Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
Skeifan 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Kertastjakinn
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samorka telur að þurfi um 300
megavött af rafafli til orkuskipta í
samgöngum hér á landi, til að ná
markmiðum Parísarsáttmálans fyrir
árið 2030. Ef ganga á alla leið þurfi
1200 MW af grænni orku til að leysa
jarðefnaeldsneytið af hólmi í sam-
göngum á landi, í lofti og á sjó, hér
innanlands. Enn meira ef horft er til
millilandasamgangna. Fram-
kvæmdastjóri Samorku segir að til
þess að orkuskipin verði mögulegt
þurfi að efla innviði í raforkuflutn-
ingi og nýtt lagaumhverfi komi í stað
rammaáætlunar.
„Við viljum minna á mikilvægi
orku- og veitumála, ekki síst orku-
þörf heimila og atvinnulífs og þau
grænu tækifæri sem felast í nýtingu
grænu orkunnar. Í leiðinni viljum við
minna á að í baráttunni í loftslags-
málum er græn orka lykillinn að
orkuskiptum. Til þess að uppfylla
orkuþörf, hvort heldur er fyrir heim-
ili, atvinnulíf eða orkuskipti þá þarf
nægt framboð af grænni orku á hag-
kvæmu verði og góða innviði um allt
land. Þess vegna er mikilvægt að
hafa orkuþörf í huga þegar verið að
ræða þessi mál og taka ákvarðanir,“
segir Páll Erland, framkvæmda-
stjóri Samorku sem er samtök orku-
og veitufyrirtækja á Íslandi. Sam-
tökin kynntu í gær áherslur sínar
með yfirskriftinni „Tölum um græna
framtíð“ og vilja með því koma inn í
umræðuna um orku- og veitumál
fyrir komandi alþingiskosningar.
Þarf 300 MW til orkuskipta
Mikil orka er flutt inn í dag í formi
jarðefnaeldsneytis og því þarf um-
talsvert af grænni orku í staðinn til
að ná markmiðum Parísarsamkomu-
lagsins um orkuskipti í samgöngum
fyrir árið 2030. Samkvæmt grein-
ingu sem Samorka lét gera þarf um
300 megavött af rafafli til þess. Það
samsvarar rúmlega uppsettu afli
Búrfellsstöðvar. Ef ganga á alla leið
þarf 1200 MW til að leysa jarðefna-
eldsneyti alveg af hólmi í sam-
göngum á landi, í lofti og á sjó, hér
innanlands. Það svarar til nærri
tveggja Kárahnjúkavirkjana. Enn
meira þarf til ef horft er til milli-
landasamgangna, það er að segja
flugs og farskipa. Páll bendir á að
einnig þurfi aukna orku svo fyrir-
tæki og heimili geti vaxið og dafnað.
„Innviðirnir, sérstaklega flutn-
ingskerfi raforku og dreifikerfi, þarf
að hafa svigrúm til að þróast í takti
við þessa aukningu. Það sama á við
um grænu orkuframleiðsluna, bæði í
raforku og ekki síður í heitu vatni
sem er ein mikilvægasta uppspretta
orku í landinu,“ segir Páll og bendir
á að til þess að ná þessu þurfi að
bæta núverandi lagaumhverfi.
Hann segir að þurfi að losa um
flöskuhálsa í flutningskerfi raf-
magns og horfa til þess að dreifiveit-
ur geti eflt sín kerfi til að taka við
auknu álagi. Hitaveitur þurfi gott að-
gengi að jarðhitasvæðum.
Þarf skilvirkari umgjörð
„Við þurfum nýja og skilvirkari
umgjörð í stað þeirrar sem við nú bú-
um við í ljósi þess að það eru tíu ár
síðan síðasta rammaáætlun var sam-
þykkt á Alþingi. Síðan þá hafa þrír
umhverfisráðherrar lagt þriðja
áfanga rammaáætlunar fyrir þingið
en það hefur ekki enn treyst sér til
að afgreiða hana. Það sjá allir að
þetta fyrirkomulag er ekki líklegt til
að stuðla að því að hér verði nægt
framboð af græni orku til framtíðar.
Við getum ekki aðeins horft til okkar
kynslóðar heldur einnig komandi
kynslóða,“ segir Páll.
Tækifæri fylgja grænni orku
Ein af áherslum Samorku er að
grænni orku fylgi græn tækifæri,
meðal annars í loftslagsmálum. „Við
þurfum að ná meiri árangri í lofts-
lagsmálum. Það á við um okkur og
allan heiminn. Orkuskipti eru tæki-
færi til að gera betur í þeim málum,
bæði innanlands og utan. Við erum í
þeirri einstöku stöðu að 85% af allri
orku sem við notum er græn, þökk sé
raforkuframleiðslunni og hitaveitun-
um. Við erum í dauðafæri að klára
dæmið og verða óháð jarðefnaelds-
neyti. Það myndi hafa jákvæð áhrif á
loftslagið, efnahag þjóðarinnar og
þjóðaröryggi með því að við værum
óháð öðrum þjóðum um orku,“ segir
Páll.
