Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 9
HEILSUVERND
7
þrotinn að kröftum, var gott að hafa hann á meðal vor,
og návist hans minnti alltaf á hugsjónamál lians og
vort, heilsuræktarstefnuna, sem hann harðist allra
manna ótrauðast fyrir liér á landi. En enginn má sköp-
um renna, og gott er þreyttum og þjáðum að fá hvíld
og meinabót. — Ég hafði stundum orð á því við Jónas,
að segja mætti eitthvað svipað við hann og sagt er,
að liinn rómverski keisari, sem barðist á móti kristin-
dóminum, liafi sagt á banabeði: „Þú Iiefur sigrað, Gali-
lei.“ — Hann liafði sigrað. Draumur lians um heilsu-
hæli, er rekið væri á grundvelli náttúrulækningastefn-
unnar, hafði rætzt, og sjálfur var hann eins og konung-
ur í ríki sínu, hér á þessu heilsuræktarheimili, þar sem
allir elskuðu hann og virtu. En hann hugsaði um þjóð-
ina alla, og rannar mannkynið allt. Og oft fannst hon-
um lítið miða áfram á vegi skynsamlegra lífshátta. En
oft dáðist ég þó að því, hve umburðarlyndur hann var
við óvini hins góða málstaðar, sem hann liafði tekið að
sér, jafnmikill bardagamaður og hann var í eðli sínu.
Kom þar til hógværð hans og skilningur á því, að hin
jákvæða harátta yrði jafnan farsælust, þegar til lengd-
ar lætur. Englendingar hafa spakmæli, er hljóðar svo
á ensku máli:
„A man convineed against his will
is of the same opinion still." —
Þar er að segja: Maður, sem þröngvað er til að sann-
færast, gegn vilja sínum, heldur sinni gömlu skoðun.
— Viljugan er livern bezt að kjósa, og menn verða að
ganga sannleikanum á hönd af fúsum og frjálsum vilja
— og að lokum munu allir sigraðir verða af ofurefli
reynslunnar. Jónas hafði skilning á þessu. Hann var
einnig andlega sinnaður maður, og ég er meðal annars
hingað kominn til þess að þakka honum fyrir mikils
verðan stuðning við málefni mikillar úrvalsstefnu i and-
legum málum, sem mér er kær — Guðspekinnar. Hann