Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 40
Marta María
mm@mbl.is
Waso-línan frá Shiseido byggir sína
framleiðslu á þeirri aðferð, gerðar
meðal annars úr lime og sítrónum
og öðru náttúrulegu góðgæti
en vörur línunnar hafa
slegið í gegn síðustu árin,
einkum hjá yngri kynslóð-
inni.
Waso-línan miðar svolít-
ið á húð sem þarf hjálp til
við að halda hreinni og í
jafnvægi og gefa góðan
raka án þess að húðin verði
of glansandi. Ný krem
og hreinsivörur
hafa bæst við
línuna sem
Smartland
ákvað að skoða
undir stækkun-
arglerinu.
Farðahreins-
irinn Shikulime
framkallar svo-
lítið skemmti-
leg töfrabrögð.
Hann er gel-
kenndur þegar þú
berð hann á þurrt andlitið,
breytist í olíu þegar hann dreifist og
loks í létta hreinsimjólk þegar vatni
er blandað saman við og skilur and-
litið eftir ferskt og hreint þegar
hann er hreinsaður af. Þess má geta
að túban er svolítið skemmtileg,
mjög létt og þægileg að ferðast
með.
Andlitsmaskinn Satocane Pore
Purifying Scrub Mask er einn af
þeim möskum sem henta vel yfir
sumartímann, því þótt hann sé öfl-
ugur og hreinsi bæði og skrúbbi
húðina í senn, þarf hann ekki langan
virkunartíma, aðeins fimm mínútur,
og mjög auðvelt að hreinsa hann af.
Enda ekki að ástæðulausu að
franska útgáfa Vanity Fair mælir
með notkun maskans nú yfir sum-
artímann fyrir húð sem þarf öðru
hverju extra hreinsun á T-svæðinu.
Shikulime-
rakakremið
er eitt af
þessum end-
ingargóðu
ofur-
rakakrem-
um sem má
þó bera á sig
allan sólar-
hringinn,
kvölds og
morgna og á
morgnana er best er
að bera það undir sólar-
vörnina. Eins og aðrar
vörur frá Waso ilmar
kremið af einhverju ei-
lítið exótísku, í þessu tli-
felli límónu, og gerir það
afar aðlaðandi. Það
hentar venjulegri til
blandaðri húð.
Snilldin við næturmaska
er að þú leggst bara og sofnar
og kremin vinna á meðan þú sefur.
Yuzu-C-næturmaskinn ætti ekki að
svíkja þær sem þurfa extra raka en
líkt og með farðahreinsinn þá er
gaman að bera maskann á sig (já,
mörgum finnst hundleiðinlegt að
bera á sig snyrtivörur og þurfa smá
gaman!) en í gelinu eru litlar raka-
kúlur sem springa þegar þeim er
nuddað við húðina. Raunar virðast
gelkenndar snyrtivörur vera svolítið
málið í ár, merkilega mikið af vörum
með gelkenndri áferð, sem gefur
þessa tilfinningu á sumrin sem mað-
ur sækist eftir; að finnast maður
ekki vera með neitt framan í sér.
Hið fullkomna
jafnvægi
Það er óneitanlega eitthvað sem lætur náttúru-
hjartað slá þegar snyrtivörur eru gerðar úr ofur-
fæðu sem í þokkabót japanskir bændur rækta.
Sítrus Sítrónur og lime
eru áberandi í Waso-
línunni frá Shiseido.
Skrúbbur Satpcane Por
Purifying-skrúbbmaskinn
er tilvalinn yfir sumarið.
Raki Shikulime raka-
kremið má bera á sig
allan sólarhringinn.
Himnasending
Yuzu-C-næturmask-
inn svíkur engan.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
Götuskór úr mjúku leðri
Reimaður að framan
Rennilás að innanverðu
Grófur stamur sóli SMÁRALIND
www.skornir.is
Netverslun
skornir.is
Verð 21.995
Stærðir 36-42