Morgunblaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
Götuskór úr mjúku leðri
Reimaður að framan
Rennilás að innanverðu
Grófur stamur sóli SMÁRALIND
www.skornir.is
Netverslun
skornir.is
Verð 19.995
Stærðir 36-41
Áhrifavaldar verða æ meira áberandi í umræðunni
og vekja sífellt meiri athygli. Áhrifavaldar munu
ekki hverfa í bráð og verða fleiri og tekjuhærri á
næstu árum.
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
„Áhrifavaldar eru fólk sem er með
ákveðið fylgi á samfélagsmiðlum og
með ákveðinn trúverðugleika og
áreiðanleika gagnvart sínum fylgj-
endum,“ segir Gunnar Birgisson hjá
Swipe Media. Swipe Media stofnaði
Gunnar árið 2018 með Nökkva Fjal-
ari Orrasyni en þeir vinna með
áhrifavöldum og fyrirtækjum.
Áhrifavaldar fengu sérflokk í
tekjublöðum bæði DV og Frjálsrar
verslunar í síðustu viku. Ekki er til
nein ein skilgreining á orðinu áhrifa-
valdur og ekki margir sem gera sér
fyllilega grein fyrir hvað áhrifavald-
ar eru og hvað þeir gera.
Hin launaða starf áhrifavaldsins
er að auglýsa vörur og segja fylgj-
endum sínum á samfélagsmiðlum frá
þeim. Flestir nota Instagram sem
sinn aðalvettvang en nokkrir hafa
einnig fært sig yfir á TikTok. Mikil
vinna liggur þó að baki því að geta
fengið vörur frá fyrirtækjum sendar
og fjalla um þær. Áhrifavaldurinn
verður að hafa byggt upp fylgj-
endahóp og traust verður að hafa
myndast á milli áhrifavaldsins og
þeirra sem hann hefur áhrif á.
„Það þarf að vera einhver ástæða
fyrir því að fólk velur að fylgja þess-
um tiltekna áhrifavaldi,“ segir Gunn-
ar. Áhrifavaldar sýna frá sínu dag-
lega lífi, deila ráðum, ræða við
fylgjendur sína um ýmis málefni, fá
ráð frá þeim og hleypa þeim bók-
staflega inn í stofu heima hjá sér.
Áhrifavaldar vinna með fyrir-
tækjum og eru eins konar framleng-
ing á markaðsdeild fyrirtækisins.
Gunnar og samstarfsfólk hann hjá
Swipe Media vinna að því að koma á
sambandi milli einstaklinga og fyrir-
tækja. Í gegnum samstarf við fyrir-
tæki afla áhrifavaldar svo tekna og
þessar tekjur þarf að gefa upp til
skatts. Þar undir falla vörur sem
fyrirtæki senda áhrifavöldum til um-
fjöllunar, gjafir og afnot af vörum
eins og til dæmis bifreiðum.
Flestir áhrifavaldar á snærum
Swipe eru aðeins áhrifavaldar og
vinna ekki aðra launaða vinnu. Hins
vegar hafa þeir haft tækifæri til að
nýta vettvang sinn í að skapa eigin
vörumerki. Áhrifavaldurinn Lína
Birgitta Sigurðardóttir hefur til
dæmis stofnað sitt eigið íþrótta-
vörumerki, Define The Line Sport.
Lína er með um 24 þúsund fylgj-
endur á Instagram.
Meira en bara auglýsing
Flestir eru sammála um að áhrifa-
valdar séu meira en bara auglýs-
endur á samfélagsmiðlum því þeir
deila stórum hluta af sínu persónu-
lega lífi á samfélagsmiðlinum. Og
það er lykillinn að velgengni á sam-
félagsmiðlum. „Að mínu mati er góð-
ur áhrifavaldur einhver sem hefur
byggt upp traust fylgjenda sinna í
gegnum tíðina, til dæmis með því að
vera hreinskilinn og persónulegur.
Þannig hefur einstaklingurinn byggt
upp gott orðspor meðal fylgjendanna
um að hann segi sína raunverulegu
skoðun og fólk treystir því,“ segir
Hafdís Rós Jóhannesdóttir, ráðgjafi
í almannatengslum hjá Góðum sam-
skiptum.
Hafdís bendir á að áhrifavaldar
hafi lengi verið til og vörumerki nýtt
sér samstarf við þá, eins og til dæmis
íþróttafólk, leikara og fyrirsætur.
Með tilkomu samfélagsmiðla hefur
fólk hins vegar sinn eigin vettvang
þar sem það getur aukið fylgi sitt.
„Það er ekki aðalatriðið hversu
marga fylgjendur áhrifavaldur er
með heldur skiptir meira máli
hversu mikils trausts hann nýtur hjá
fylgjendum sínum og hvort þetta
traust sé auðveldlega yfirfæranlegt á
viðkomandi vöru eða vörumerki.
Eins og öll samskipti á opinberum
vettvangi byggist þetta á trausti og
trúverðugleika og áhrifin sem áhrifa-
valdarnir geta haft á kauphegðun er
í beinu sambandi við hversu trúverð-
ugir þeir eru í augum fylgjenda sinna
og í framsetningu á samstarfi við
vörumerki,“ segir Hafdís.
Hafdís segir að fyrirtæki, áhrifa-
valdar og neytendur séu komnir með
ágæta reynslu af starfseminni.
Áhrifavaldar hafa lært að verðleggja
sig hærra og takmarka fjölda vöru-
merkja sem þeir vinna með.
