Morgunblaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
Blautfóður.
Fullt af blautfóðri.
Fyrir hunda og ketti.
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Miðflokkurinn vill skila afgangi úr
ríkissjóði til almennings og að hver
ríkisborgari fái greitt auðlindagjald
á fullveldisdaginn 1. desember ár
hvert. Þá leggur flokkurinn einnig
til að allir Íslendingar muni eiga
rétt á almennum heilbrigðisskimun-
um.
Þetta kom fram í ræðu Sigmund-
ar Davíðs Gunnlaugssonar, for-
manns Miðflokksins, á blaðamanna-
fundi sem fór fram í Hörpu í gær,
þar sem kosningaáherslur flokksins
fyrir alþingiskosningar í haust voru
kynntar.
10 ný réttindi fyrir Íslendinga
„Það sem ég kynni nú felur í sér
algerlega nýja nálgun í íslenskum
stjórnmálum. Þetta byggist að
nokkru leyti á reynslu minni af því
hvað þarf til þess að breytingar nái
fram að ganga. Því að breytingar,
sérstaklega breytingar sem skipta
máli, mæta alltaf miklum hindrun-
um þannig að það þarf að finna leið-
ir til að ryðjast í gegnum þær
hindranir,“ sagði Sigmundur í ræðu
sinni. „Að nokkru leyti er þetta
kannski spurning um að setja
stjórnmálin og ríkið í þá stöðu að
þurfa að standa sig.“
Kosningaáherslur Miðflokksins
bera yfirskriftina „10 ný réttindi –
fyrir íslensku þjóðina“ og skiptast í
eftirfarandi hluta: betri ríkisrekst-
ur, auðlindagjald, heilbrigðisskim-
un, eignir, hlutdeild í fjármálakerf-
inu, jafnræði gagnvart ríkinu,
jafnrétti óháð búsetu, jafn réttur
óháð heilsu og aldri, jafnræði í
rekstri og tjáningarfrelsi fyrir alla.
Sumar áherslurnar snúi að því að
endurheimta réttindi sem að ein-
hverju leyti hafi glatast en í öllum
tilvikum sé um að ræða nýja leið til
þess að „tryggja það sem eiga að
vera réttindi okkar allra Íslend-
inga“ en felur um leið í sér „mjög
jákvæða framþróun samfélagsins,“
að sögn Sigmundar.
Eitt af því sem Miðflokkurinn
leggur til er að allir fullorðnir ís-
lenskir ríkisborgarar fái helming af-
gangs úr ríkissjóði endurgreiddan
til jafns á fullveldisdaginn 1. desem-
ber árið á eftir, verði ríkissjóður
rekinn með afgangi. Hinum helm-
ingnum verði varið í endurgreiðslu
skulda ríkissjóðs eða í varasjóð telj-
ist það hagkvæmara.
„Það skapar hvata fyrir stjórn-
málamenn, stofnanir og kerfið að
fara vel með skattfé því menn munu
þurfa eftir árið að útskýra hvers
vegna þeir geta ekki skilað neinu til
baka ef þeir standa sig ekki. Ávinn-
ingurinn deilist jafnt meðal almenn-
ings. Fyrir vikið er þarna kominn
sterkur hvati til að minnka báknið.
Allir hafa þann sameiginlega hvata
ef svo má segja,“ segir Sigmundur.
„Þetta hvetur líka almenning til
þess að taka þátt í verðmætasköp-
un. Allir njóta góðs af þegar fyrir-
tækjunum og ríkinu gengur vel.
Þetta er hvatakerfi fyrir heila þjóð
sem um leið setur stjórnmálamenn í
þá stöðu að fara betur með skattfé
almennings og auka tekjur ríkisins
eins og kostur er því það er auðvit-
að hin hliðin á þessu, hin leiðin til að
ná afgangi í ríkisrekstri er að auka
verðmætasköpun í landinu. Allir
munu hafa hag af því þegar það
tekst.“
Þá boðar Miðflokkurinn nýja
nálgun á gjaldtöku vegna auðlinda
sem felur í sér að hver ríkisborgari
fái einnig greitt auðlindagjald á full-
veldisdaginn 1. desember ár hvert.
