Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 21
verska kommúnistaflokksins] og
Zhou Enlai [forsætisráðherra
Kína árin 1949 til 1976], studdu
vel við konungdæmið og Sihanouk
persónulega.
Allan þennan tíma elst ég upp í
Kína þar sem mjög náið samband
var á milli okkar fjölskyldu og
konungsfjölskyldunnar og er enn í
dag. Sihanouk sendi mér persónu-
leg bréf til Íslands eftir að ég
flutti hingað og ég heimsótti hann.
Hann var í raun eins og annar afi
minn enda ólst ég mikið upp í
kringum hann í Kína og drottn-
inguna, konu hans, sem enn er á
lífi,“ rifjar Danith upp af Kína-
dvölinni.
Eins og fyrr segir tók Ólafur
Egilsson sendiherra á móti Sih-
anouk í Íslandsheimsókninni 1985,
sem eru langt í frá einu tengsl
Ólafs við kambódísku konungsfjöl-
skylduna. „Árið 2005 fór ég með
Ólafi þegar hann heimsótti
Kambódíu. Þar tók nýkrýndur
konungur, sonur Sihanouks, á
móti honum og tók við trúnaðar-
bréfi hans, en Ólafur varð fyrsti
sendiherrann til að afhenda núver-
andi konungi landsins trúnaðar-
bréf sitt. Þetta var því fyrsta emb-
ættisverk konungsins gagnvart
erlendum sendimanni,“ segir Dan-
ith af konungsfundi Ólafs Egils-
sonar.
Gríðarleg áhersla
á nám barna
Danith stundaði nám í alþjóða-
lögfræði við Háskólann í Peking á
tíunda áratug aldarinnar sem leið
og kynntist þar manni sínum,
Sveini Óskari Sigurðssyni, bæjar-
fulltrúa fyrir Miðflokkinn í Mos-
fellsbæ, en Danith er í framboði
fyrir flokkinn í Reykjavík suður í
komandi alþingiskosningum. Þeg-
ar hún flutti til Íslands árið 2000
lauk hún tveggja ára námi í ís-
lensku við Háskóla Íslands, og
hefur nú fullkomið vald á málinu
vottar sá sem hér skrifar, áður en
hún lauk meistaraprófi í lögum frá
HÍ, með Evrópurétt sem sérsvið,
og síðar MBA-gráðu frá Háskól-
anum í Reykjavík.
„Ég starfa núna við ferðaþjón-
ustu, en það er svo sem ekki brjál-
að að gera eins og ástandið er bú-
ið að vera í faraldrinum,“ segir
Danith. Svo eitthvað sé nefnt
starfaði hún áður hjá Útlendinga-
stofnun, Össuri, Valitor, Thule In-
vestments og í slitastjórn Glitnis á
eftirminnilegum tímum í kjölfar
bankahrunsins.
Blaðamann fýsir að heyra af
þeirri upplifun, sem búferlaflutn-
ingar frá Asíu norður til Íslands
hljóta óneitanlega að vera. „Já,
þetta er gjörólík menning, svo
sem hvað uppeldi snertir. Í Asíu
er gríðarleg áhersla á að læra,
læra, læra. Börnin eiga að verða
læknar og lögfræðingar, sem mér
finnst dálítið ósanngjörn krafa
gagnvart þeim,“ svarar Danith og
kveður Íslendinga bera meiri virð-
ingu fyrir vilja og stefnu barnsins
sjálfs. „Börn á Vesturlöndum hafa
líka mun meira sjálfstraust en
börn í Asíu, það er bara uppeldið
sem þar hefur mest að segja og
það er nokkuð sem við Asíubúar
eigum að læra, til dæmis að gera
börn sjálfstæðari og ábyrgari með
því að vera ekki sífellt að leiðbeina
þeim um einhver algjör smá-
atriði,“ segir hún með áherslu.
Beygingarnar snúnar
Íslenskunámið hafi svo auðvitað
verið kapítuli út af fyrir sig. „Það
var mjög erfitt til að byrja með,
allar þessar beygingar, sem ég var
alls ekki vön, svo það tók tölu-
verðan tíma að læra tungumálið
og auðvitað var það algjört feimn-
ismál þegar maður byrjaði að
tala,“ segir Danith og skellihlær.
Hún hafi þó verið heppin að tala
ensku og hafa haft hana sem
grunn, þess njóti auðvitað ekki all-
ir innflytjendur, auk þess sem hún
fékk tækifæri til að læra, sem
voru árin tvö í íslensku fyrir er-
lenda stúdenta við HÍ, sem hún
lætur mjög vel af þótt ekki hafi
hún lokið náminu.
„Tungumálið í Kambódíu heitir
khmer og svipar til hindí, sem tal-
að er á Indlandi, við erum búdd-
istaþjóðfélag í Kambódíu og landið
hefur orðið fyrir miklum áhrifum
frá Indlandi og hindúisma,“ út-
skýrir Danith undir lokin.
„Reynsla mín af Íslandi og Íslend-
ingum er góð. Hér er yndislegt að
búa og ala upp börn. Það sem mín
saga segir einnig er að þar sem
friður hefur ríkt í margar aldir er
eitthvað gott. Þetta segir okkur
líka að friður er viðkvæmt fyrir-
bæri og alls ekki sjálfsagt að frið-
ur ríki. Það er sagan enn að kenna
okkur,“ eru lokaorð Danithar
Chan frá Kambódíu í fróðlegri
sögu sem hófst í blóðugu veldi
Pols Pots og Rauðu khmeranna á
ofanverðu árinu 1978 og lauk ára-
tugum síðar í Mosfellsbæ á Ís-
landi. Vits er þörf þeim er víða
ratar.
Gosganga Danith og
Sveinn Óskar ásamt
dætrunum Sylvíu Gló
og Ingrid Lín við eld-
gos allra landsmanna.
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
Land
tækifæranna
Flokksráðs- og formannafundur Sjálfstæðisflokksins,
laugardaginn 28. ágúst á Hilton Nordica Reykjavík.
Athugaðu málið á mínum
síðum á xd.is
Sýnt verður beint frá ræðu Bjarna
Benediktssonar kl. 13:30 inn á xd.is
Bjarni í beinni Átt þú sæti á fundinum?