Morgunblaðið - 26.08.2021, Síða 53

Morgunblaðið - 26.08.2021, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 Götuskór úr mjúku leðri Reimaður að framan Rennilás að innanverðu Grófur stamur sóli SMÁRALIND www.skornir.is Netverslun skornir.is Verð 19.995 Stærðir 36-41 Áhrifavaldar verða æ meira áberandi í umræðunni og vekja sífellt meiri athygli. Áhrifavaldar munu ekki hverfa í bráð og verða fleiri og tekjuhærri á næstu árum. Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is „Áhrifavaldar eru fólk sem er með ákveðið fylgi á samfélagsmiðlum og með ákveðinn trúverðugleika og áreiðanleika gagnvart sínum fylgj- endum,“ segir Gunnar Birgisson hjá Swipe Media. Swipe Media stofnaði Gunnar árið 2018 með Nökkva Fjal- ari Orrasyni en þeir vinna með áhrifavöldum og fyrirtækjum. Áhrifavaldar fengu sérflokk í tekjublöðum bæði DV og Frjálsrar verslunar í síðustu viku. Ekki er til nein ein skilgreining á orðinu áhrifa- valdur og ekki margir sem gera sér fyllilega grein fyrir hvað áhrifavald- ar eru og hvað þeir gera. Hin launaða starf áhrifavaldsins er að auglýsa vörur og segja fylgj- endum sínum á samfélagsmiðlum frá þeim. Flestir nota Instagram sem sinn aðalvettvang en nokkrir hafa einnig fært sig yfir á TikTok. Mikil vinna liggur þó að baki því að geta fengið vörur frá fyrirtækjum sendar og fjalla um þær. Áhrifavaldurinn verður að hafa byggt upp fylgj- endahóp og traust verður að hafa myndast á milli áhrifavaldsins og þeirra sem hann hefur áhrif á. „Það þarf að vera einhver ástæða fyrir því að fólk velur að fylgja þess- um tiltekna áhrifavaldi,“ segir Gunn- ar. Áhrifavaldar sýna frá sínu dag- lega lífi, deila ráðum, ræða við fylgjendur sína um ýmis málefni, fá ráð frá þeim og hleypa þeim bók- staflega inn í stofu heima hjá sér. Áhrifavaldar vinna með fyrir- tækjum og eru eins konar framleng- ing á markaðsdeild fyrirtækisins. Gunnar og samstarfsfólk hann hjá Swipe Media vinna að því að koma á sambandi milli einstaklinga og fyrir- tækja. Í gegnum samstarf við fyrir- tæki afla áhrifavaldar svo tekna og þessar tekjur þarf að gefa upp til skatts. Þar undir falla vörur sem fyrirtæki senda áhrifavöldum til um- fjöllunar, gjafir og afnot af vörum eins og til dæmis bifreiðum. Flestir áhrifavaldar á snærum Swipe eru aðeins áhrifavaldar og vinna ekki aðra launaða vinnu. Hins vegar hafa þeir haft tækifæri til að nýta vettvang sinn í að skapa eigin vörumerki. Áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir hefur til dæmis stofnað sitt eigið íþrótta- vörumerki, Define The Line Sport. Lína er með um 24 þúsund fylgj- endur á Instagram. Meira en bara auglýsing Flestir eru sammála um að áhrifa- valdar séu meira en bara auglýs- endur á samfélagsmiðlum því þeir deila stórum hluta af sínu persónu- lega lífi á samfélagsmiðlinum. Og það er lykillinn að velgengni á sam- félagsmiðlum. „Að mínu mati er góð- ur áhrifavaldur einhver sem hefur byggt upp traust fylgjenda sinna í gegnum tíðina, til dæmis með því að vera hreinskilinn og persónulegur. Þannig hefur einstaklingurinn byggt upp gott orðspor meðal fylgjendanna um að hann segi sína raunverulegu skoðun og fólk treystir því,“ segir Hafdís Rós Jóhannesdóttir, ráðgjafi í almannatengslum hjá Góðum sam- skiptum. Hafdís bendir á að áhrifavaldar hafi lengi verið til og vörumerki nýtt sér samstarf við þá, eins og til dæmis íþróttafólk, leikara og fyrirsætur. Með tilkomu samfélagsmiðla hefur fólk hins vegar sinn eigin vettvang þar sem það getur aukið fylgi sitt. „Það er ekki aðalatriðið hversu marga fylgjendur áhrifavaldur er með heldur skiptir meira máli hversu mikils trausts hann nýtur hjá fylgjendum sínum og hvort þetta traust sé auðveldlega yfirfæranlegt á viðkomandi vöru eða vörumerki. Eins og öll samskipti á opinberum vettvangi byggist þetta á trausti og trúverðugleika og áhrifin sem áhrifa- valdarnir geta haft á kauphegðun er í beinu sambandi við hversu trúverð- ugir þeir eru í augum fylgjenda sinna og í framsetningu á samstarfi við vörumerki,“ segir Hafdís. Hafdís segir að fyrirtæki, áhrifa- valdar og neytendur séu komnir með ágæta reynslu af starfseminni. Áhrifavaldar hafa lært að verðleggja sig hærra og takmarka fjölda vöru- merkja sem þeir vinna með. „Okkar reynsla er að íslensk vöru- merki velji oftast að vinna með áhrifavöldum sem hafa færri en dyggari fylgjendur og þeim sem eru mjög afkastamiklir í sinni efnisfram- leiðslu. Til dæmis eru áhrifavaldar sem deila uppskriftum eða heim- ilisráðum mjög vinsælir hjá framleið- endum og heildsölum. Fyrirtækin kynnast þessum áhrifavöldum í gegnum samfélagsmiðla og sjá teng- ingarmöguleika við sín vörumerki eða viðskiptavinahópa,“ segir Haf- dís. Á meðal vinsælustu áhrifavalda í þeim flokki eru til dæmis Sólrún Diego og Linda Benediktsdóttir. Sól- rún hefur sýnt frá þrifum á heimili sínu í nokkur ár og gefið fylgjendum sínum góð ráð. Þá hefur hún einnig gefið út bók um skipulag heimilisins. Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar var hún með 525 þúsund á mánuði á síðasta ári og er með 44 þúsund fylgjendur á Instagram. Linda er fyrst og fremst í eldhús- inu og gefur út fjölda uppskrifta á mánuði. Hún heldur einnig úti upp- skriftasíðu, er í samstarfi við stærstu heildsala hér á landi og vinnur nú að því að gefa út uppskriftabók. Hún var með 802 þúsund í tekjur á mán- uði samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar og er með 27 þúsund fylgj- endur á Instagram. Ekki á útleið Þetta er ekki fyrsta skipti sem áhrifavaldarnir komast á blað í tekjublöðum og ekki í síðasta skipti að mati Hafdísar. Í tekjublaði DV var Guðmundur Birkir Pálsson, kíró- praktor og áhrifavaldur tekjuhæstur með 1,2 milljónir í tekjur á mánuði á síðasta ári. Í tekjublaði Frjálsrar verslunar var klámstjarnan Klara Sif Magnúsdóttir tekjuhæst með rúma milljón á mánuði. „Ég held að þessi flokkur sé kominn til að vera og muni jafnvel stækka á næstu árum. Stafræn markaðssetning er fram- tíðin og áhrifavaldar eru stór hluti af henni. Ég hugsa að það verði fleiri með hærri laun og fólk á fleiri svið- um að búa til efni. Við sjáum efnis- framleiðslu-efnahaginn (e. creator economy) stækka í sífellu og það verða stöðugt til nýir miðlar sem gera fólki kleift að fá tekjur fyrir efni sem það framleiðir,“ segir Hafdís. Áhrifavaldar munu þó að hennar mati ekki taka yfir auglýsingamark- aðinn og valda því að fyrirtæki hætti að auglýsa með hefðbundnum hætti í fjölmiðlum til dæmis. Hún sér frekar fyrir sér að fyrirtæki muni halda áfram að nýta áhrifavalda í bland við aðrar aðferðir. „Ég held að athyglin muni halda áfram að dreifast á fleiri aðila, bæði minni fjölmiðla og áhrifa- valda. Við sjáum að það er strax orð- ið þannig að youtubestjörnur eru að segja okkur hvernig staðan er í Afg- anistan. Fólk treystir þeim sem það fylgist með hverju sinni,“ segir Haf- dís. Áhrifavaldarnir gætu hins vegar farið að taka stærri sneið af kökunni af auglýsingastofum því þeir eru í beinu sambandi við fyrirtækin og framleiða sjálfir efni sem gæti flokk- ast sem sjónvarpsauglýsingar. „Áhrifavaldar hafa ákveðinn trú- verðugleika sem þriðji aðili, eins og almannatengsl hafa haft í gegnum tíðina. Þar sem upplýsingarnar koma frá þriðja aðila, en ekki fyrir- tækinu sjálfu, finnst neytendum þær oft trúverðugri. Ef fyrirtæki fær í lið með sér áhrifavald sem hefur unnið sér inn traustan fylgjendahóp þá trúi ég að það geti haft góð áhrif á vörumerkið og aukið sölu,“ segir Hafdís. Hvað eru áhrifavaldar? Áhrifavaldar Linda Benediktsdóttir, Sólrún Diego, Guðmundur Birkir Pálsson og Lína Birgitta Sigurðardóttir. Hafdís Rós Jóhannesdóttir Gunnar Birgisson Áhrifavaldar þurfa að fylgja lögum um auglýsingar. Þar er kveðið á um að auglýsingar skuli vera skýrt að- greindar frá öðru efni. Þegar áhrifavaldar fóru fyrst að skjóta upp kollinum hér á landi bar nokkuð á því að auglýsingar væru ekki nógu vel aðgreindar og árið 2015 gaf Neytendastofa út leiðbeiningar fyrir áhrifa- valda. Matthildur Sveinsdóttir, sviðstjóri neytenda- réttarsviðs hjá Neytendastofu, segir mikla vitundar- vakningu hafa orðið um nauðsyn þess að merkja auglýsingar. „Þótt Neytendastofu berist ennþá tölu- vert af ábendingum um ómerktar auglýsingar sýnist okkur sífellt fleiri merkja auglýsingar sínar skýrt og greinilega. Að þessu leyti hafa umfjöllun í fjölmiðlum og fjöldi at- hugasemda frá þeim sem auglýsingarnar beinast að haft mikið að segja,“ segir Matthildur. Neytendastofa er ekki með virkt eftirlit með áhrifavöld- um heldur vinnur út frá ábendingum frá notendum. Þá sendir hún áhrifa- völdum og auglýsendum ábendingar um hvað má betur fara. Duldar auglýsingar NEYTENDASTOFA FYLGIST MEÐ Matthildur Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.