Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 57
Deiliskipulag miðbæjar Kópavogs. Reitir B1-1, B4, B2 og B1-3.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Kópavogs
samþykkt þann 14. desember 2021 deiliskipulag fyrir miðbæ Kópavogs,
Hamraborg, Fannborgarreit og Traðarreit vestur. Nánar til tekið fyrir
svæði sem afmarkast af Vallartröð til austurs, Digranesvegi til suðurs,
Fannborg 8 til vesturs og Hamraborg 10-38 til norðurs (reitir merktir B1,
B2 og B4 í rammahluta Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024). Stærð
skipulagssvæðisins alls er um 4.3 ha að flatarmáli.
Á Fannborgarreit (reit B1-1) standa nú þrjár byggingar fyrir atvinnuhús-
næði á 3 og 4 hæðum alls um 5300 m2 sem byggðar voru á árunum
1973-1979.
Í breytingunni felst að þessar byggingar víki fyrir nýrri byggð á 1-7
hæðum með stöku byggingum sem eru 8 og 12 hæðir, með allt að 270
íbúðum ásamt verslunar- og þjónustuhúsnæði. Áætlað heildar bygg-
ingarmagn ofanjarðar verður um 18.000 m2 að samanlögðum gólffleti
þar af 2000 m2 fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði. Miðað er við 1
bílastæði fyrir hverja íbúð og 1 bílastæði fyrir hverja 100 m2 verslunar-
og þjónustuhúsnæðis. Þá er heimild fyrir allt að 200 bílastæðum fyrir
verslun- og þjónustuhúsnæði og aðliggjandi byggð í bílakjallara. Lág-
marksfjöldi reiðhjólastæða á reitnum er 2 reiðhjólastæði fyrir hverja íbúð
og 1 reiðhjólastæði fyrir hverja 100 m2 verslunar- og þjónustuhúsnæðis.
Á traðarreit vestur (reit B4) standa nú 8 byggingar á 1 og 2 hæðum
með samtals 13 íbúðum, þar af 2 atvinnuhúsnæði alls um 3000 m2,
sem byggðar voru á árunum 1952-1958.
Í breytingunni felst að þessar byggingar víki fyrir nýrri byggð á 1-7
hæðum fyrir allt að 280 íbúðir auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis alls
um 22.000 m2 að samanlögðum gólffleti ofanjarðar, þar af 1.000 m2
fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði. Gert er ráð fyrir 1.25 bílastæði fyrir
hverja íbúð og 1 bílastæði fyrir hverja 75 m2 verslunar- og þjónustu-
húsnæðis. Þá er heimild fyrir allt að 200 bílastæðum fyrir verslunar- og
þjónustuhúsnæði og aðliggjandi byggð í bílakjallara. Lágmarksfjöldi reið-
hjólastæða á reitnum er 2 reiðhjólastæði fyrir hverja íbúð og 1 reiðhjóla-
stæði fyrir hverja 75 m2 verslunar- og þjónustuhúsnæðis.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir
um. Vakin er athygli á málskotsrétti samanber 10. kafla skipulagslaga
nr. 123/2010 og lög um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála
nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra
til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn
mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulags í B-deild
Stjórnartíðinda þ.e. frá og með 20. desember 2021.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreinda skipulagsáætlun er hægt
að nálgast hjá skipulagsdeild Umhverfissviðs Kópavogsbæjar, Digranes-
vegi 1, 200 Kópavogi milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga
og á föstudögum frá kl. 8:00 til 13:00.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
kopavogur.is
Auglýsing um afgreiðslu bæjar-
stjórnar Kópavogs á auglýstri
tillögu að deiliskipulagi.
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Gufunes 1. áfangi - Stígur að Strandvegi,
útboð nr. 15379
• Laugardalshöll- Uppsetning, raflagnavinna og
stýringar, útboð nr. 15378.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
www.borgarbyggd.is
www.borgarbyggd.is
Auglýsing um skipulag
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 er hér með auglýst tillaga að
breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Deiliskipulag Bjargsland II
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann
9. desember 2021 að auglýsa breytingu á
deiliskipulagi fyrir Bjargsland II í Borgarnesi,
Borgarbyggð.
Breytingin tekur til lóðar við Egilsholt 4 og felst í
því að byggingarreitur er stækkaður og færður til
innan lóðarinnar, bílastæði sett meðfram
Hrafnakletti, vegtengingu bætt við frá austurhlið
lóðarinnar og bílastæðum fjölgað úr 31 í 52 stæði.
Heildargrunn-flötur atvinnuhúss stækkaður úr
600 fm í 1.024 fm og nýtingarhlutfall hækkað úr
0,18 í 0,31. Aðrir skilmálar haldast óbreyttir.
Ofangreind deiliskipulagstillaga er aðgengilegar
á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is
frá 20. desember 2021 til og með 1. febrúar
2022. Ef óskað er eftir nánari kynningu á
ofangreindri tillögu þarf að panta tíma hjá
skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna
að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd
við auglýsta skipulagstillögu og er frestur til að
skila inn athugasemdum til 1. febrúar 2022.
Athugasemdum skal skila skriflega í þjónustuver
Borgarbyggðar, Bjarnabraut 8, 310 Borgarnesi, b.t.
skipulagsfulltrúa eða á skipulag@borgarbyggd.is
eða thjonustuver@borgarbyggd.is.
Borgarbyggð 18 desember 2021.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Erum við
að leita að þér?
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
ATVINNUBLAÐIÐ 13LAUGARDAGUR 18. desember 2021