Morgunblaðið - 26.08.2021, Síða 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
21.995.- / St. 37-41
Vnr.: PIA-20150
19.995.- / St. 36-41
Vnr.: PIA-18246
17.995.- / St. 37-42
Vnr.: PIA-12684
18.995.- / St. 37-42
Vnr.: PIA-18227
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
- NÝ SENDING!
Ásmundur Einar
Daðason félagsmála-
ráðherra hefur reynst
starfi sínu vaxinn á
kjörtímabilinu, ég man
ekki eftir svo afger-
andi félagsmálaráð-
herra. Hann hefur
komið með miklar úr-
bætur í málefnum
barna og unglinga og
til að verkefnið væri
augljóst tók ráðherrann upp titilinn
félags- og barnamálaráðherra. Ás-
mundur Einar er ungur fjöl-
skyldufaðir og fyrsta verkefni hins
unga ráðherra var að snúa sér að
málefnum barna. Ásmundur lýsir
þessu svona: „Í upphafi kjörtímabils
fundaði ég með fjölmörgum aðilum
sem höfðu reynslu og upplýsingar
um hvernig við gætum breytt vel-
ferðarkerfinu fyrir börn og fjöl-
skyldur þeirra. Börnin sjálf voru
spurð, foreldrar þeirra, aðrir fjöl-
skyldumeðlimir, fagaðilar og ekki
síst þeir einstaklingar sem hefði
þurft að aðstoða á barnsaldri en eru
orðnir fullorðnir.“ Hér má nefna að
hinn fallni höfðingi Styrmir Gunn-
arsson var einn af þessum ráð-
gjöfum, enda nefndi hann Ásmund
oftar í greinum sínum en nokkurn
annan stjórnmálamann á síðustu
misserum. Þessi glæsilega stefnu-
mótun ráðherrans hefur hitt í mark;
nú er Ásmundur Einar næstvinsæl-
asti ráðherra ríkisstjórnarinnar og
sagður hástökkvari vinsældanna og
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta-
og menningarmála-
ráðherra skipar þriðja
sæti á vinsældalista
ríkisstjórnarinnar. Ás-
mundur og Lilja fara
með málefni barna og
ungs fólks með glæsi-
brag.
Tími eldri borgara
er kominn
Nú brettir Ásmund-
ur Einar enn upp erm-
arnar og ætlar með
sama hætti að ganga í
málefni eldri borgara, hann segir:
„Á komandi kjörtímabili vil ég setja
málefni eldra fólks í sama farveg og
málefni barna á kjörtímabilinu sem
er að líða. Við höfum þegar sýnt að
það er mögulegt að fara í stórar
kerfisbreytingar. Þjónusta við eldra
fólk getur verið og á að vera svo
miklu einfaldari.“ Eldri borgarar
hafa verið mjög ósáttir með sína
stöðu, miklar skerðingar, og krefj-
ast bættra lífskjara. Þessi yfirlýsing
Ásmundar Einars er afdráttarlaus.
Loksins höfum við eignast öflugan
félagsmálaráðherra fólksins og það
sem miklu merkilegra er að sjálfur
var ráðherrann í stöðu Öskubusku
litlu í æsku sinni en reis eins og hún
í ævintýrinu. Í framboði Ásmundar
hér í Reykjavík er vösk sveit, þar á
meðal er Þórunn H. Sveinbjörns-
dóttir sem var ötul baráttukona og
formaður Landssambands eldri
borgara og lengi varaþingmaður
jafnaðarmanna. Og formaður
starfsmannafélagsins Sóknar. Þór-
unni fylgir gustur og gríðarþokki en
hún hefur trú á að Framsóknar-
flokkurinn með Ásmund í broddi
fylkingar muni gjörbreyta mál-
efnum eldra fólks á næsta kjör-
tímabili. Nú er það verkefni kjós-
enda í Reykjavík að tryggja
Ásmundi Einari Daðasyni þingsæti.
Hann mun láta verkin tala, ráð-
herrann sem tók börnin að sér og
nú boðar hann eldri borgurum ný
úrræði. Framsóknarflokkurinn hef-
ur eignast á ný miðju íslenskra
stjórnmála.
Reykvíkingar! Við tryggjum okk-
ar vösku ráðherrum þeim Ásmundi
Einari og Lilju Dögg glæsilega
kosningu undir septembersól.
Sjaldan eða aldrei hefur framboð
Framsóknarflokksins verið jafn öfl-
ugt og nú í Reykjavík, tveir af vin-
sælustu ráðherrum ríkisstjórn-
arinnar leiða lista flokksins.
Ásmundur Einar! Setjum stefnuna
hátt og tökum upp umboðsmann
eldri borgara eftir kosningar, börn-
in eiga sinn umboðsmann. Þannig
og aðeins þannig náum við sátt í
málefnum okkar besta fólks. Áfram
veginn!
Eftir Guðna
Ágústsson » Ásmundur Einar
Daðason félagsmála-
ráðherra hefur reynst
starfi sínu vaxinn á kjör-
tímabilinu, ég man ekki
eftir svo afgerandi
félagsmálaráðherra.
Guðni Ágústsson
Höfundur er fv. alþingismaður
og ráðherra.
