Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
www.DORMA.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
DIMMA
baðsloppur
Einstaklega fallegur og mjúkur
baðsloppur. Sloppurinn er úr 100%
Micro bómull og kemur í hvítum og
gráum lit og stærðunum S, M, L, og XL
12.990 kr.
20%
AFSLÁTTUR
RÚMFÖTUM
JÓL
140 x 200 cm
Verð 10.990 kr.
Nú 8.792 kr.
LAU. 18. DES. 11–18
SUN. 19. DES. 13–18
MÁN. 20. DES. 11–19
ÞRI. 21. DES. 11–19
MIÐ. 22. DES. 11–19
FIM. 23. DES. 11–20
FÖS. 24. DES. 10–13 *
JÓLADAGUR 25. DES. LOKAÐ
2. Í JÓLUM 26. DES. LOKAÐ
MÁN. 27. DES. 11–18
AFGREIÐSLUTÍMI
UM JÓL
* LOKAÐ Á AÐFANGADAG
Í HOLTAGÖRÐUM
STÓRI BJÖRN koddi
Dúnkoddi frá Quilts of Denmark.
Stærð: 50x70cm. 50% dúnn og 50%
smáfjaðrir. 700g. Áklæðið er úr 100%
bómull. 7.900 kr. NÚ 6.320 kr.
DORMA EXCLUSIVE
dúnsæng
Létt og hlý sæng. 600 g. 140 x 200
cm. 50% dúnn og 50% smáfiður.
Áklæðið 100% bómull. 24.900 kr.
NÚ 19.920 kr.
DORMA PREMIUM
dúnkoddi
Dúnkoddi frá Quilts of Denmark.
Stærð: 50x70cm. 15% dúnn og 85%
smáfjaðrir. 850g. Áklæðið er úr 100%
bómull. 4.900 kr. NÚ 3.920 kr.
DORMA CLASSIC
sæng
Sæng úr hollow fiber (holtrefjum).
Meðalhlý. Stærð: 140×200 cm. 1345 g.
Má þvo á 60°c. 13.900 kr.
toti@frettabladid.is
Varla þarf að koma á óvart að veiru-
faraldurinn er Birni Inga Hrafns-
syni, ritstjóra Viljans, enn ofarlega
í huga. „Það er svo sem af nógu að
taka, en þar sem veiruskrattinn er
enn og aftur farinn að gera okkur
lífið leitt, er kannski nærtækast
að benda á rannsókn vísinda- og
tækninefndar breska þingsins, sem
leiddi í ljós í vikunni að líklega hefði
það verið einhvers konar leki eða
mannleg mistök á rannsóknarstofu
sem urðu þess valdandi að heims-
faraldur Covid-19 braust út fyrir
tveimur árum.“
Björn Ingi bendir á að vitað sé
að vísindamenn hafi í nágrenni
Wuhan beinlínis verið að þróa
slíkar veirur og það geti skýrt hvers
vegna svo hægt gangi að ráða niður-
lögum hennar, hversu öflug hún er
að þróa ný afbrigði og smithraðann
um víða veröld.
„Breski landlæknirinn sagði í
vikunni að Omíkron-afbrigðið væri
alvarlegasta ógnin í faraldrinum frá
því hann kom upp,“ segir Björn Ingi
og bætir við að því sé ekki að furða
að sjö helstu iðnríki heims hafi lýst
yfir á fimmtudag að Omíkron sé
mesta ógnin sem steðji að heilsu
mannkyns um þessar mundir.
„Þetta er kannski ekki akkúrat
léttmetið sem fólk vildi helst lesa
nú fyrir jól, en reynslan hefur kennt
manni að þróun erlendis er furðu-
fljót að berast hingað til lands, svo
það er líklega eins gott að setja sig í
stellingar. Enn einn ganginn.“ n
Nánar á frettabladid.is
Eins gott að setja sig í Omíkron-stellingar
n Fréttir vikunnar
Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi kafar dýpra ofan í málið á
Fréttablaðið.is í dag. MYND/ AÐSEND
Þær stöllur Rósa Kristinsdótt-
ir, Aníta Rut Hilmarsdóttir og
Kristín Hildur Ragnarsdóttir
hjá Fortuna Invest, hafa vakið
athygli fyrir skelegga fræðslu
um fjármál sem teygði sig
jafnvel í bókmenntaarfinn.
odduraevar@frettabladid.is
Rósa Kristinsdóttir er ein þriggja
vinkvenna sem standa að baki fjár-
málafræðsluvettvanginum Fortuna
Invest. Þær gáfu nýverið út sam-
nefnda bók með það fyrir augum að
fræða lesendur um fjármál og fjár-
festingar á áhugaverðan og aðgengi-
legan hátt.
