ast vel; á þriðja degi fóru systurnar að nærast, og á 4. degi báðu þær um leikföng. En viku eftir uppskurðinn fékk Dvodica krampaköst og andaðist eftir skamma stund. Við krufningu kom í ljós, að banameinið var berklaígerð í botnlanganum (coecum). Radica náði sér vel eftir upp- skurðinn og lifði við góða heilsu í tvö ár, en þá urðu berkl- ar henni einnig að aldurtila. Bræðurnir Lucio og Simplicio, sem áður var getið, voru aðskildir með uppskurði árið 1936, en létust báðir skömmu síðar. Simplicio lifði 11 dögum lengur en bróðir hans. Á sýningunni í París 1937 mátti sjá samvaxnar tvíbura- systur indverskar, Gaurabai og Gauganbai, fæddar árið 1909. Þær höfðu sameiginlega mjaðmagrind og sameigin- leg meltingarfæri. Árið 1952 aðskildu amerískir skurðlæknar 15 mánaða gamla tvíburabræður, sem voru vaxnir saman á höfðinu. Uppskurðurinn tók 12 klukkutima og 40 mínútur. Annar bróðirinn, sá veikbyggðari, andaðist mánuði síðar.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.