Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 10
Húsið var metið óíbúð- arhæft og verðlaust. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs um þróunarsamvinnu Stjórnarráð Íslands Utanríkisráðuneytið© World Bank Photo Collection Hefur fyrirtæki þitt áhuga á að vinna að framgangi heims- markmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun? Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu. Fyrirtæki leggja þannig af mörkum við að draga úr fátækt og stuðla að sjálfbærni með eflingu atvinnu- og viðskiptalífs í þróunarlöndum. Um leið auka þau samkeppnishæfni sína á framtíðarmörkuðum. Sérstaklega er hvatt til þess að verkefni stuðli að jafnrétti kynjanna og að jákvæðum umhverfis- og loftslagsáhrifum. • Allar upplýsingar er að finna í verklagsreglum og lista yfir gjaldgeng samstarfslönd undir www.utn.is/atvinnulifssjodur • Umsóknir þurfa að berast í gegnum miðlæga þjónustugátt hins opinbera: www.island.is/atvinnulifssjodur • Styrkir verða auglýstir þrisvar sinnum á árinu 2022 með umsóknarfresti 3. febrúar, 3. maí og 3. október 2022. • Fyrirspurnir um sjóðinn skal senda á netfangið atvinnulifssjodur@utn.is Ný rannsókn á setlögum á Austurey sýnir að kindur, og þar með fólk, var í Færeyjum í kringum 500 eftir Krist, áður en víkingarnir komu til eyjanna. Nýlátinn vísinda- maður hafði áður komið fram með sams konar tilgátur. kristinnhaukur@frettabladid.is FÆREYJAR Rannsóknir á færeyskum kindaskítsleifum hafa leitt í ljós að landnám í eyjunum hófst fyrr en áður var talið. Nánar tiltekið í kringum árið 500 eftir Krists burð, en ekki um 800, þegar vitað er að Norrænir menn námu land. Rann- sóknin var gerð af vísindamönnum við Wyoming-háskóla í Bandaríkj- unum á setlögum úr stöðuvatni. „Hvert okkar í teyminu notar mismunandi aðferðir til að greina setlögin og við fáum skilning á því hvernig umhverfið hefur breyst, meðal annars með tilkomu fólks,“ sagði jarðfræðingurinn Lorelei Curtin, sem leiddi rannsóknina, við sjónvarpsstöðina CNN. En teymið naut stuðnings fornleifafræðingsins Simun Arge hjá þjóðminjasafni Fær- eyja. Rannsóknin var birt á fimmtu- dag í tímaritinu Communications Earth & Environment. Til eru skrif legar heimildir frá munkum á Bretlandseyjum, sem segja frá tilvist eyja sem gætu vel Kindaskítur kollvarpar vitneskju vísindamanna um landnám Færeyja Ekki er líffræði- leg vitneskja um nein spendýr í Færeyjum fyrir landnám. MYND/HÓLM- FRÍÐUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR verið Færeyjar, eldri en landnám Norrænna manna. Hin nýju gögn renna stoðum undir þessar frásagnir þó að þau segi ekki til um hverrar þjóðar fólk átti umræddar rollur. Rannsóknin fór fram á set- lögum í stöðuvatni við bæinn Eiði á Austurey, næststærstu og næst- fjölmennustu eyju Færeyja. Borað var tæplega þrjá metra ofan í botn stöðuvatnsins til að sækja setlög, sem sýna 10 þúsund ára umhverfis- sögu vatnsins og umhverfisins í kring. Klár ummerki um kindaskít fundust í setlögunum, á dýpi sem hægt var að rekja til árabilsins 492 til 512 eftir Krist. Hægt er nema dýrategundina út frá líffræðilegum eiginleikum skítsins og greiningu á erfðaefni, en engin spendýr voru á Eyjunum fyrir þennan tíma. Hið þekkta íslenska landnámsöskulag, úr stórgosi á Veiðivatna- og Torfa- jökulssvæðinu með miklu gjósku- falli, var notað til þess að reikna út ártöl sem kindaskíturinn varð til á. Skoski fornleifafræðingurinn Kevin Edwards rannsakaði bygg í Færeyjum árið 