Syrpa - 01.04.1947, Blaðsíða 27

Syrpa - 01.04.1947, Blaðsíða 27
að ná andanum? Það var ekkert vit í því að láta saklaust barn kveljast svona. ---Það sauð og kraumaði í litla brjóstkassan- um. Einhver kökkur var að brjótast um niðri fyrir, en hann vildi ekki fara, þó að Nonni litli hóstaði og berðist um, þangað til svitinn spratt fram á enninu á honum. Hann baðaði út hönd- unum og augun ætluðu út úr honum, en hryglan hélt áfram að sjóða og bulla. Átakanlegast var þó að horfa upp á það, þegar hann gat ekki einu sinni hóstað, heldur sat upp við dogg, þegjandi og anzaði ekki, þótt á hann væri yrt. Þá var hann á svipinn eins og hann væri reiður. „Amma getur ekki að því gert, vinurinn,“ sagði Anna gamla og strauk hárið frá litlu, rauðu eyr- unum. En Nonni litli sneri sér upp í horn. Skelf- ing var hann víst reiður við ömmu. Hann halláði höfðinu og leit til hennar útundan sér eins og hann væri að hugsa um að þessu hefði hann aldrei trúað á ömmu. Og undir það síðasta .... Anna gamla þeytti ábreiðunni yfir rúrnið. Nei, hún mátti ekki til þess hugsa. Hún var enginn maður til að bera það, sem á hana var lagt. Fram að þessu hafði hún aldrei látið bugast, allt hafði hún borið, enginn hafði séð hana fella tár. Ensfin lifandi sála, ekki einu sinni börnin hennar. Alltaf hafði hún borið höfuðið hátt. Og nú! Nonni litli horf- inn. Hvað átti hún þá eftir? Ekkert. Hann var liið einasta, sem hún hafði borið úr býtum í lífinu, og nú var hún búin að missa hann líka. Af hverju þurfti hún að verða fyrir þessu öllu? „Hvað hef ég til saka unnið?“ spurði Anna gamla. „Hvað hef ég til saka unnið?“ Um leið og þessi orð hrukku af vörum hennar, missti hún sópinn á gólfið. og var komin fram í eldhús áður en hún vissi af. í angist sinni nældi hún á sig hattinn, fór í kápuna og gekk út úr íbúðinni eins og í leiðslu. Hún vissi hvorki í þennan heim né annan. Hún var eins og maður, sem hefur lifað skelfingarstund og ráfar burt — eitthvað út í bláinn, eins og hann héldi að hægt væri að flýja sjálfan sig .... Það var kalsaveður úti, vindurinn nístandi. Fólkið þaut framhjá. Karlmennirnir stikuðu stór- um, kvenfólkið tifaði eins og kettir. Enginn vissi, hvað lienni leið — öllum var sama. Ef hún léti hugfallast og færi nú að gráta eftir öll þessi ár, þá væri ekkert líklegra en að hún yrði tekin föst. Þegar hún fór að hugsa um tár, þá vár eins og Nonni litli væri allt í einu kominn í fangið á henni. Ó, það var það, sem hana langaði til. Ljúf- urinn, ömmu langar til að gráta. Ef hún mætti gráta lengi, lengi yfir því öllu, yfir fyrstu vistinni og eldabuskunni vondu, árunum í læknishúsinu, litlu börnunum sjö, dauða mannsins síns,_börn- unum, sem hurfu út í lieiminn, öllum þrautaár- unum þangað til Nonni litli kom. Það yrði ekki hlaupið að því að gráta yfir þessu öllu saman. En hvað um það, nú var stundin komin. Hún varð að fá að gráta. Það gat ekki beðið lengur, ekki stundinni lengur .... En hvert var að flýja? „Hún hefur ekki átt sjö dagana sæla, hún Anna gamla.“ Nei, sannarlega ekki. Varirnar voru farn- ar að titra; nú varð eklci undankomu auðið. Hvert gat hún farið? Hvert? Heim gat hún ekki flúið. Þar var Magga og hún yrði dauðhrædd. Ef hún settist einhvers stað- ar á bekk, þá færi einhver að yrða á hana. Ekki gat hún farið heim til rithöfundarins, — hvaða rétt hafði hún til að gráta í annarra manna híbýl- um? Ef hún settist niður á eitthvert dyraþrepið, þá kærni lögregluþjónn og færi að spyrja hana spjörunum úr. Ó, var þá ekkert afdrep til, þar sem hún gæti verið í friði og falið sig eins og hana langaði til, án þess að verða á vegi annarra? Var þá hvergi at- hvarf á þessari jörð til að gráta — eftir öll þessi ár? Anna gamla skimaði í allar áttir. Nístingsköld stormhviða greip svuntuna liennar og blés hana út eins og belg. Og svo fór að rigna. Hvergi, hvergi. (J. IC.þýddi.) ☆ Lifsviðhorf manns á nírœðis alclri. Áttatíu og sex ára öldungur sendi blaðinu þessa raunavísu, en vill ekki láta nafns síns getið: Höfuð tæmist heila vits, hold að öllu sóttir feygja, sálu urgur bellur bits, bezt við lífið er því — deyja. s YRPA 105

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.