Morgunblaðið - 26.08.2021, Side 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við erum óskaplega spennt fyrir nýju leikári,
full tilhlökkunar og bjartsýni,“ segir Magnús
Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri þegar hann er
spurður hvort hann horfi björtum augum til
komandi leikárs í ljósi þess hversu miklar
skorður heimsfaraldurinn hefur sett allri sviðs-
listastarfsemi síðustu 18 mánuði. Sýningar eru
þegar hafnar á verðlaunasýningunum Vertu
úlfur eftir Héðin Unnsteinsson og Unni Ösp
Stefánsdóttur í leikstjórn Unnar Aspar, Kafbát
eftir Gunnar Eiríksson í leikstjórn Hörpu Arn-
ardóttur, fjölskyldusýningunni Kardemommu-
bænumn eftir Thorbjørn Egner í leikstjórn
Ágústu Skúladóttur og nýverið var heimilda-
verkið Góðan daginn faggi eftir Bjarna Snæ-
björnsson og leikstjórann Grétu Kristínu Óm-
arsdóttur frumsýnt í endurbættum
Þjóðleikhúskjallara.
„Við kynnum hér einstaklega fjölbreytt og
spennandi leikár og sjaldan hefur leikhúsið
mætt betur undirbúið til leiks,“ segir Magnús
Geir og vísar þar til þeirra sýninga sem byrjað
var að vinna á síðasta leikári en ekki náðist að
frumsýna vegna faraldursins. Þetta eru Rómeó
og Júlía eftir William Shakespeare í leikstjórn
Þorleifs Arnar Arnarssonar, Ásta eftir Ólaf Eg-
il Egilsson í leikstjórn höfundar sem byggist á
höfundarverki Ástu Sigurðardóttur, Jólaboðið í
leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar sem vinn-
ur leikgerð byggða á verki Tyru Tønnessen
sem innblásið er af leikriti eftir Thornton Wil-
der, Framúrskarandi vinkona eftir Napólí-
sögum Elenu Ferrante í leikgerð April de Ang-
elis og leikstjórn Yaël Farber, Sjö ævintýri um
skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson í leikstjórn
Stefáns Jónssonar og hádegisverkin Út að
borða með Ester eftir Bjarna Jónsson í leik-
stjórn í leikstjórn Grétu Kristínar Ómars-
dóttur, Rauða kápan eftir Sólveigu Eir Stewart
í leikstjórn Hilmars Guðjónssonar, Heimsókn
eftir Hildi Selmu Sigbertsdóttur í leikstjórn
Vigdísar Hrefnu Pálsdóttur og Verkið eftir Jón
Gnarr í leikstjórn Grétu Kristínar Ómars-
dóttur. Frá fyrra leikári verða sýndar, auk
Vertu úlfur og Kardemommubæjarins og
Kafbáts, Nashyrningarnir eftir Eugène
Ionesco í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og
Upphaf eftir David Eldridge í leikstjórn Maríu
Reyndal.
Mögulega fyrsta #MeToo-sagan
Fyrsta frumsýningin á Stóra sviðinu verður í
byrjun september en þar er um að ræða Rómeó
og Júlíu. „Þorleifur hefur, í samvinnu við leik-
hópinn, unnið nýja leikgerð af þessari frægustu
ástarsögu allra tíma þar sem tónlistin leikur
áberandi hlutverk. Þetta er fersk og aðgengileg
sýning sem talar sterkt inn í nútímann,“ segir
Magnús Geir, en sú nýbreytni verður tekin upp
að boðið verður upp á umræður með leik-
hópnum að lokinni hverri sýningu. „Ég er sann-
færður um að þessi sýning muni höfða sterkt til
allra leikhúsunnenda, en ekki síst til ungs fólks,
og kalla á umræður um þær áleitnu spurningar
sem verkið vekur. Faraldurinn setti stórt strik í
líf ungs fólks megnið af síðasta vetri og af þeim
sökum langar okkur að bjóða ungu fólki á aldr-
inum 16-20 ára á fyrstu fimm sýningar verks-
ins,“ segir Magnús Geir, en á þeim sýningum
leika plötusnúðar í forsal. Hægt verður að skrá
sig fyrir miðum á vef Þjóðleikhússins frá og
með morgundeginum.
