Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 36
Ég segi mömmu hans að gefa mér gardín- urnar og úr þeim saumaði ég sjö kjóla. Svo komst ég að því seinna að yngri dóttur mína langaði svo að eiga mömmu sem væri feit með svuntu en ég var svo mjó og gekk í buxum. Unnur Jóhannesdóttir fædd- ist í Reykjavík árið 1929. Hún finnur enn ilminn af jólaepl- unum síðan hún var fimm ára og fékk helst bækur í jólagjöf. Unnur lærði myndlist eftir að hún varð áttræð og tók bílpróf á sextugsaldri. Áður fyrr var eiginlega ekkert til nema kinda- kjöt og það var líka borðað á jólunum,“ segir Unnur Jóhannes- dóttir, listakona og húsmóðir, spurð að því hvernig jólin hafi verið þegar hún var lítil. Unnur er fædd í Reykjavík árið 1929 sem gerir hana 92 ára gamla. „Á jólunum var borðað læri og hangikjöt og svo var sveskjugrautur í eftirrétt. Ég man vel eftir því þegar ég var svona sex ára og pabbi keypti trékassa fullan af sveskjum fyrir jólin,“ segir Unnur. „Ég man líka vel eftir eplum í stórum tunnum þegar ég var enn yngri, ekki nema kannski fimm ára, ég finn enn þá lyktina af þeim.“ Unnur á tvær yngri systur og minnist jólanna heima hjá sér með mömmu sinni, pabba sínum og systrunum. „Svo man ég eftir því að farið var að bjóða í jólaboð. Mamma mín átti tvær systur og þær skiptust á að bjóða í boð á jóladag eða á annan í jólum,“ segir Unnur. „Þá var búið að baka svamptertur, rjómatertur og allt milli himins og jarðar. Svo voru náttúrulega alltaf bakaðar smákökur eins og í dag,“ bætir Unnur við og minnist þess að þegar hún var barn hafi ekki verið í boði að borða smákökurnar fyrr en á sjálfum jólunum. „Ég hef alltaf leyft mínum börn- um að borða kökurnar í desember,“ segir Unnur sem alla tíð hefur bakað fjöldann allan af smákökusortum fyrir jólin. „Eiginlega bara alveg þangað til núna.“ Lærði myndlist áttræð Spurð að því hvort hún eigi sér minningar um jólagjafirnar frá því hún var lítil segist Unnur ekki mikið muna eftir því hvað var í pökkunum. „Auðvitað fengum við einhverjar jólagjafir, ég held að það hafi helst verið bækur,“ segir Unnur sem hefur alla tíð notið þess bæði að lesa og leysa krossgátur. „Landlæknir sagði einhvern tím- ann að gamla fólkið ætti að vera í krossgátum, það væri gott fyrir heil- ann. Ég var löngu byrjuð á því áður en ég varð gömul og ætli það hafi ekki haft einhver áhrif,“ segir Unnur. „Ég man mjög vel eftir því að mamma gaf okkur alltaf sumargjöf. Þegar ég var fimm ára fékk ég æðis- lega strigaskó.“ Unnur man vel eftir því að hafa gengið Grettisgötuna árið 1934 í fínu strigaskónum þegar skórnir slitnuðu. „Þetta var svona band yfir ristina og tala. En ég fór bara inn til skósmiðsins á Grettisgötunni og bað hann að laga þá fyrir mig og það gerði hann, festi töluna fyrir mig,“ segir hún og skellihlær. Unnur giftist Vali Jóhannessyni prentara þegar hún var rúmlega tvítug og saman eignuðust þau fjögur börn. Unnur vann að mestu heima, sinnti börnum og búi, en seinna hóf hún störf við ræstingar í Háskóla Íslands þaðan sem hún ber samstarfsfólki sínu afar vel söguna. Unnur hefur alla tíð haft mikinn áhuga á ýmiss konar handverki. Hún prjónar mikið og nýtur þess að mála. Heimili hennar er skreytt fallegum málverkum sem hún hefur málað. „Mér hefur alltaf þótt gaman að mála og ég fór í myndlistarskóla með Trausta syni mínum þegar ég var rúmlega áttræð.