„Þá eru stjórnvöld komin í þá
stöðu að loksins þurfa að klára mál-
ið og leysa innheimtuna til þess að
standa undir gjaldinu sem er skilað
til Íslendinga á fullveldisdaginn og í
upphafi jólamánaðar hvers árs,“
segir Sigmundur. „Það er líka mik-
ilvægt að fyrirkomulagið verði til
þess fallið að auðlindanýting sé
áfram hagkvæm. Menn sjái sér hag
í því að gera sem mest úr auðlind-
inni. Búa til sem mest verðmæti.“
Þetta mun bjarga mannslífum
Einnig er það stefna flokksins að
tryggja rétt allra landsmanna á al-
mennum og reglulegum heilbrigð-
isskimunum og leggur flokkurinn til
að slíku skimunarferli verði komið á
hér hér á landi. Það eigi á endanum
að spara peninga fyrir heilbrigðis-
kerfið og bjarga mannslífum, að
sögn Sigmundar.
„Þeir sem eru 40 ára og eldri fái
boð á þriggja ára fresti í almenna
heilbrigðisskimun. Ef menn telja
ástæðu til þá sé hægt að kalla eftir
því oftar og þeir sem eru yngri en
40 ára geta þá sóst eftir þessu líka
ef sérstakar ástæður kalla á það,“
segir hann. „Þetta hefur forvarn-
argildi og hjálpar til við að finna
hætturnar. Fyrir vikið verður auð-
veldara og ódýrara að takast á við
vandamálin þegar þau finnast en
það sem skiptir hvað mestu máli er
að þetta mun bjarga mannslífum.“
Miðflokkurinn boðar nýja nálgun
- Vilja skila afgangi úr ríkissjóði til almennings og að hver ríkisborgari fái greitt auðlindagjald ár hvert
- Leggja til að allir Íslendingar, 40 ára og eldri, muni eiga rétt á reglulegum heilbrigðisskimunum
Morgunblaðið/Eggert
Kosningastefna Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kynnti kosningastefnu flokksins á blaðamannafundi í Kaldalóni í Hörpu í gær.
Tómas Ellert Tómasson, bygg-
ingarverkfræðingur og bæjar-
fulltrúi í Árborg, hefur verið ráð-
inn kosningastjóri Miðflokksins
á landsvísu vegna þingkosning-
anna 25. september. Í tilkynn-
ingu segir að Tómas Ellert hafi
yfirgripsmikla þekkingu á mann-
virkjagerð ásamt víðtækri
reynslu af stjórnsýslunni í gegn-
um störf sín sem bæjarfulltrúi
og áður verkefnastjóri hjá
Reykjavíkurborg. Miðflokknum
sé mikill fengur í að fá Tómas
Ellert til starfa í kosningabarátt-
unni, m.a. vegna vegna þekking-
ar hans á mannvirkjagerð og
framkvæmdum, sem nýtast muni
við uppbyggingu þjóðarleik-
vanga. Einnig við gerð sam-
göngumannvirkja svo sem
Sundabrautar og fleiri verkefni
innan og til og frá borginni, og
einnig endurreisn Reykjavíkur-
flugvallar. Tómas Ellert skipar
að auki 2. sæti Miðflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi norður.
Þá hefur Vigdís Hauksdóttir,
borgarfulltrúi Miðflokksins, verið
ráðin kosningastjóri í Reykjavík.
„Frambjóðendur Miðflokksins í
Reykjavíkurkjördæmunum eru
afar ánægðir með ráðninguna og
eru sannfærðir um að reynsla og
slagkraftur Vigdísar muni skila
sér í verðskulduðum kosninga-
sigri,“ segir í tilkynningu.
Ráða kosninga-
stjóra í Reykjavík
- Tómas Ellert og Vigdís hjá Miðflokki
Tómas Ellert
Tómasson
Vigdís
Hauksdóttir
2021
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is