„Um miðjan september frumsýnum við Ástu
í Kassanum. Hér er um að ræða átakasögu
þessarar mögnuðu konu, Ástu Sigurðardóttur.
Þetta er Reykjavíkursaga úr nálægri fortíð og
kannski fyrsta #MeToo-sagan sem fjallað er
um opinberlega á Íslandi,“ segir Magnús Geir
og vísar þar til frægustu smásögu Ástu sem
nefnist „Sunnudagskvöld til mánudagsmorg-
uns“ og fjallar um kynferðisofbeldi sem sögu-
hetjan, nefnd Ásta, verður fyrir af hendi manns
sem hún treystir.
Jólaboðið verður frumsýnt um miðjan nóv-
ember. Um er að ræða áhrifamikla fjölskyldu-
sögu þar sem áhorfendur fá að kíkja í heimsókn
til sömu fjölskyldunnar á aðfangadagskvöld
með reglulegu millibili yfir 100 ára tímabil.
Framúrskarandi vinkona verður jólasýningin í
ár. Hér er um að ræða epískt verk sem byggist
á geysivinsælum sögum Elenu Ferrante. Sagan
spannar lífshlaup, ástir og örlög vinkvennanna
Lilu og Lenu. Það hefur verið mikill fengur fyr-
ir leikhópinn og leikhúsið að fá að vinna með
hinni frábæru Yaël Farber að þessari stórsýn-
ingu,“ segir Magnús Geir og tekur fram að sýn-
ingin sé afar sjónræn og mjög líkamleg. „Við
vorum einnig svo heppin að fá til liðs við okkur
tvo frábæra erlenda kóreógrafa, þau Conor
Doyle og Emily Terndrup, sem unnið hafa m.a.
með Punchdrunk, Almeida og National
Theatre.
Segja sögur af fólki á jaðrinum
Eftir áramót frumsýnum við á Stóra sviðinu
Sjö ævintýri um skömm sem er alveg brilljant
verk út smiðju Tyrfings sem er í hópi okkar
fremstu leikskálda. Verkið er í senn óborgan-
lega fyndið, ósvífið og sárt. Með vorinu frum-
sýnum við söngleikinn Sem á himni sem er glæ-
nýr söngleikur sem er að hefja sigurför um
heiminn. Í verkinu er dásamlegt persónugall-
erí, falleg saga sem sameinar áhorfendur og
yndisleg tónlist. Hér er á ferð sannkölluð stór-
sýning með hátt í þrjátíu leikurum og fjórtán
manna hljómsveit í gryfju,“ segir Magnús Geir,
en í lykilhlutverkum eru Elmar Gilbertsson og
Salka Sól Eyfeld.
„Að lokum á Stóra sviðinu verður að segja frá
Taylor Mac sem er ein virtasta sviðslistamann-
eskja Bandaríkjanna sem kemur ásamt fimm-
tán manna hópi og setur, í samvinnu við lista-
fólk Þjóðleikhússins, upp sýningu sem er
opnunarviðburður á Listahátíð í Reykjavík í
júní á næsta ári. Hópurinn hefur sýnt þessa
sýningu víða um heim við góðar viðtökur,“ segir
Magnús Geir og tekur fram að hann sé af-
skaplega stoltur af komandi leikári.
„Það er afar fjölbreytt og metnaðarfullt. Það
er stútfullt af nýjum íslenskum sögum. Hér er
verið að segja alvörusögur af manneskjum sem
margar hverjar eru á jaðrinum í einhverjum
skilningi. Hér verða sagðar sterkar kvennasög-
ur. Þarna eru krefjandi og ágeng verk sem
spyrja áleitinna spurninga, en líka tilfinninga-
þrungin, sameinandi og hlý verk sem leyfa okk-
ur að hlæja saman. Ég held því að allir muni
finna eitthvað við sitt hæfi. Hópur listamanna
Þjóðleikhússins hefur styrkst mikið að und-
anförnu og við munum gera margvíslegar til-
raunir með aðferðir og form,“ segir Magnús
Geir og heldur áfram að kynna ný verk leikárs-
ins.