„Okkar reynsla er að íslensk vöru-
merki velji oftast að vinna með
áhrifavöldum sem hafa færri en
dyggari fylgjendur og þeim sem eru
mjög afkastamiklir í sinni efnisfram-
leiðslu. Til dæmis eru áhrifavaldar
sem deila uppskriftum eða heim-
ilisráðum mjög vinsælir hjá framleið-
endum og heildsölum. Fyrirtækin
kynnast þessum áhrifavöldum í
gegnum samfélagsmiðla og sjá teng-
ingarmöguleika við sín vörumerki
eða viðskiptavinahópa,“ segir Haf-
dís. Á meðal vinsælustu áhrifavalda í
þeim flokki eru til dæmis Sólrún
Diego og Linda Benediktsdóttir. Sól-
rún hefur sýnt frá þrifum á heimili
sínu í nokkur ár og gefið fylgjendum
sínum góð ráð. Þá hefur hún einnig
gefið út bók um skipulag heimilisins.
Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar
verslunar var hún með 525 þúsund á
mánuði á síðasta ári og er með 44
þúsund fylgjendur á Instagram.
Linda er fyrst og fremst í eldhús-
inu og gefur út fjölda uppskrifta á
mánuði. Hún heldur einnig úti upp-
skriftasíðu, er í samstarfi við stærstu
heildsala hér á landi og vinnur nú að
því að gefa út uppskriftabók. Hún
var með 802 þúsund í tekjur á mán-
uði samkvæmt tekjublaði Frjálsrar
verslunar og er með 27 þúsund fylgj-
endur á Instagram.
Ekki á útleið
Þetta er ekki fyrsta skipti sem
áhrifavaldarnir komast á blað í
tekjublöðum og ekki í síðasta skipti
að mati Hafdísar. Í tekjublaði DV
var Guðmundur Birkir Pálsson, kíró-
praktor og áhrifavaldur tekjuhæstur
með 1,2 milljónir í tekjur á mánuði á
síðasta ári. Í tekjublaði Frjálsrar
verslunar var klámstjarnan Klara
Sif Magnúsdóttir tekjuhæst með
rúma milljón á mánuði. „Ég held að
þessi flokkur sé kominn til að vera og
muni jafnvel stækka á næstu árum.
Stafræn markaðssetning er fram-
tíðin og áhrifavaldar eru stór hluti af
henni. Ég hugsa að það verði fleiri
með hærri laun og fólk á fleiri svið-
um að búa til efni. Við sjáum efnis-
framleiðslu-efnahaginn (e. creator
economy) stækka í sífellu og það
verða stöðugt til nýir miðlar sem
gera fólki kleift að fá tekjur fyrir efni
sem það framleiðir,“ segir Hafdís.
Áhrifavaldar munu þó að hennar
mati ekki taka yfir auglýsingamark-
aðinn og valda því að fyrirtæki hætti
að auglýsa með hefðbundnum hætti í
fjölmiðlum til dæmis. Hún sér frekar
fyrir sér að fyrirtæki muni halda
áfram að nýta áhrifavalda í bland við
aðrar aðferðir. „Ég held að athyglin
muni halda áfram að dreifast á fleiri
aðila, bæði minni fjölmiðla og áhrifa-
valda. Við sjáum að það er strax orð-
ið þannig að youtubestjörnur eru að
segja okkur hvernig staðan er í Afg-
anistan. Fólk treystir þeim sem það
fylgist með hverju sinni,“ segir Haf-
dís. Áhrifavaldarnir gætu hins vegar
farið að taka stærri sneið af kökunni
af auglýsingastofum því þeir eru í
beinu sambandi við fyrirtækin og
framleiða sjálfir efni sem gæti flokk-
ast sem sjónvarpsauglýsingar.
„Áhrifavaldar hafa ákveðinn trú-
verðugleika sem þriðji aðili, eins og
almannatengsl hafa haft í gegnum
tíðina. Þar sem upplýsingarnar
koma frá þriðja aðila, en ekki fyrir-
tækinu sjálfu, finnst neytendum þær
oft trúverðugri. Ef fyrirtæki fær í lið
með sér áhrifavald sem hefur unnið
sér inn traustan fylgjendahóp þá
trúi ég að það geti haft góð áhrif á
vörumerkið og aukið sölu,“ segir
Hafdís.
Hvað eru
áhrifavaldar?
Áhrifavaldar Linda Benediktsdóttir, Sólrún Diego, Guðmundur Birkir Pálsson og Lína Birgitta Sigurðardóttir.
Hafdís Rós
Jóhannesdóttir
Gunnar
Birgisson
Áhrifavaldar þurfa að fylgja lögum um auglýsingar.
Þar er kveðið á um að auglýsingar skuli vera skýrt að-
greindar frá öðru efni. Þegar áhrifavaldar fóru fyrst
að skjóta upp kollinum hér á landi bar nokkuð á því
að auglýsingar væru ekki nógu vel aðgreindar og árið
2015 gaf Neytendastofa út leiðbeiningar fyrir áhrifa-
valda. Matthildur Sveinsdóttir, sviðstjóri neytenda-
réttarsviðs hjá Neytendastofu, segir mikla vitundar-
vakningu hafa orðið um nauðsyn þess að merkja
auglýsingar. „Þótt Neytendastofu berist ennþá tölu-
vert af ábendingum um ómerktar auglýsingar sýnist
okkur sífellt fleiri merkja auglýsingar sínar skýrt og
greinilega. Að þessu leyti hafa umfjöllun í fjölmiðlum og fjöldi at-
hugasemda frá þeim sem auglýsingarnar beinast að haft mikið að segja,“
segir Matthildur. Neytendastofa er ekki með virkt eftirlit með áhrifavöld-
um heldur vinnur út frá ábendingum frá notendum. Þá sendir hún áhrifa-
völdum og auglýsendum ábendingar um hvað má betur fara.
Duldar auglýsingar
NEYTENDASTOFA FYLGIST MEÐ
Matthildur
Sveinsdóttir