Ásmundur Einar Daðason
boðar eldri borgurum úrbætur
Línur eru teknar að
skýrast fyrir alþing-
iskosningarnar 25.
september nk. Sam-
kvæmt nýjasta Þjóð-
arpúlsi Gallup mun
Sjálfstæðisflokkurinn
áfram verða lang-
stærstur stjórn-
málaflokka hér á landi
með 17 þingmenn og
hinir stjórnarflokk-
arnir munu að mestu halda sinni
stöðu, VG með tíu þingmenn og
Framsókn með sjö þingmenn.
Stjórnin heldur því áfram meiri-
hluta með 34 þingmenn.
Í fljótu bragði virðist það nokkuð
augljóst að núverandi
stjórnarflokkar ættu að
halda samstarfinu
áfram en ekki er allt
sem sýnist. Óróaöfl í
VG með varaformann
flokksins, Guðmund
Inga Guðbrandsson, í
fararbroddi vilja
mynda stjórn til vinstri
eftir kosningar. Það
eykur líkur á að illa fari
og vinstri stjórn verði
mynduð, að ólíklegt sé
að Framsókn og Mið-
flokkur nái saman. Og Viðreisn
ásamt vinstri flokkunum er mjög í
nöp við bæði Miðflokk og Sjálfstæð-
isflokk.
Mér sem gömlum Sjálfstæðis-
manni hefur líkað vel framganga
Miðflokksins í Orkupakkamálinu og
fullveldismálum, í málefnum hælis-
leitenda, í málefnum Rúv, í flugvall-
armálinu, í „þungunarrofsmálinu“
og síðast en ekki síst fyrirhuguðu
tugmilljarða skemmdarverki með
svokallaðri borgarlínu og frestun á
nauðsynlegum samgöngubótum eins
og Sundabraut. Helsti galli í mál-
flutningi Miðflokksins er ákall um
fleiri álver. En ég minni á að síðasta
mengandi stóriðjuver á Íslandi var
reist að frumkvæði Jóhönnustjórn-
arinnar og alveg sérstaklega „um-
hverfissinnans“ og „ESB-andstæð-
ingsins“ Steingríms J. Sigfússonar.
Á meðan ég var enn virkur í
stjórnmálum á fyrsta tug þessarar
aldar kynntist ég því miður allt of
vel innihaldi og eðli vinstrimennsk-
unnar hér á landi. Stundum gefa
vinstri menn sig út fyrir að vera
„jafnaðarmenn“ og vera lausir við
græðgi og efnishyggju borgaralegra
afla. Mín reynsla, einkum af Sam-
fylkingarfólki og VG-liðum, er hins
vegar sú, að vinstri menn eru sann-
arlega gírugir í fé og eignir annarra
og alveg sérstaklega eru þeir sólgn-
ir í að eyða mannorði okkar sem
líkjumst þeim ekki. Ýmsir þeir
vinstri menn sem gefa sig út fyrir
að vera umhverfisvinir hafa ekki
reynst vera mannvinir og geta því
hvorki elskað land sitt né þjóð í
raun.
Ég tel að þeir flokkar, sem helst
liggja á miðju eða til hægri í ís-
lenskum stjórnmálum, þ.e.
Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur,
Framsókn og Viðreisn ættu að
mynda borgaralega stjórn með allt
að 35 þingmönnum á bak við sig. Ég
geri mér hins vegar grein fyrir því
að til þess þarf vilja bæði hjá Við-
reisn og Framsóknarflokki.
Í ljósi framanskráðs segi ég:
„Kjósum Miðflokk eða Sjálfstæð-
isflokk gegn vinstri stjórn“.
Kjósum Miðflokk eða
Sjálfstæðisflokk gegn vinstri stjórn
Eftir Ólaf F.
Magnússon
Ólafur F. Magnússon
» „Ýmsir þeir vinstri
menn sem gefa sig
út fyrir að vera
umhverfisvinir hafa
ekki reynst vera
mannvinir“.
Höfundur er læknir
og fv. borgarstjóri.
Þjóðinni fækkar
ört. Fæðingar eru 1,7
á hverja fæðandi
konu. Ég fékk reikni-
meistara, Benedikt
Jóhannesson, til að
reikna út hvert
stefndi ef svona héldi
áfram. Svar hans var
að þjóð vor yrði horf-
in eftir 300 ár með
þessu háttalagi.
Það er ömurlegt að þjóðin sé að
stíga til heljar á 300 árum eftir að
hafa hokrað í landinu í meira en
1.000 ár, loks þegar hér hefur aldr-
ei verið lífvænlegra í okkar stóra
og gjöfula landi.
Fjölmiðlar eru fullir af áhyggj-
um vegna stórfjölgunar eldri borg-
ara og óhagstæðrar aldursskipt-
ingar þjóðarinnar. Nú þarf að
bregðast við af ákveðni og festu.
Borga ætti með hverju barni á
mánuði. Það yrði besta
fjárfesting þjóðfélags-
ins. Lækka ætti skatta
á barnafólk. Allur
kostnaður við börn á
að vera frádráttarbær
frá skatti.
Til að sjónarmið rís-
andi æsku fái meira
vægi ætti foreldri að fá
viðbótarkosningarétt
við hvert barn til 18
ára aldurs þess.
Fjölga þarf fæðing-
arheimilum, leikskólum, grunn-
skólum og öðru því er greiði götu
vaxandi kynslóða.
Börn leysi
mál eldri borgara
Eftir Jóhann J.
Ólafsson
Jóhann J. Ólafsson
» Borga ætti með
hverju barni á mán-
uði. Það yrði besta fjár-
festing þjóðfélagsins.
Höfundur er fv. stórkaupmaður.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?