Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 67

Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 67
ÍÞRÓTTIR 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 Það hefur sannarlega gustað um Íslendingaliðið Esbjerg, sem leikur í dönsku B-deildinni, eftir að Þjóðverjinn Peter Hyballa tók við stjórnartaumum þess í kjöl- far þess að Ólafur Helgi Krist- jánsson var látinn taka pokann sinn fyrr í sumar. Þegar Hyballa var búinn að vera við stjórnvölinn í örfáar vikur bárust fréttir frá Dan- mörku um að leikmenn vildu losna tafarlaust við nýráðinn aðalþjálfara sinn þar sem hann var sagður beita þá líkamlegu og andlegu ofbeldi. Nokkrum vikum síðar var fjórum leikmönnum liðsins meinað að æfa með aðalliðs- hópnum, þeir máttu æfa af sjálfsdáðum eða með U19-ára liði félagsins. Leikmanna- samtökin í Danmörku skárust í leikinn og tilkynntu þessa ákvörðun til vinnueftirlitsins þar í landi. Hann sagði svo starfi sínu lausu í gær eftir aðeins sjö vikna starf. Hyballa var ekki á því að fara þegjandi og hljóða- laust og sagði við hollenska blaðið AD að hann sjálfur hefði verið fórnarlamb uppreisnar meðal leikmanna liðsins sem hefði orðið til þess að honum var bolað í burtu. Kvaðst Þjóðverjinn hafa verið lagður í einelti þar sem staðarblaðið í Esbjerg hefði til að mynda verið með spjótin á lofti og fundið honum allt til foráttu og leikmennirnir hefðu sent stjórn félagsins bréf til að kvarta undan honum. Hvort heldur sem var – væntanlega er einhver sann- leikur í ásökunum leikmanna og hugsanlega sannleikskorn í ásökunum Hyballa einnig – var það orðið morgunljóst að sam- starfið var andvana fætt. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is fyrri leiknum. Við trúum því að við getum slegið Skotana út og þessum leik fylgir bara tilhlökkun.“ Undirbúningurinn skilar sér Góðum úrslitum í Evrópuleikjum fylgir aukið leikjaálag ef liðum tekst að komast áfram í útsláttarfyr- irkomulaginu. Íslenska knatt- spyrnusumarið er í styttri kant- inum, þótt það sé orðið lengra en áður, og stutt er á milli leikja hjá Breiðabliki þessa dagana. Ef síðustu vikur eru skoðaðar þá lék Breiða- blik gegn Keflavík á sunnudegi, Austria Wien heima á fimmtudegi, Víkingi á mánudegi, Aberdeen á fimmtudegi, Stjörnunni síðasta mánudag og gegn Aberdeen úti í kvöld. Hvað segir Höskuldur um stöð- una á mannskapnum? Eru leikmenn liðsins ekki farnir að verða stífir eða þreyttir? „Á heildina litið erum við bara góðir. Við æfðum gífurlega vel í vetur til þess að mæta því ef við þyrftum að spila tvo til þrjá leiki á viku eins og raunin er orðin. Við æfðum af miklum krafti til að vera ekki með kjálkann hangandi niðri og gasaðir þegar leikjaálagið myndi aukast. Við vildum vera í þeirri stöðu að líkaminn væri búinn að jafna sig þremur dögum eftir leik og myndi höndla álagið. Hingað til hefur þetta tekist að mér finnst. Okkur hefur tekist að halda sömu ákefð í leikjum þótt við séum stundum að spila hér heima, stundum úti, stundum á gervigrasi og stundum á grasi. Gott undirbún- ingstímabil bjó til þetta ásigkomu- lag sem við erum í og taktinn sem okkur tekst að halda. Gögn styðja það eins og hlaupatölur og fleira. Þetta