“ Myndlist var ekki það eina sem Unnur lærði eftir að hún varð full- orðin en hún tók bílpróf þegar hún var á sextugsaldri. „Við áttum aldr- ei bíl. Hvorki við fjölskyldan né mamma mín og pabbi svo ég labb- aði bara allt sem ég þurfti að fara alla tíð,“ segir Unnur sem þakkar göngunum háan aldur sinn líkt og krossgátunum. Finnur enn eplailminn Unni hefur alla tíð fund- ist gaman að mála og fór í myndlistarskóla með Trausta syni sínum þegar hún var komin yfir átt- rætt. Myndina sem hangir á veggnum á bak við Unni málaði hún sjálf. Fréttablaðið/ Eyþór Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is „Svo tók ég bílprófið þegar ég var fimmtíu og eitthvað ára og ég sagði engum frá því að ég væri að gera það. Ekki einu sinni börnunum mínum,“ segir Unnur. „Ég ákvað bara að prófa hvort ég gæti það og var ekkert að segja frá því, svo bara þagði ég alveg þangað til ég var búin.“ Margt breyst með árunum Unnur segir að þegar hún var lítil hafi allt í kringum jólin verið rólegra en það sé nú. Mesta breyt- ingu segist hún sjá í mat og gjöfum til barnanna. „Mér finnst börn vera að fá allt of mikið,“ segir hún. „Ég held að þetta geri þeim ekk- ert gott. Það er eins og krakkar í dag fæðist eldri, þau eru svo þroskuð fljótt og það er gaman að þeim en ég held að þau fái of mikið,“ segir Unnur sem á fjögur börn, þrettán barnabörn og bráðum 23 barna- barnabörn. „Ég gef þeim öllum jólagjafir, nema barnabörnunum sem eru búin að eignast börn sjálf, þá gef ég barnabarnabörnunum. Ég safna alls konar litlum dollum allt árið og mála þær og set pening ofan í. Ég er alveg hætt að kaupa eitthvað handa þeim því þau eiga allt og vantar ekk- ert.“ Eftir að Unnur fór að búa og eignaðist börn prjónaði hún mikið á krakkana og saumaði, til dæmis alla jólakjóla á dætur sínar tvær. „Svo skal ég nú segja þér eina skemmti- lega sögu,“ segir Unnur. „Einu sinni keypti sonarsonur minn sér íbúð og í henni voru f lauels gardínur sem hann ætlaði ekki að nota. Ég segi mömmu hans að gefa mér gardínurnar og úr þeim saumaði ég sjö kjóla,“ segir hún. „Svo fór Júlía, dótturdóttir mín, á jólaball og kennarinn segir henni hvað hún sé í voðalega fallegum kjól. Þá segir hún: Amma saumaði hann upp úr gardínum. Mér finnst þetta svo frábært og fyndið,“ segir Unnir hlæjandi. Gott að vera í gallabuxum Þrátt fyrir að hafa saumað fjölmarga kjóla í gegnum tíðina segist Unnur sjálf aldrei hafa verið aðdáandi þess að ganga í kjólum. „Þegar ég var með krakkana litla þá voru allar konur í sokkabuxum og kjól eða pilsi en ég var í gallabuxum,“ segir hún. „Það var ekki vanalegt og þótti ekki fínt en mér fannst það þægi- legt. Svo komst ég að því seinna að yngri dóttur mína langaði svo að eiga mömmu sem væri feit með svuntu en ég var svo mjó og gekk í buxum, þau skömmuðust sín of boðslega fyrir klæðaburðinn, krakkarnir,“ segir Unnur og skellir upp úr. Aðspurð að því hvað hafi breyst þegar kemur að mat á jólunum segir Unnur það vera úrvalið. „Ég man til dæmis eftir því þegar ég eldaði svínakótelettur í fyrsta sinn, þá vissi ég ekkert hvernig ég ætti að gera það,“ segir Unnur. „Ég sendi þá manninn minn niður í Naust og lét hann spyrja hvernig ætti að elda svona mat og hann fór og ég fékk uppskriftina, það reddaði mér og síðan hafa svínakótelettur verið í ofboðslega miklu uppáhaldi hjá krökkunum mínum,“ segir hún. „Ég man líka eftir því þegar hús- mæður fóru að elda hænur, áður en kjúklingarnir komu, en þær gáfust fljótt upp því þær voru svo seigar.“ Unnur hefur alltaf verið mikið jólabarn og þar til fyrir tveimur árum tók hún á móti öllum sínum af komendum á jóladag í aspars- súpu, hangikjöt og frómas. Hún býr enn á heimili sínu í Vesturbænum og er afskaplega hress þrátt fyrir háan aldur. n 36 Helgin 18. desember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.