Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 37
„AirMini er lítil og meðfærilega kæfisvefnsvél sem er auðvelt að taka með í bústaðinn, veiðina, golfið, fríið og vinnuferðir innan lands og utan.“ Glötuð niðurstaða fyrir 45 ára gamlan mann Ég var greindur fyrst með kæfisvefn árið 2013 en þá hafði það mikil áhrif á konuna mína vegna þess að hún átti erfitt með svefn vegna hávaða í mér á nóttunni. Um það leyti fór ég í svefnrannsókn hjá Landspítalanum og greindist með vægan kæfisvefn. Mér stóð til boða að fá kæfisvefnsvél, sem ég lét þó aldrei verða af. Þetta háði mér ekki mikið á þessum tíma, en 10 árum seinna var þetta farið að hafa meiri áhrif á mig. Ég vaknaði alltaf þreyttur og þurfti mjög oft að leggja mig eftir vinnu. Þó að ég svæfi í 8 tíma eða lengur þá var ég aldrei úthvíldur. Í september 2020 urðu svo kaflaskil í þessu hjá mér. Þá vaknaði ég einn venjulegan sunnudagsmorgun þreyttur eins og svo oft áður en eitthvað var öðruvísi en vanalega. Mér leið einkennilega og hjartslátturinn var hraður og óreglulegur. Ég fór á bráðamóttökuna til að láta kanna þetta betur og þá kom í ljós að hjartað hafði farið úr takt (gáttatif), sem endaði með að ég var svæfður og rafvendur. Eftir þetta fór ég í skoðun hjá Gísla Jónssyni vini mínum sem er hjartalæknir og hann komst að þeirri niðurstöðu að þetta hefði gerst í svefni og sendi mig rakleitt í svefnrannsókn. Niðurstaðan kom mér ekki á óvart. Staðan hafði versnað og var ég greindur með kæfisvefn yfir meðallagi eða 30 öndunarhlé á klukkustund. Í samtali við lækninn minn um hvað væri til ráða kom fram að hann taldi að lítið annað væri að gera en að ég myndi fá svefnvél. Mér fannst þetta nú heldur glötuð niðurstaða fyrir 45 ára gamlan mann sem telst í þokkalegu góðu líkamlegu formi og stundar útivist eins og hjólreiðar, fjallaskíði, gönguferðir, hlaup o.fl. Ég tók mér nokkra klukkutíma í að finnast þetta glatað, en ákvað svo að gera það besta úr stöðunni. Ég fékk vél frá Landspítalanum nokkrum vikum seinna og ákvað ég að gefa vélinni minni nú bara eitthvað nafn og ber hún nafnið Loftur. Það varð alger bylting fyrstu daga okkar Lofts, hann sá til þess að ég svæfi eins og ungabarn og á nokkrum vikum áttaði ég mig á því að ég hafði ekki fengið almennilega hvíld í mörg ár. Á þessum 9 mánuðum sem liðnir eru frá því að ég fékk vélina hef ég ekki fundið fyrir þörf að leggja mig seinnipartinn og vakna úthvíldur alla morgna. En þar sem ég ferðast mikið vegna áhugamála og vélin frá Landspítalanum er frekar stór um sig þá fór ég að skoða hvað væri í boði og fann út að Stoð er að selja ferðasvefnvél. Vélin er ekki mikið stærri en farsími og einstaklega meðfærileg. Þetta mun koma sér mjög vel fyrir mig fyrir sumarið þar sem ég eyði flestum helgum og fríum í að gista í tjaldi, fjallaskálum og við alls konar aðstæður. Ferðavélin mun fá sitt pláss alveg eins og annar búnaður sem ég nota til útivistar, því að án hennar mun é ekki geta verið hér eftir. Munurinn fellst í stærðinni AirMini ferðavélin er lítil og meðfærileg kæfisvefnsvél fyrir þá sem eru á ferðinni. Vélin veitir sömu meðferð og vélin á náttborðinu. Þó að vélin sé lítil er hún mjög öflug og veitir sambærilega meðferð og kæfisvefnsvél sem fólk notar heima. Munurinn felst í stærðinni og því að ekki fylgir með rakabox sem fylla þarf af vatni. Ferðavélin veitir því vatnslausa rakameðferð með sérhæfðum rakafilter. Einkenni kæfisvefns Ása, framkvæmdastjóri Stoðar er hjúkrunarfræðingur með mastersgráðu í svefnrannsóknum. Hún segir einkenni kæfisvefns koma misjafnlega fram hjá fólki.