Morgunblaðið - 16.09.2021, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 6. S E P T E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 217. tölublað . 109. árgangur .
ÓHRÆDDAR AÐ
KITLA HLÁTUR-
TAUGARNAR
LISTAVERK ÚR
NÝRUNNU
HRAUNINU
HAUKAR OG
FJÖLNIR MEÐ
GÓÐA SIGRA
NÝTT VERK TOLLA 20 UNDANÚRSLIT Í BIKAR 63BÍDDU BARA 68
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Útlit er fyrir að heimsfaraldurinn
muni halda áfram að bíta í ferða-
þjónustuna hér á landi og að vet-
urinn framundan verði erfiður. Er-
lendir ferðamenn verða að öllum
líkindum talsvert færri í ár en spáð
var.
Í upphafi sumars spáðu greining-
ardeildir bankanna að um 600-800
þúsund erlendir ferðamenn kæmu
hingað til lands í ár. Þá spáði Ferða-
málastofa því í lok ágúst að þeir
yrðu um 890 þúsund talsins. Það sé
þó „orðið alveg ljóst“ að þeir verði
nær því að vera 600.000, að sögn Jó-
hannesar Þórs Skúlasonar, fram-
kvæmdastjóra Samtaka ferðaþjón-
ustunnar.
Af þessum sökum sé erfitt að
meta mannaflaþörfina í greininni
fyrir veturinn en hún muni þó að öll-
um líkindum fara minnkandi. „Við
erum einfaldlega með færri ferða-
menn á veturna en á sumrin, rétt
eins og önnur nágrannaríki okkar,
en við sjáum líka fram á það að
ákveðnir hópar muni lítið láta sjá sig
í vetur, hópar sem hafa verið okkur
mjög mikilvægir,“ segir Jóhannes.
Þá segir hann ákvörðun Sótt-
varnastofnunar Bandaríkjanna
(CDC) um að setja Ísland á hæsta
hættustig í ágúst hafa haft merkj-
anleg áhrif á ferðaþjónustuna. „Það
hafði ekki afgerandi áhrif á það sem
hafði þegar verið bókað þegar þetta
gerðist en það hefur alveg haft
merkjanleg áhrif á eftirspurnina í
kjölfarið, sérstaklega núna í sept-
ember.“
Líklegt er að fjöldi fyrirtækja, sér
í lagi úti á landsbyggðinni, þurfi að
leggja niður starfsemi sína í vetur,
að sögn Jóhannesar. Því sé mikil-
vægt að ráðningarstyrkir ríkisins til
fyrirtækja í ferðaþjónustunni verði
framlengdir fram á næsta sumar.
„Það er alveg ljóst að þetta verður
mjög erfiður vetur.“
Erfiður vetur framundan
- Heimsfaraldurinn heldur áfram að bíta í ferðaþjónustuna
- Einhver fyrirtæki gætu þurft að draga saman seglin í vetur
MFerðaþjónustan í frost »32
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, segir ekki ólík-
legt að krónan verði fest við evru á
eða nærri markaðsgengi dagsins
sem samningur tekst um slíkt við
Evrópska seðlabankann.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í formannaviðtali Dagmála
við hana, sem birt er í opnu streymi
á mbl.is í dag, en útdrátt úr því má
finna í blaðinu í dag.
Sigmar Guðmundsson, sem er í 2.
sæti Viðreisnar í Suðvestur-
kjördæmi, hafði áður sagt að greint
yrði frá genginu sem fest yrði við.
Gríðarlegir hagsmunir eru bundnir
því á hvaða gengi slík binding á sér
stað. Undanfarin þrjú ár hefur evran
farið úr 110 kr. í 165 kr. og er meðal-
gengi hennar um 142 kr. á því tíma-
bili. »6
Morgunblaðið/Ásdís
Dagmál Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir er í formannaviðtali dagsins.
Krónan líklega
fest evru á
markaðsgengi
22. - 29. SEPTEMBER
FLUG OG GISTING
VERÐ FRÁ 72.900 KR.
FLUG, GISTING OG INNRITAÐUR FARANGUR
WWW.UU.IS | INFO@UU.IS
STÖKKTU TIL TENERIFE
Pítubuff
6x60 g - með brauði
1.050KR/PK
ÁÐUR: 2.099 KR/PK
Grísalæri
598KR/KG
ÁÐUR: 1.495 KR/KG
Ananas
189KR/KG
ÁÐUR: 378 KR/KG
60%
AFSLÁTTUR
50%
AFSLÁTTUR
50%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ GILDA 16.--19. SEPTEMBER
FRÁBÆR TILBOÐ
Í NÆSTU NETTÓ
Áfram flæðir eldur úr iðrum jarðar og kemur
upp í Geldingadölum. Þar breiðir hann úr sér yf-
ir hraunbreiðuna sem hann hefur sjálfur skapað
og teygir sig sífellt lengra. Raunar er vart enn
hægt að tala um Geldingadali, þar sem þeir hafa
smám saman yfirfyllst af hrauni undanfarið nær
hálft ár. Í stað dalanna hefur hlaðist upp hraun í
slíku magni að helst minnir á dyngju. Ef til vill
væri því nær lagi að tala um Geldingadyngju, eða
þá Ísólfsskjöld, eftir landnemanum sem sagður
var heygður skammt frá þeim stað þar sem eld-
urinn reif fyrst í sundur yfirborð jarðar. »4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eldur gægist upp fyrir gíginn á Geldingadyngju
_ Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta-
og menningar-
málaráðherra,
segir að brýnt sé
að styðja betur
við lítil og með-
alstór fyrirtæki,
og að áfram
verði stutt við
grunn mennta-
kerfisins. „Við
eigum að fjárfesta í fólkinu okkar
hér á Íslandi.“
Lilja segir í samtali við Morgun-
blaðið í dag að hún sé stolt af ár-
angri sínum á kjörtímabilinu, og
nefnir m.a. þær breytingar sem
gerðar hafi verið á Menntasjóði
námsmanna og eflingu iðnnáms.
Þá standi Framsóknarflokkurinn
fyrir framsækið og kröftugt at-
vinnulíf, þar sem grunnstoðirnar
séu sterkar. »16
Grunnstoðirnar séu
sem sterkastar
Lilja
Alfreðsdóttir