er orðið svo vísindalegt og menn geta ekkert slaka á lengur. Það er alltaf fylgst með manni,“ sagði Höskuldur og glotti en þar vís- aði hann til Catapult-vestanna sem flest úrvalsdeildarlið hérlendis hafa tekið í notkun en í þeim eru GPS- kubbar sem greina allt sem leik- mennirnir gera. Blikarnir ætla að sækja til sigurs á skoskri grundu - Síðari leikur Aberdeen og Breiðabliks í Sambandsdeildinni fer fram í kvöld Í Laugardal Árni Vilhjálmsson skorar úr vítaspyrnu í fyrri leiknum gegn Aberdeen í síðustu viku. FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Fiðringurinn er vafalaust farinn að aukast hjá leikmönnum og stuðn- ingsmönnum Breiðabliks en í kvöld kemur í ljós hvort liðinu takist að komast áfram í Sambandsdeild UEFA í knattspyrnu. Síðari leikur Aberdeen og Breiðabliks í 3.umferð fer fram á Pittodrie Stadium í Skot- landi í kvöld. Aberdeen hafði betur 3:2 í fjör- ugum leik á Laugardalsvelli í síð- ustu viku. Skoska liðið komst þá 2:0 en Blikum tókst að jafna. Aberdeen skoraði sigurmarkið og hefur því eins marks forskot. Fyrir liggur að liðið sem kemst áfram mætir næst sigurvegaranum úr rimmu AEL Li- massol frá Kýpur og Qarabag frá Aserbaídsjan. „Ein af ástæðum þess að maður er í boltanum er þessi gulrót að geta borið sig saman við stóru liðin erlendis. Við förum þarna út hug- aðir og hugrakkir. Þá verður þetta ekkert eðlilega gaman,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, þegar Morgunblaðið ræddi við hann áður en Blikar héldu utan. Höskuldur lítur svo á að rimma liðanna sé galopin eftir fjörugan fyrri leik á Laugardals- velli. „Við ætlum að fara til Skotlands og sækja til sigurs. Engin spurning. Einvígið er galopið og í fyrsta skipti í langan tíma hafa útivallarmörkin ekki auka vægi. Það hentar okkur í þessu tilfelli því þeir skoruðu þrjú í Enska knattspyrnufélagið Leicest- er City er að ganga frá kaupunum á danska miðverðinum Jannik Vest- ergaard frá Southampton. Kaup- verðið er sagt vera 15 milljónir punda. Leicester hefur verið í leit að miðverði eftir að í ljós kom að Frakkinn ungi Wesley Fofana fót- brotnaði í æfingaleik á dögunum. Jonny Evans er auk þess meiddur í um mánuð og því farið að gæta nokkurs miðvarðahallæris hjá Leic- ester. Vestergaard er 29 ára gamall og lék alla sex leiki Danmerkur á Evrópumótinu í sumar. Daninn á leið til Leicester City AFP Leicester Vestergaard er væntan- lega á förum frá Southampton. Þýski knattspyrnuþjálfarinn Peter Hyballa sagði í gær starfi sínu lausu sem aðalþjálfari danska B-deildarliðs- ins Esbjerg, sem Ísak Óli Ólafsson og Andri Rúnar Bjarnason leika með. Hyballa entist aðeins sjö vikur í starfinu eftir að þjálfaraaðferðir hans voru gagnrýndar harðlega. Var hann m.a. sagður beita leikmenn líkamlegu og andlegu ofbeldi. Hyballa sagðist þó sjálfur hafa orð- ið fyrir einelti og að samsæri leik- manna, sem vildu hann burt, hefði á endanum orðið til þess að hann ákvað að láta gott heita. Hættur eftir sjö vikur í starfi Ljósmynd/Esbjerg Hættur Peter Hyballa stoppaði stutt við hjá danska félaginu Esbjerg. Aganefnd KSÍ sektaði í gær Grindavík annars vegar og Þór frá Akureyri hins vegar um 50.000 krónur vegna ummæla