Morgunblaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími
8:00-16:30
Veitingamenn athugið!
Við sérhæfum okkur í þjónustu fyrir veitingahús
Dásamleg holl möndlukókos-
smyrja með döðlum
1 poki MUNA-möndlur
35 g eða 1 dl MUNA-kókosmjöl
7 stk. MUNA-döðlur
1 tsk. gróft salt
1 msk. MUNA-kókosolía, lyktar- og
bragðlaus (má sleppa)
1 dós kókosmjólk
Aðferð
Byrjið á að setja möndlurnar í
matvinnsluvél og mala þar til þær
eru orðnar að fínu dufti.
Bætið þá kókosmjöli og kókos-
olíu út í ásamt salti og haldið áfram
að mala þar til verður mjög fínt
duft.
Klippið þá döðlurnar út á og
setjið aftur í gang þar til verður að
þykkum massa.
Bætið þá þykka laginu ofan af
kókosmjólkinni út á og maukið þar
til verður að þykkum massa sem
líkist hummus.
Ég notaði svo þunna lagið af
kókosmjólkinni til að þynna
massann en þið metið hversu
þykka þið viljið hafa smyrjuna. Ég
notaði næstum alla dósina af kók-
osmjólkinni og mín smyrja líktist
mest þykkum hummus.
Geymist í kæli allt upp í viku til
10 daga.
Æðislegir og einfaldir sítrónu-
kókosorkuboltar
1 poki eða 200 g MUNA-kasjúhnetur
½ poki eða 100 g MUNA-kókosmjöl
Börkur af 2 sítrónum (raspið bara
gula lagið ekki fara ofan í hvíta)
safi úr ½ sítrónu
1 tsk. gróft salt
3 msk. MUNA-agavesíróp
2 msk. af þykka laginu af
kókosmjólk í dós
2 msk. af þunna vatninu af
kókosmjólk í dós
smá MUNA-kókosmjöl til að
velta upp úr
Aðferð
Hér þarf ekki að bleyta upp
kasjúhnetur fyrst heldur eru þær
settar beint í matvinnsluvél úr pok-
anum.
Gott er að vera búin að setja inn
í ísskáp eina dós af kókosmjólk áð-
ur en kúlurnar eru gerðar svo
þykka lagið setjist pottþétt upp á
yfirborðið en oftast er það nú
þannig þó dósin fari ekki í ísskáp
en betra að vera viss.
Nú skuluð þið setja öll hráefni í
þeirri röð sem þau eru talin upp
nema auka kókosmjölið til að velta
upp úr í matvinnsluvél.
Maukið saman þar til er orðið
klístrað og hægt að móta úr því
kúlur.
Passið að mauka ekki of mikið,
þá verður það að smjöri, mótið nú
kúlur úr massanum og veltið upp
úr kókosmjöli (ekki hafa áhyggjur
ef ykkur finnst þær linar því þær
stífna í ísskáp).
Ég hafði mínar nokkuð stórar
eða aðeins minni en borðtenniskúlu
en þið getið haft þær minni líka
eins og venjulegar kókoskúlur.
Geymið svo í kæli, en þær eru
bestar kaldar og þegar þær hafa
stífnað svolítið í kælinum.
Hollustubitar Maríu Gomez
Nú eru skólarnir byrjaðir á ný og margir að huga að góðu nesti handa heim-
ilisfólki. María Gomez galdrar hér fram tvær uppskriftir sem eru hvor annarri
girnilegri. Annars vegar erum við með möndlukókossmyrju með döðlum sem
er fullkomin til þess að smyrja ofan á brauð – nú eða á pönnukökur eða inn í
snúða. Síðan eru það sítrónukókoskúlurnar sem eru fullkomnar til að eiga í
kæli eða setja í nestisboxið. Einstaklega orkugefandi, hollar og bragðgóðar.
Spennandi hráefni Kókosmjólkin gerir ótrúlega mikið fyrir uppskriftina.
Eins og hentar Hægt er að hafa kúlurnar mun minni og gera þá fleiri.
Ljósmynd/María Gomez
Sælkerabiti Við
hvetjum ykkur til að
prófa. Uppskriftin er
einföld og ein-
staklega girnileg.