Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 13
HEILSUVERND
11
og starfa í nýjum líkama og taka upp baráttuna á nýju
tilverusviði með nýjum vopnum og nýrri sjón yfir allar
vígstöðvar. Því að Jónas var Karma-Yogi, eins og áður
var sagt, maður athafna, og starf mun verða hlutskipti
lians — hinum megin ekki síður en hérna megin. —
Að síðustu vil ég ávarpa þig, horfni vinur, og endur-
taka þakklæti mitt fyrir svo mörg ljós, sem þú tendr-
aðir á vegum minum, og fyrir svo mörg blóm, sem þú
barst mér í andlegum skilningi, á þinn yfirlætislausa
og liljóða hátt. Ég vil þakka þér fyrir það, hve elsku-
legur vinur þú varst, hve handtak þitt var hlýtt, og hve
gott var að þiggja fjörefni uppörvunar og viðurkenn-
ingar úr þínum læknishöndum.
Blessuð sé minning þín
og blessað sé allt, sem þú unnir
og lifðir fyrir!
Gretar Feils.