Mikilvægt að fá erlent listafólk til starfa
„Í febrúar frumsýnum við leikritið Ást og
upplýsingar eftir Caryl Churchill, en þetta er
fyrsta verkið hennar sem sett er upp í Þjóðleik-
húsinu,“ segir Magnús Geir og bendir á að þótt
Churchill sé eitt merkasta núlifandi leikskáld
Breta hafi hún ekki verið leikin hjá stofnana-
leikhúsunum hérlendis þar til nú. „Þetta er ný-
legt og margverðlaunað verk sem fjallar um
samskipti fólks á brotakenndum tímum upplýs-
ingatækninnar þar sem heimurinn snýst hraðar
en áður. Leikstjóri uppfærslunnar er Una Þor-
leifsdóttir, en við fáum erlendan liðsauka til að
hanna leikmyndina. Það er hinn virti Daniel An-
germeyer, en hann gerir líka leikmyndina að
samsköpunarsýningunni Án titils sem Þorleifur
Örn leikstýrir og semur í samvinnu við leikhóp-
inn og Jón Atla Jónasson þar sem áföll, jafnt
stór sem smá, eru til skoðunar og úrvinnsla
fólks úr þeim,“ segir Magnús Geir, en sýningin
mun flæða á milli Kassans og Litla sviðsins,
sem áður nefndist Kúlan. „Meðal leikara er
þýska leikkonan Jördis Richter sem er búsett
hérlendis,“ segir Magnús Geir.
Hér liggur beint við að spyrja þjóðleikhús-
stjóra um gildi þess að fá erlent listafólk til
starfa hjá Þjóðleikhúsinu. „Frá því ég tók hér
við stjórnartaumum hef ég lagt áherslu á að
fjölga framúrskarandi erlendu listafólki sem
vinnur með okkur. Markmiðið með því er fyrst
og fremst að opna íslenskt leikhúslíf, fá ný
áhrif, sem okkur veitir ekki af vegna þess
hversu lítið samfélag við erum. Okkur er hollt
að fá fólk með ferska sýn sem getur kennt okk-
ur eitthvað nýtt. Þetta hefur jákvæð áhrif á
leikhópinn og framþróun listafólksins sem
starfar hér við húsið og skilar sér vonandi í enn
fleiri framúrskarandi og ógleymanlegum sýn-
ingum,“ segir Magnús Geir og staðfestir að ver-
ið sé að ljúka samningum við fleiri leikstjóra í
fremstu röð sem munu leikstýra við Þjóðleik-
húsið á næstu árum.
Tilraunavettvangur á Loftinu
„Í haust frumsýnum við verkið Láru og
ljónsa – jólasögu sem byggist á vinsælum bók-
um Birgittu Haukdal í leikstjórn Guðjóns Dav-
íðs Karlssonar með nýrri tónlist eftir Birgittu.
Við höldum áfram með Leitina að jólunum 17.
árið í röð. Eftir áramót frumsýnum við Um-
skipting eftir Sigrúnu Eldjárn í leikstjórn Söru
Martí Guðmundsdóttur með nýrri tónlist eftir
Ragnhildi Gísladóttur. Þetta er frábærlega
fyndið og skemmtilegt nútímaverk sem fjallar
um tröll og menn með vísan í þjóðsagnaarfinn.
Þá mun Þjóðleikhúsið bjóða upp á útisýningu á
tröppum leikhússins í aðdraganda jólanna.
Vloggið eftir Matthías Tryggva Haraldsson í
leikstjórn Björns Inga Hilmarssonar verður
frumsýnd í haust og fer í leikferð um landið þar
sem efstu bekkjum grunnskólans býðst að sjá
verkið. Í vor verður Túskildingsóperan eftir
Bertolt Brecht í leikstjórn Ólafs Egils Egils-
sonar sett upp í Kassanum, en þar er um að
ræða útskriftarsýningu nemenda af leikara-
braut við Listaháskóla Íslands.