„Kæfisvefn er samheiti yfir einkenni sem lýsa sér þannig að einstaklingar fá endurtekin öndunarstopp að næturlagi og oftast fylgikvilla að degi til, í formi syfju og þreytu. Sumir þola mjög illa röskun á svefni vegna öndunartruflana og lýsa fyrst og fremst svefnleysi, á meðan aðrir eru mjög syfjaðir á daginn. Þriðji hópurinn kemur oft seint í greiningu, en glímir við afleiðingar kæfisvefns á hjarta- og æðakerfið, svo sem háþrýsting, hjartasjúkdóma, gáttaflökt, vélindabakflæði og fleira. Það er mjög gefandi að upplifa þegar fólk, sem verið hefur með skert svefngæði vegna kæfisvefns, fær meðferð við hæfi. Það hreinlega öðlast nýtt líf og lýsir því að vera loks úthvílt og orkumikið fyrir daginn, eins og Ragnar lýsir svo skýrt í sögu sinni“ útskýrir Ása. Frelsi með í ferðalagið Björk Gunnarsdóttir er með BSc.- gráðu í heilbrigðisverkfræði og er kæfisvefnssérfræðingur hjá Stoð. Hún segir stórkostlegt að vera loksins komin með lausn fyrir þá sem þjást af kæfisvefni og vilja litla og handhæga svefnöndunarvél til að ferðast með. „Þeir sem ferðast mikið vegna vinnu sinnar eða sér til skemmtunar hafa verið að kaupa sér vélina. Ég hef lært að þeir sem eru með kæfisvefn og nota kæfisvefnsvél, taka ekki í mál að sofa eina nótt án vélar. Þeir finna strax mun á sér og eru ómögulegir og úrvinda ef þeir sleppa vélinni. Því felst mikið frelsi í því að þurfa ekki að taka með stærri vélina og rakatækið sem er á náttborðinu heldur geta kippt litlu ferðavélinni með í ferðatöskuna.“ Segir Björk. AirMini ferðavélin er mjög einföld í notkun. Vélinni fylgir snjallforrit (app) sem hægt er að sækja í AppStore eða Playstore og gott að vera búið að ná í forritið áður en komið er í tíma til Bjarkar. Einnig þarf fólk að muna að koma með vélina sína og grímu í tímann, svo Björk getir stillt ferðavélina á sömu stillingar og verið er að nota heima. Einnig býður Stoð upp á hleðslubatterí sem hægt er að tengja við vélina eða aðrar kæfisvefnsvélar þar sem rafmagn er ekki til staðar. Mér leið einkennilega - hjartslátturinn var hraður og óreglulegur Stór hluti þeirra sem greinast með kæfisvefn er fólk á besta aldri, í fullri vinnu og fólk sem ferðast og stundar áhugamál sín af kappi. Ragnar Hilmarsson er einn þeirra og deilir hann hér með okkur þeim kaflaskiptum sem urðu í lífi hans eftir að hann vaknaði einn morguninn með óreglulegan hjartaslátt og var greindur með kæfisvefn í kjölfarið. Á stjóri Stoðar og Björk heilbrigðisverkfræðingur. „Loftur sá til þess að ég svæfi eins og ungabarn“, segir Ragnar Hilmarsson eftir að hann var greindur með kæfisvefn. g sa hjúkrunarfræðingur og framkvæmda AirMini er minnsta og hljóðlátasta kæfisvefnsvélin á markaðnum í dag, aðeins 300 grömm og 13,6 sentímetrar á lengd. Allar nánari upplýsingar og til að bóka þjónustutíma í ráðgjöf er að finna á vefsíðu Stoðar, stod.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.