Hann bendir á að ekki sé búið að
finna allar lausnir til að ná árangri í
loftslagsmálum. Þær þjóðir sem
verði í forystu á því sviði hafi ein-
stakt tækifæri til að þróa lausnir og
þekkingu og búa til úr því verðmæta
vöru og skapa útflutningstekjur. „Ís-
land getur svo sannarlega verið þar
á meðal,“ segir Páll Erland.
Næg græn orka
er lykillinn að
orkuskiptum
- Samorka kynnir áherslur sínar
Morgunblaðið/Ómar
Búrfell Þörf er á afli heillar Búrfellsvirkjunar til að standa undir orkuskipt-
um í samgöngum á landi, ef markmið Parísarsáttmálans eiga að nást.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Talsmaður Páll Erland er fram-
kvæmdastjóri Samorku.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Sumarið lukkaðist afburðavel mið-
að við í hvað stefndi í vor. Það koma
tæplega 80 skemmtiferðaskip til
hafnar á Akureyri, til Hríseyjar eða
Grímseyjar,“ segir Pétur Ólafsson,
hafnarstjóri hjá Hafnasamlagi
Norðurlands. „Niðurstaðan verður
að líkindum sú að
þar sem aðallega
er um að ræða
minni skip þá
skilar þetta um
það bil 20% af
þeim tekjum sem
skemmti-
ferðaskipin hefðu
annars skilið eftir
sig hjá okkur.“
Pétur segir að
allir farþegar um
borð og meirihluti áhafna hafi verið
fullbólusettir. Skipafélögin hafi öll
fylgt ýtrustu sóttvörnum og oftar
en ekki verið með strangari reglur
um borð heldur en voru almennt á
Íslandi.
Fjölmargar gistinætur
á hótelum í Reykjavík
Fyrirkomulagið í sumar var að
mestu á þann veg að farþegar komu
með flugi um Keflavíkurflugvöll og
fóru þar í gegnum þann feril sem
tíðkaðist hverju sinni. Farþegar
voru oftast í sinni fyrirfram
ákveðnu kúlu og umgengust bara
þann hóp sem myndaði hana. Hjá
flestum skipunum voru farþegar
með tæki á sér sem gat rakið ferðir
þeirra, hverjir voru með í för og
hverja þeir hittu, en það var gert til
að auðvelda rakningu ef til hefði
komið. Þá segir hann að stóru
skipafélögin hafi verið með eigin
rannsóknarstofur um borð og PCR-
próf gerð á farþegum og áhöfn á
hverjum degi til að fylgjast með
stöðunni. „Það var ekki fylgst eins
vel með neinum ferðamönnum og
þeim sem komu með skipunum. Þar
var allt til mikillar fyrirmyndar,“
segir hann.
Pétur segir að fjöldinn allur af
skipum hafi boðað komu sína í sum-
ar, en með vorinu fór að grisjast vel
úr hópnum. „Satt best að segja var
ég ekki of bjartsýnn á ákveðnum
tíma í vor, en nú þegar sumri hallar
má segja að það hafi komið vel út
miðað við aðstæður,“ segir Pétur.
Hann gerir ráð fyrir að um það
bil 25 til 30 þúsund farþegar hafi
siglt um Íslandsstrendur í sumar og
komið við hér og hvar um landið.
„Þetta er mikil innspýting fyrir
ferðaþjónustuna, það má gera ráð
fyrir að þessi fjöldi farþega hafi
fyllt tæplega 160 þotur og fjölmarg-
ir gistu fyrir eða eftir siglinguna á
hótelum í Reykjavík. Um er að
ræða einhvern tug þúsunda gisti-
nótta. Einnig voru keyptar vistir af
ýmsum toga hér á landi,“ segir
hann.
Æ fleiri snekkjur
Snekkjur hafa sett svip sinn á
Pollinn við Akureyri í sumar en
Pétur segir að undanfarin ár hafi
orðið aukning í komum þeirra til
Akureyrar. Margar liggja um skeið
úti á Polli á meðan eigendur og
gestir njóta lífsins, skoða nátt-
úruperlur á svæðinu eða fara á
fjallaskíði svo eitthvað sé nefnt.
„Það hefur verið aukning í kom-
um snekkja síðustu þrjú ár, ef til
vill erum við að komast á kortið hjá
eigendum þeirra,“ segir Pétur.
Hann nefnir einnig að innflutn-
ingur hafi aukist undanfarið og sé
meiri samanborið við sama tíma í
fyrra og þá hafi líka verið líflegt í
kringum landanir á fiski. „Það er
allt á góðu róli hjá okkur,“ segir
hann.
Sumarið hefur
lukkast afburðavel
- Hjólin farin að snúast hjá Hafnasamlagi Norðurlands
Ljósmynd/Víðir Benediktsson
Skip Le Champlain siglir inn til Akureyrar seint síðasta sunnudagskvöld.
Pétur
Ólafsson