„Áhuginn hefur farið fram úr
okkar björtustu vonum. Þegar við
fengum hugmyndina að því að skrifa
þessa bók könnuðum við markaðinn
og miðað við okkar rannsóknir þá
er síðasta bók sem er skrifuð í svip-
uðum stíl jafngömul og við,“ segir
hin 28 ára gamla Rósa. „Þannig að
við töldum að það væri þörf á því að
uppfæra þessar upplýsingar.“
Vinkonurnar eru jafnframt með
samnefnda Instagram-síðu þangað
sem þær dæla fróðleik um fjármál,
hlutabréf og aðrar fjárfestingar.
Þar vakti mikla athygli færsla um
skort á kennslu í fjármálalæsi í
grunnskólum og plássið sem forn-
bókmenntirnar fá þar, með Gísla
sögu Súrssonar í fremstu víglínu.
Samanburðurinn kom við kaunin á
mörgum og netverjar tístu um málið
í gríð og erg.
Rósa viðurkennir að athyglin
hafi reynst ágæt. „Markmiðið var
að vekja athygli á þörfinni á auknu
fjármálalæsi og það var gaman að
sjá báðar hliðar. Auðvitað voru ein-
hverjir sammála og einhverjir mjög
ósammála,“ segir Rósa, en margir
voru mjög sárir fyrir hönd Gísla.
Ekki ætlunin að fella Gísla
„Sem er bara allt í góðu, þetta er að
sjálfsögðu ekki spurning um að fella
Gísla niður og kenna bara lántökur,“
segir Rósa hlæjandi. Markmiðið sé
að benda fólki á að skilningur á
fjármálum er ekki óyfirstíganleg
hindrun.
„Því að mörgum finnst það óyfir-
stíganlegt að kynna sér þessi mál,
sem er alls ekki skrítið því upplýs-
ingarnar eru á víð og dreif og ekki
allt lagað að íslenskum aðstæðum.“
Rósa segir Instagram-síðuna
lykilinn að fræðsluvettvangi For-
tuna. „Þar koma upplýsingarnar til
þín á meðan þú skrollar og ef þetta
birtist jafnt og þétt fyrir framan þig
þá ertu kannski líklegri til að leita
sjálfur að fréttum, taka umræðu eða
samtal um þetta, því við trúum svo
mikið á það að þetta sé framtíðar-
verkefni. Því þetta snýst ekki bara
um að kaupa eitt verðbréf heldur
snýst þetta um að byggja upp góða
þekkingu, með fram þeirri fjárhæð
sem þú leggur í fjárfestingar.“
Hvatt til sparnaðar
Í bókinni er meðal annars að finna
sparnaðarráð og lesendur hvattir til
að leggja fyrir. Þegar Rósa er spurð
hvort það gangi ekki þvert gegn hinu
alíslenska „þetta reddast“ hugarfari
svarar hún hlæjandi:
„Það að leggja fyrir og hugsa til
framtíðar þarf einmitt alls ekki að
vera allt eða ekkert. Þegar ég hugsa
sjálf til baka til þess þegar maður
ákvað að spara, eða fara í átak, þá
var maður alltaf svo ýktur.
Maður ætlaði sér ekki að ná yfir-
sýn yfir fjármálin, setja sér einhver
markmið, heldur ætlaði maður bara
að hætta að gera allt. Alltaf að vera
með nesti og maður ætlaði aldrei
aftur í bíó. En þetta er langtíma-
verkefni og til þess að springa ekki á
limminu og gefast upp þarftu að hafa
raunhæf markmið og þú þarft líka að
hafa gaman.“ n
Pláss fyrir Gísla Súrsson í
framtíðarsýn Fortuna Invest
Rósa Kristinsdóttir, Aníta Rut Hilmisdóttir og Kristín HIldur Ragnarsdóttir í Fortuna Invest, telja sig vel geta riðið um
héröð með fjármálafræðslu þótt þar séu fyrir Gísli Súrsson og aðrar Íslendingasagnakempur. MYND/AÐSEND
Heilræði fyrir byrjendur
á hlutabréfamarkaði
1. Byrjaðu smátt Það getur
verið ráðlegt að byrja smátt
og afla sér reynslu og þekk
ingar jafnóðum samhliða
aukinni fjárfestingu.
2. Dreifðu eignasafninu Það
er mikilvægt að dreifa eigna
safninu og setja með því ekki
öll eggin í sömu körfuna.
3. Fjárfestu í því sem þú
þekkir og skilur Ekki fjárfesta
í einhverju sem þú þekkir ekki.
Aflaðu þér upplýsinga áður en
þú fjárfestir.
4. Fjárfestu reglulega Fjár
festing í hlutabréfum skilar
mestu ef fjárfest er til langs
tíma. Forðastu að fjárfesta
einu sinni ákveðinni upphæð
og svo ekki meir. Fjárfestu
reglulega þegar þú hefur tæki
færi til.
5. Auktu þekkinguna með
fram fjárfestingunni Vertu
stöðugt að afla þér nýrrar
þekkingar og vaxa þann
ig sem fjárfestir. Hluta
bréfamarkaðurinn er í sífelldri
þróun og stöðugt á hreyfingu.
72 Lífið 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