Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 69
MENNING 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
V
ígasveit DC-myndasagna-
heimsins, kennd við sjálfs-
víg, Suicide Squad, er nú
snúin aftur og án ákveðins
greinis í þetta sinn. Fyrri mynd frá
árinu 2016, sú sem var með greini,
þótti afleit, eins og sjá má á neikvæð-
um dómum á Rotten Tomatoes og
Metacritic og áttu kannski fáir von á
því að önnur mynd yrði gerð. Sem
betur fer var vanur maður kallaður
til, James Gunn, sá hinn sami og
gerði hina bráðskemmtilegu Guardi-
ans of the Galaxy þar sem sagði einn-
ig af hópi hetja af ýmsu tagi, þeirra á
meðal talandi tré og þvottabirni. Í
Sjálfsvígasveitinni er ekkert tré eða
þvottabjörn en í staðinn talandi
blendingur manns og hákarls. Já,
þetta er þannig mynd og líklega betra
að slökkva á allri rökhugsun áður en
myndin hefst.
Þessi útgáfa af Sjálfsvígasveitinni
er miklu betri en sú fyrri, sem betur
fer. Gunn fær lausan tauminn og það
hefur greinilega borgað sig. Það skal
þó tekið fram að myndin er afar of-
beldisfull, menn eru slitnir í sundur,
étnir, hausar springa og þar fram eft-
ir götunum. Því ber að virða aldurs-
takmarkið og foreldrum ráðið frá því
að fara með börn undir 16 ára aldri á
myndina. Ofbeldið er líka fáránlegt
en subbuskapurinn gerir það að verk-
um að stundum þykir manni nóg um.
Þetta er ekki mynd fyrir klígju-
gjarna, svo mikið er víst.
Í stuttu máli segir í myndinni af
nokkrum ofurglæpamönnum sem eru
bak við lás og slá en er lofað styttingu
á fangelsisdómum taki þeir að sér
lífshættulegt verkefni. Hópurinn er
sendur að eyjunni Corto Maltese þar
sem valdarán hefur átt sér stað og
herforingjastjórn ræður nú yfir risa-
vaxinni geimveru sem stýrt er af
brjáluðum vísindamanni sem nefnist
The Thinker, eða Hugsuðurinn.
Geimveran lítur út eins og kross-
fiskur úr teiknimynd fyrir börn, með
risavaxið auga í miðjunni og getur
auk þess gotið óteljandi litlum kross-
fiskum sem fljúga og festa sig á andlit
fólks og soga úr því lífsorkuna. Við
það vex geimveran og eflist. Já, þetta
er þannig mynd! Geimverunni er
haldið í risavöxnum tanki í tilrauna-
stöðinni Jötunheimum og hún losnar
auðvitað úr prísundinni með tilheyr-
andi mannfalli og eyðileggingu, eins
og við mátti búast.
Ofbeldisorgían hefst strax í byrjun
myndar þegar önnur vígasveit er
stráfelld á strönd Corto Maltese (sú
eyja er ekki til í raun og veru, svo það
komi nú fram). Allir nema hin snar-
klikkaða Harley Quinn (Robbie) sem
er tekin höndum og færð í höll hins
nýja einræðisherra og einnig for-
sprakki hópsins, Rick Flag, sem leit-
ar á náðir uppreisnarmanna. Á sama
tíma læðist önnur vígasveit á land, sú
sem myndin segir af. Fer þar Blood-
sport (Elba) fremstur, lífsþreytt
meistaraskytta og honum til fulltingis
eru Polkadot Man eða Doppumaður-
inn (Dastmalchian), Ratcatcher 2
(Melchior), talandi hákarlinn King
Shark (Stallone) og Peacemaker
(Cena). Þetta er kostulegur og furðu-
legur hópur, Bloodsport og Peace-
maker báðir skyttur (Cena er í kjána-
legasta búningi sem ég hef nokkurn
tíma séð í kvikmynd af þessu tagi),
hákarlinn þjónar þeim eina tilgangi
að éta fólk, Doppumaðurinn skýtur
doppum sem eyða því sem fyrir verð-
ur (!) og Ratcatcher 2 getur stjórnað
rottum. Svo óheppilega vill til að leið-
toginn Bloodsport er með rottufælni
sem býður upp á nokkra brandara.
Óþarfi er að fara nánar út í sögu-
þráðinn, þetta er hreinasta della frá
upphafi til enda en skemmtileg della
þó, spaugið oftast gott og bleksvart.
Þótt ofbeldið sé yfirgengilegt er það
líka notað með gamansömum hætti,
t.d. þegar höfuð manns horfir ótta-
slegið og blikkar augum til bíógesta
úr hákarlskjafti. Harley Quinn er
sem fyrr bráðskemmtileg í túlkun
Robbie, algjörlega samvisku- og sið-
laus að vanda og stendur uppi sem
skemmtilegasta sögupersónan. Þá er
hinn skoski Peter Capaldi kostulega
útlítandi sem Hugsuðurinn, með ein-
hvers konar pípur sem standa út úr
sköllóttu höfðinu (sjá mynd). Cena
þarf svo ekkert að gera til að vera
hlægilegur, með sína risavöxnu hand-
leggsvöðva, ferkantaða andlit og
hjálm á höfði sem líkt er í myndinni
við klósettsetu. Leikstjórinn Gunn
fagnar fáránleikanum í þessu öllu
saman og ýkir eftir bestu getu, enda
eina rétta nálgunin. Það þýðir ekkert
að bjóða upp á dramatík og alvarleika
í svona furðuheimi, eins og maður
finnur fyrir í eina dramatíska atriði
myndarinnar sem snýst um erfiða
æsku og hefði gjarnan mátt sleppa.
Suicide Squad er mikið sjónarspil
og skemmtileg á heildina litið, þrátt
fyrir að skorta persónur sem hægt er
að finna til og halda með. Hér eru
engar hetjur og hið góða tekst ekki á
við hið illa sem er ágætistilbreyting
frá hasar- og ofurhetjuformúlunni.
Ofbeldið og grínið minnir á hina
prýðilegu Deadpool og líkt og í henni
er kjánagangurinn í fyrirrúmi. Inni-
haldið er vissulega lítið og sagan
þunn en hasarinn og fjörið bæta upp
fyrir það.
Fáránleikanum fagnað
Háskaför Sjálfsvígasveitin svonefnda með nokkrum uppreisnarmönnum á Corto Maltese, eyjunni sem er ekki til.
Sambíóin Álfabakka, Kringlunni
og Egilshöll, Háskólabíó, Laug-
arásbíó, Borgarbíó
Suicide Squad bbbmn
Leikstjóri og handritshöfundur: James
Gunn. Byggt á myndasögu Johns Ostr-
anders. Aðalleikarar: Margot Robbie,
Idris Elba, John Cena, Viola Davis, Joel
Kinnaman, Peter Capaldi, Daniela
Melchior, Sylvester Stallone og David
Dastmalchian. Bandaríkin, 2021. 132
mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Vígaleg Harley Quinn er sem fyrr kostuleg í túlkun Margot Robbie.
Hugsuður Skoski leikarinn Peter
Capaldi leikur The Thinker, þ.e.
Hugsuðinn, í Suicide Squad.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
96%
THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL
RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI
GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND
DWAYNE JOHNSON
EMILY BLUNT