2013 og kom þá með tilgátu um að breytingarnar á gróðri væru slíkar að mjög líklegt væri að landnám eyjanna hefði orðið löngu fyrir tíma víkinga, jafnvel 300 árum eftir Krist. Gögn úr hinni nýju rann- sókn eru meira afgerandi, en sú rannsókn er tileinkuð Edwards, sem lést fyrr á þessu ári. Rannsóknin sýnir hins vegar engin merki um kindur eftir þennan tíma. Það rímar einnig vel við rann- sókn Edwards, sem sýndi byggið hverfa á tiltölulega skömmum tíma. Miðað við þetta má gera ráð fyrir því að landnám þessa ókunna fólks hafið dáið út milli 500 og 600 eftir Krist, 200 árum fyrir landnám víkinganna. n kristinnhaukur@frettabladid.is NORÐURLAND Hreinsun hefst brátt á svæðinu á Hofsósi þar sem bensín- leki úr tanki N1 olli miklu mengun- arslysi fyrir meira en tveimur árum síðan. Matsgerð er nýlokið fyrir tjón sem tvær fjölskyldur urðu fyrir. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður annarrar f jölskyldunnar, segir umbjóðendur sína ósátta við mats- gerðina, því ekki hafi verið komið til móts við þörf þeirra fyrir nýtt hús. Verið sé að reyna að ná samkomu- lagi við N1 en upphæðir verði ekki gefnar upp að svo stöddu. „Húsið var metið óíbúðarhæft og verðlaust,“ segir Ragnar. Fjölskyldan hafi ekki getað verið heima hjá sér í meira en tvö ár og fari ekki þangað á næstunni. Þau hafi búið í upp- gerðu sumarhúsi í nágrenni Hofsóss þennan tíma. Í nóvember gaf Umhverfisstofn- un N1 út fyrirmæli um hreinsun, byggðum á úrbótaáætlun sem N1 lét gera. Sveitarfélagið hefur samþykkt framkvæmdaáætlunina og hreinsun getur hafist. Forsvarsmenn sveitar- félagsins eru hins vegar ekki að öllu leyti sáttir við málalyktir. „Þarna eru fyrirmæli um loft- skipti, undirþrýsting og slíkar aðgerðir sem geta tekið allt að tveimur árum. Við vildum frekar jarðvegsskipti,“ segir Sigfús Ingi Sig- fússon, sveitarstjóri Skagafjarðar. Hann segir þetta ekki tekið úr lausu lofti, heldur hafi sú verkfræði- stofa sem unnið hafi rannsóknir fyrir sveitarfélagið, talið jarðvegs- skipti mun öruggari. Harmar sveit- arstjórnin að Umhverfisstofnun hafi ekki tekið tillit til óska sveitar- félagsins nema að litlu leyti. Samkvæmt Sigfúsi hafa kærumál gagnvart N1 ekki verið útilokuð. „Við erum að skoða það. Við höfum ráðist í mikinn kostnað vegna rann- sókna og lögfræðivinnu. Við erum eigendur lóðanna og götunnar þannig að við áskiljum okkur allan rétt til að endurkrefja allan þann kostnað sem fellur á okkur,“ segir hann. n Þolendur bensínlekans ósáttir við matsgerðina Bensínleki úr tanki N1 olli mengunarslysi fyrir meira en tveimur árum síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR arib@frettabladid.is SAMGÖNGUMÁL Gera má ráð fyrir bikblæðingum á vegum á Norður- landi um helgina miðað við veður- spár. Samkvæmt Vegagerðinni hefur orðið vart við blæðingar á Þverárfjalli og Hámundastaðahálsi. Rúmlega 230 ökutæki urðu fyrir tjóni af völdum bikblæðinga á Norður- og Vesturlandi í desember í fyrra. Greiddi Vegagerðin tjón upp á tæpar 30 milljónir króna. Fram kemur í svari Vegagerðar- innar við fyrirspurn Fréttablaðsins að örfáar tilkynningar hafi borist í haust, en í þeim tilfellum hafi ekki verið staðfest að um blæðingar hafi verið að ræða. n Blæðingar verða norðanlands Tjara á bílskúrsgólfi í Kópavogi í október. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Rúmlega 230 ökutæki urðu fyrir bikblæðinga- tjóni í desember 2020. 10 Fréttir 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.