þjálfara liðanna eftir tap- leiki í Lengju- deild karla, þeirri næstefstu á Ís- landsmótinu. KSÍ greinir frá því að ummælin séu til þess fallin að skaða ímynd ís- lenskrar knattspyrnu og með þeim hafi verið vegið að heiðarleika dóm- ara. Ummælin komu fram í við- tölum þjálfara liðanna við vefmið- ilinn Fótbolta.net. Orri Freyr Hjaltalín, þjálfari Þórs, var allt annað en sáttur við störf dómarans Guðgeirs Einars- sonar og aðstoðarmanna hans er Þór tapaði fyrir Fram á heimavelli 27. júlí, 0:2. Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur, lét sín ummæli falla um dómarann Helga Mikael Jón- asson og aðstoðarmenn hans eftir 1:2-tap á útivelli gegn Fjölni degi síðar. Grindavík er með 20 stig í 7. sæti deildarinnar og Þór er með 19 stig í 8. sæti og sigla þau hinn svokallaða lygna sjó í deildinni. sport@mbl.is Tveir þjálfarar sektaðir fyrir munnsöfnuð Sigurbjörn Hreiðarsson. Tvö lið sem eru í baráttunni í neðri hluta úrvalsdeildarinnar slógu út tvö önnur úrvalsdeildarlið í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í gær. Joey Gibbs skoraði tvívegis þeg- ar Keflavík vann KA 3:1. Christian Volesky skoraði einnig en Sebast- ian Brebels gerði mark KA. Ísak Snær Þorvaldsson skoraði eina markið þegar ÍA vann FH 1:0 á Akranesi. FH-ingurinn Jónatan Ingi Jónsson fékk rauða spjaldið í leiknum en sumarið er að þróast út í vonbrigði í Kaplakrikanum. Tvö úrvalsdeildarlið til viðbótar komust áfram í gær, Valur og HK, en úrslitin í leik Fylkis og Hauka lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. Húsvíkingar fengu erfitt verkefni þegar þeir heimsóttu Vals- menn á Hlíðarenda og Valur vann 6:0. HK-ingar voru einnig á skot- skónum gegn KFS í Kórnum og unnu 7:1. Völsungur leikur í 2. deild Íslandsmótsins en KFS í 3. deild. Á þriðjudag komust ÍR og Vestri áfram og í kvöld eigast við Reykja- víkurliðin Víkingur og KR. Keflavík og ÍA slógu KA og FH út úr bikarnum Morgunblaðið/Eggert Hlíðarendi Sigurður Egill Lárusson skoraði gegn Völsungi í gær. mannssonar og Hauks Helga Páls- sonar, sem eru orðnir á meðal reyndustu manna liðsins. Jón Axel Guðmundsson og Styrmir Snær Þrastarson eru ekki heldur með. Kristófer Acox kemur hins vegar inn í landsliðið á ný. Íslenska karlalandsliðið í körfu- knattleik mætir Svartfjallalandi í forkeppni HM í dag. Leikið er í Podgorica í Svartfjallalandi en þar verður riðillinn spilaður á nokkrum dögum vegna heimsfaraldursins og sóttvarnaráðstafana. Danmörk er einnig í riðlinum og mun íslenska liðið því leika fjóra leiki í Podgorica. Leikurinn gegn heimamönnum hefst í dag klukkan 18 að íslenskum tíma. Búast má við erfiðum leik enda mikil körfuboltahefð í ríkjum gömlu Júgóslavíu. Svartfjallaland er þó fámennt ríki eins og Ísland en hefur oftar en ekki haft betur á Smþjóðaleikunum. Þá var Svart- fjallaland með hörkulið þegar liðin lentu saman í riðli í undankeppni EM 2012 og vann báða leikina gegn Íslandi. Eins og fram kom fyrr í vikunni saknar íslenska liðið Martins Her- Fyrsti landsleikurinn af fjórum í Svartfjallalandi Morgunblaðið/Eggert Troðsla Kristófer Acox ætti að nýtast í frákastabaráttunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.