Morgunblaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Siglufjörður | Tökur eru hafnar á
nýrri sjónvarpsþáttaröð, Morð í
norðri, sem Silfra Productions
framleiðir fyrir Sjónvarp Símans.
Þóra Karítas Árnadóttir semur
handritið að þáttunum og með-
framleiðandi er Ragnar Jónsson
lögreglumaður.
Í þáttunum, sem fjalla um nor-
ræna glæpasagnaæðið, eða Nordic
noir, verður rætt við tíu norræna
glæpasagnahöfunda, sem eiga það
sameiginlegt að hafa slegið í gegn á
heimsvísu. Að sögn Þóru standa
tökur yfir næstu þrjá mánuði og
fyrsti viðmælandi er Ragnar Jón-
asson. Var rætt við hann á Siglu-
firði á dögunum, eins og meðfylgj-
andi mynd sýnir. Einnig ræðir Þóra
Karítas við Yrsu Sigurðardóttur og
fleiri kollega þeirra Ragnars meðal
norrænna glæpasagnahöfunda.
Þættirnir verða sýndir um
páskana 2022 hjá Sjónvarpi Sím-
ans. Myndatökur og klippingu ann-
ast Steingrímur Jón Þórðarson.
Morð í norðri tekið upp
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Tökur Þóra Karítas Árnadóttir ræðir við Ragnar Jónasson á heimili afa
hans og ömmu á Siglufirði á dögunum. Steingrímur Jón á tökuvélinni.
Eldhúsinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Í aðdraganda kosninga er hulu
iðulega svipt af leyndardómum
sem almenningur þekkti ekki til.
Sigmundur Davíð spurði Katrínu
Jakobsdóttur hversu mörg kynin
væru orðin. Okkur minnti flest að
þau hefðu verið tvö
frá arilds tíð.
- - -
En svo mundum
við að Obama
forseti ákvað í sinni
forsetatíð að hér
eftir teldust kynin
vera 14 í grunninn.
Því hann úrskurðaði
einnig að opinber
salerni yrðu ekki
lengur merkt mynd
karls eða konu.
Obama tilkynnti að
tækist svo til að
karl, staddur í al-
menningsrými, yrði
þar og þá sannfærður um að hann
væri kona þá gilti sú niðurstaða
strax og stæði jafn lengi og þessi
vitund rjátlaðist ekki af manninum.
- - -
Karl, sem þannig uppljómaðist í
konu, t.d. á flugvelli, mætti
ekki takmarkast af salerni merktu
karli og það þótt hann sjálfur væri
afrendur jötunn, þrælskeggjaður
og bassi forhertur.
- - -
Katrín byrjaði smátt í svari sínu
til Sigmundar og sagði að ís-
lensku kynin væru ekki lengur tvö.
Nú væru þau þrjú: kona, karl og
kynlaus. Og bætti því við að lögin
opni á skilgreiningu og á þann
„möguleika að kyn séu fleiri“.
- - -
Katrín segir svo: „Hugtakið kyn
er skilgreint í framangreind-
um lögum sem „safnhugtak sem
nær meðal annars yfir kyn-
einkenni, kyngervi, kynvitund og
kyntjáningu“. Skilgreining kyns
ræðst því ekki eingöngu af líf-
fræði.“
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Eigi er kyn þótt …
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir að endurbætur á húsnæði Foss-
vogsskóla séu í þeim farvegi sem
ákveðinn var í vor. Einnig segist hann
hafa góð orð fyrir því að færanlegu
kennslurýmin verði komin á sinn stað
innan skamms.
„Hönnun úrbótanna á Fossvogs-
skóla hefur undið fram og ég á von á
því eftir einhverjar vikur að fá inn til-
lögur í borgarráð um það hvernig
staðið verði að útboðinu.“
Dagur bendir á að það þurfi að full-
hanna endurbætur áður en þær eru
boðnar út. Sú vinna hafi verið í gangi í
sumar og á sama tíma hafi asbest sem
fannst í gluggakistum hússins verið
fjarlægt.
„Þegar asbest er fjarlægt má ekk-
ert fólk eða framkvæmdir vera í hús-
inu svo það má segja að tíminn hafi
verið nýttur í fjarlægingu asbestsins
og því er nú lokið.“
Dagur kveðst ekki fá betur heyrt en
að stóra verkefnið sé á áætlun þó full-
hönnun sé ekki lokið. „Ég á von á því
að það liggi fyrir á næstu vikum.“
Leiðindapólitík
Eyþóri Arnalds, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, þykir kaldhæðni
fólgin í því að Hjálpræðisherinn hlaupi
nú undir bagga með borginni og taki á
móti nemendum Fossvogsskóla, þegar
borgarstjórn féllst ekki á að veita þeim
lóð endurgjaldslaust á sínum tíma.
„Ég er bara þakklátur Hjálpræðis-
hernum að koma til móts við þetta og
ætla ekki að taka þátt í að draga það
niður í leiðindapólitík,“ segir Dagur,
inntur eftir viðbrögðum við þessum
ummælum Eyþórs. Dagur segir upp-
byggingu Hjálpræðishersins í nýju
húsnæði farsæla og fallega og gott sé
að nemendurnir geti fengið þar inni.
Þakklátur Hjálpræðishernum
- Endurbætur á húsnæði Fossvogsskóla í þeim farvegi sem ákveðinn var í vor