Syrpa - 01.04.1947, Side 19

Syrpa - 01.04.1947, Side 19
vítis „Fanatismi“, sem Melsteð og Havstein hafa hleypt í almenning er nú kominn um allt land og óttar öllu með drápi og eyðileggingu. — Ég trúi nú sé farið að tala um að drepa menn. — Þetta er fallegt helvítis athæfi, og ef þú heldur ég gjöri meira úr því en vert er, svo er þér bezt að koma og sjá það. Já, ég sé sannarlega enga aðra hjálp en þú og Oddgeir komið hér upp sem allra fyrst, og hafið „plein pouvoir“ í þessu máli, bú- ið til Comite, sem þið skársta getið og drífið svo allt í gegn rneð valdi, því út af þessari bölv: góð- mennsku gegn „Fanatikerne“ kemur ekkert. Það er víst, að kláðinn er læknandi og það hæglega, þar upp á liöfum vér mörg hundruð dæmi, en hvað hjálpar þetta, þegar helv. „Fanatismen“ vill ekki sjá það? Sjúkdómurinn fer sem önnur land- farsótt yfir allt landið og alltaf er haldið áfram að dreþa og drepa. í Húnavatnssýslu, hvar óþrifa- kláðinn (sjá „Hirðir“ 14., 15. og 16. blað) nú á miðjum vetri er orðinn að sunnlenzkri kláðapest, er allt fé drepið, þó eigi sjáist nema ein kláðakind, og svona verður haldið áfram hver veit hvað lengi. Án ofbeldis og hræðslu er eigi að hugsa til að stoppa þetta helvitis-œði; trúðu mér og þú færð trúna því hetur í höndurnar, því lengur sem þið bíðið. Oddgeiri má víst eigi lítast á að láta þetta mál koma fyrir ríkisdaginn og þar til mun þó kú- gildamálefnið fara á endanum. Þið eigið nú von á dáfallegum sögum með dampskipinu, og ég gjöri ráð um, að Jensen og Hanstein hafi þær með sér í vasanum. Þeir eru hér enn fyrir mína skuld, en það mun eigi vara lengi, fari þessu fram og þá k<?ma nú fallegar sögur uppU Það var mikil ógæfa, þegar Havstein gat komið Oddgeiri að kalla saman þennan góða amtmannafund, hvar út af fæddust allar vitleysurnar á Alþingi, og sem nú er orðið ómögulegt að rétta nema með magt. Havsteinn er að skora á kaupmennina norð- lenzku, til að styðja „Fanatismen“ með fégjöfum, en ég held þeim væri nær að styðja, það sem þeir geta að því, að einhverri rollunni yrði bjargað undan hnífnum hans, en að hjálpa honum til að „fanatisera" fólk meira en komið er mun varla vert. Hvað lækningum viðvíkur hér syðra, þá ganga þær vel á þessum litla hóp, sem loksins slapp undan hnífnum í haust, en þó er niðurskurðar „fanatismen“ að færast yfir Rangárvallasýslu, svo þar verður nú eitthvert ógnar blóðbaðið líka, einkum fari þeir að veita Briem sýsluna, sem ég vona og bið að eigi verði, því við höfum nóg af „fanatiseruðum“ prestum og próföstum hér að eigi fáum við þá að norðan. Stephan Thordarsen gengur þar (rRangárvallasýslu) vel fram og ég vildi hann væri þar sem lengst, því hann aftrar dónunum mikið frá að drepa. Hjá kammerráð- inu á Hrauni er draugagangur, svo þú sérð, góði vin, að um oss má segja „allt er þá þrennt er“ o: homöopathia, niðurskurður og draugagangur. Viljir þú sjá meira um kláðann getur þú lesið það í „Hirðir". Með kærustu kveðju frá mér og konu minni til þín og þinnar góðu konu, er ég þinn elskandi vin J. Hjaltalín. Dag 10. marz 1858. P. S. Niðurskurðarmannanna „Fanatisme" versnar dag frá degi og þó þeir sjái heila flokka af læknuðu fé, á það allt að vera lygi. Það er nú eigi annað eftir en þeir fari að reka hnífinn hvor í annan. Þú mátt trúa mér, að þetta er satt, og ekkert stöðvar þetta nema magt. Þið megið til að senda upp Dáta sem veterinairt Politið, því nið- urskurðarmennirnir spara nú ekkert til að koma sínu fram. Að afsetja Havst. og Melsteð vildi vera að kasta olíu í eldinn. Trampe er og aldeilis eigi fær um að stjórna þessu, því hann hefir látið niðurskurðarmennina hér syðra vaða uppi sern illliveli.

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.