Morgunblaðið - 26.08.2021, Síða 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Mikið vöruúrval í
grænmetis- og veganvörum
Kynntu þér málið hjá söludeild okkar, sími 575 0200.
Skólar • Mötuneyti
Vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Verk Önnu Þorvaldsdóttur tón-
skálds, Enigma, kemur út á plötu í
flutningi Spektral-kvartettsins á
morgun, 27. ágúst, og er það jafn-
framt fyrsta verkið sem hún semur
fyrir strengja-
kvartett. Banda-
ríska fyrirtækið
Sono Luminus
gefur út.
„Kvartettinn,
sem heitir Spek-
tral Quartet,
hafði samband
við mig fyrir
nokkrum árum
og við stefndum
að því að klára
það árið 2019, sem ég síðan gerði.
Þau vildu fá stóran og langan
strengjakvartett og ég þurfti því
góðan tíma til þess að finna út úr því
hvað ég hefði að segja í gegnum slík-
an kvartett,“ segir Anna um tilurð
verksins.
Sögulega hlaðið hugtak
Anna hefur mikla reynslu af því
að semja fyrir strengjasveitir og
stærri hljómsveitir, eins og þekkt
er, og segir hún ástæðuna þó ekki
vera þá að hún hafi hingað til ekki
haft áhuga á því að semja fyrir
strengjakvartett. „Hugtakið
strengjakvartett er sögulega mjög
hlaðið og mig langaði því persónu-
lega að hugsa vel og vandlega hvað
ég vildi gera á þessu formi,“ segir
Anna.
Það er tímafrekt að semja tón-
verk og segist Anna almennt taka
við pöntunum á verkum um það bil
fimm ár fram í tímann. Pöntunin á
þessu tiltekna verki barst þvðí fyrir
um það bil sex árum og kláraði Anna
það á tilsettum tíma og kvartettinn
frumflutti það í Kennedy Center í
Washingtonborg árið 2019.
„Ég var mög spennt að skrifa
þetta fyrir þau en þetta er alveg
framúrskarandi kvartett og ótrúlega
færir hljóðfæraleikarar. Þau frum-
flytja síðan verkið í október 2019 en
fresta þurfti útgáfunni sem og
reyndar frumflutningi í Carnegie
Hall í New York vegna heimsfarald-
ursins,“ segir Anna um kvartettinn
og verkið.
Grátt svæði
Anna segir að til hafi staðið að
kvartettinn kæmi hingað til lands í
fyrra en einmitt vegna faraldursins
hafi það frestast. Hún er þó bjartsýn
á að þau muni geta komið og spilað á
Íslandi fyrr fremur en síðar.
Spurð hvaðan innblásturinn komi
svarar Anna, eftir allnokkra um-
hugsun: „Hugmyndin hjá mér var
þetta sem lifir á milli og inni í efninu,
svona þetta gráa svæði sem er milli
myrkursins og ljóssins. Hugmyndin
um hljóma og tónefni og svo skugg-
ana af því. Flæðið á milli efnisins og
uppbrot á flæðinu. Svona hljómarnir
sem koma og fara og skuggarnir af
þeim. Þetta er svona það sem ég fór
inn í og speglast bæði í forminu og í
smáatriðum í verkinu. Ég vinn mikið
með áferð og núning í verkinu og
nota hljóðfærin mikið svona út frá
öllum hliðum.“
Anna segir þá einnig að um sé að
ræða svokallaða nútímatónlist en
samt sé ávallt erfitt að skilgreina sig
sjálfa. „Mér finnst þetta vera sam-
bland af mörgu og ég er oft inn-
blásin af mörgum tónlistargeirum,
til að mynda hefur raftónlist mjög
mikil áhrif á mig.“
Eins og áður segir verður verkið
gefið út á morgun og verður þá hægt
að nálgast það á öllum helstu
streymisveitum. Einnig verður hægt
að kaupa eintök á föstu formi í öllum
helstu verslunum sem selja tónlist.
Ljósmynd/Daniel Kullman
„Framúrskarandi kvartett“
- Fyrsta verkið sem Anna Þorvaldsdóttir samdi fyrir strengjakvartett, Enigma, er nú komið út á
plötu í flutningi Spektral - Útgáfunni seinkað vegna Covid-19 - Vinnur fimm ár fram í tímann
Anna
Þorvaldsdóttir
Spektral Fiðluleikararnir Clara Lyon og Maeve Fein-
berg, Doyle Armbrust á víólu og Russell Rolen á selló.
Kvartettinn hefur hlotið margar Grammy-tilnefningar.
Benni Hemm Hemm gaf út nýtt lag,
„Ísskápinn“, í gær og í kvöld mun
hann blása til hressandi tónleika á
Húrra að Tryggvagötu 22.
„Ísskápurinn“ er marglaga ung-
lingsdrama með slikju af kaliforníu-
sólskini, skrifar Benni og segir lagið
fjalla um drungalega undraveröld
unglingsins, „að vera eins og fis en að
vera 100 þús. hið innra“. Hann segir
lagið fjalla um hvað lífið geti verið
léttvægt og óbærilega þungt á sama
tíma.
„Útsetningin er vafin utan um lag-
ið til að undirstrika þessa hugmynd,
en hún samanstendur af sellói, bás-
únum, saxófóni, alt-saxófóni, þver-
flautu og mörgu fleiru. Meðal þeirra
sem leika í laginu eru Tumi Árnason,
Ingi Garðar Erlendsson og Júlía
Mogensen,“ skrifar Benni.
Í kvöld kl. 21 hefjast tónleikar
Benna og hljómsveitar sem munu
„rúlla öllum hjólunum af stað og
sprengja þakið af Húrra,“ eins og það
er orðað en í liðinni viku héldu Benni
og hljómsveit tónleika á Kex hosteli
og mætir nú tvíefld til leiks með risa-
stóra lúðrasveit, of marga rafmagns-
gítara og háværasta trommara Norð-
urlanda. Verður áherslan lögð á stuð
enda var óskað eftir partítónleikum,
að sögn Benna, og sjálfsagt að verða
við þeim óskum. „Allir mögulegir og
ómögulegir hittarar hafa verið grafn-
ir upp úr gömlum og nýjum skúma-
skotum og púslað saman í prógramm
sem er mestallt hægt að dansa við og
öskra. Er ekki þörf á því akkúrat
núna, að dansa og öskra?“ skrifar
Benni og svarið við þeirri spurningu
vafalaust „jú“.
Í stuði Benni Hemm Hemm er til í tuskið, eins og sjá má.
„Ísskápur“ og tónleikar