Loks má nefna sýninguna Prinsinn sem
frumsýnd verður í Frystiklefanum á Rifi í vetur
og sýnd víðs vegar um landið þar til hún ratar í
sýningar í Þjóðleikhúsinu á þar næsta leikári.
Þetta er heimildaverk sem Kári Viðarsson
skrifar í samvinnu við leikstjórann Maríu
Reyndal,“ segir Magnús Geir og nefnir að lok-
um að spennandi hlutir séu væntanlegir á Loft-
inu, sem er nýr tilraunavettvangur innan
veggja leikhússins. „Í fyrra tókum við nokkur
verk í þróun og sum þeirra halda áfram í næsta
fasa þróunar og verða sýnd sem verk í vinnslu,“
segir Magnús Geir, en meðal þeirra verka eru
Trúnó undir stjórn Dominique Gyðu Sigrún-
ardóttur og Siggu Daggar og Íslandsklukkan
sem unnin er í samstarfi við leikhópinn Elefant.
Öryggi leikhúsgesta mikið
„Eðli málsins samkvæmt ber leikárið þess
merki að við lifum óvenjulega tíma. Í stað þess
að hlaupa í vörn stöndum við keik og gefum
hvergi eftir. Íslenskum leikhúsgestum standa
til boða ótal sýningar sem munu hreyfa við
þeim á komandi mánuðum,“ segir Magnús Geir
og tekur fram að vegna ástandsins séu gerðar
tímabundnar breytingar á áskriftarkortunum.
„Kortin eru opnari og aðgengilegri en áður.
Gestir geta breytt miðum hvenær sem er og
ráða alfarið sjálfir hve margar sýningar eru í
kortunum, enda eiga margir enn ónýtta miða
frá síðasta leikári. Við finnum fyrir mikilli eft-
irvæntingu gesta og við í leikhúsinu hlökkum
óskaplega til vetrarins,“ segir Magnús Geir.
Það er ekkert launungarmál að allar
menningarstofnanir landsins hafa orðið fyrir
tekjufalli út af faraldrinum. Aðspurður hvort
Þjóðleikhúsið hafi fengið sitt tekjufall bætt af
hendi ríkisins svarar Magnús Geir því játandi.
„Sem er þakkarvert,“ segir Magnús Geir og
tekur fram að sem betur fer séu hérlend stjórn-
völd meðvituð um mikilvægi menningar í ís-
lensku samfélagi. „Við þurfum öll á því að halda
að rækta andann og við finnum sterklega fyrir
því að þjóðina þyrstir í að koma saman á ný og
njóta menningar,“ segir Magnús Geir og bend-
ir á að menningarstofnanir vonist til að há-
marksfjöldi gesta aukist, hægt verði að draga
úr nándartakmörkunum sem fyrst, mögulega
gegn því að gestum bjóðist aðgengileg hraðpróf
án kostnaðar. „Sagan sýnir að öryggi leikhús-
gesta er mikið og enn hefur enginn smitast í
menningarhúsum landsins þótt inn hafi komið
einstaka gestir með smit sem auðvelt var að
rekja,“ segir Magnús Geir, sem ásamt því að
vera þjóðleikhússtjóri er í forsvari fyrir Sam-
tök atvinnuveitenda í sviðslistum og tónlist
(SAVÍST). „Ég er sannfærður um að það er rík
þörf fyrir að það sé opnað eins mikið og mögu-
legt er með tilliti til öryggis. Andleg heilsa
þjóðarinnar er mikilvæg og þar gegnir Þjóð-
leikhúsið ásamt öðrum menningarstofnunum
mikilvægu hlutverki,“ segir Magnús Geir að
lokum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Við gefum hvergi eftir“
- „Hér verða sagðar sterkar kvennasögur,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri
- Ásta, Framúrskarandi vinkonur, Sem á himni og Rómeó og Júlía meðal sýninga leikársins
Heilsa „Andleg heilsa þjóðarinnar er mik-
ilvæg og þar gegnir Þjóðleikhúsið ásamt
öðrum menningarstofnunum mikilvægu
hlutverki,“ segir Magnús Geir Þórðarson.