Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 Frumsýning í kvöld borgarleikhus.is Tryggðu þér miða Eftir Dóra DNA Rúmlega 250 íbúðir og herbergi fyrir nemendur Háskólans í Reykjavík voru formlega tekin í notkun við Nauthólsveg í gær. Var íbúum boðið upp á kaffi og með því. Þau Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, Selma Rún Friðjóns- dóttir, varaforseti Stúdentafélags HR, Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, gróðursettu tré að við- stöddum íbúum, stjórn HR og framkvæmdaráði, starfsfólki, fulltrúum verktaka og arkitekta og fleirum. Sagði Ragnhildur við athöfnina að það væri mikið gleðiefni að geta loksins opnað garðana formlega. „Það skiptir miklu, meðal annars upp á aðgengi nemenda af lands- byggðinni og erlendis frá að HR, að unnt sé að bjóða upp á hagkvæmar leiguíbúðir. Það er líka lykilatriði fyrir margt fjölskyldufólk í námi og í samræmi við stefnu háskólans.“ Selma Rún sagði að nemendur væru gríðarlega ánægðir með þessa aðstöðu sem HR hefði nú upp á að bjóða. „Það hefur verið mikil þörf á þessum íbúðum til margra ára. Þetta er því mikilvægt skref í rétta átt fyrir hagsmuni nemenda og gaman að sjá þetta verða að veru- leika. Í dag er góður dagur fyrir núverandi og framtíðarnemendur Háskólans í Reykjavík,“ sagði hún. 250 stúdentaíbúðir vígðar Morgunblaðið/Eggert Háskólagarðar Íbúðirnar munu mæta brýnni þörf stúdenta við HR. - Háskólagarðar HR formlega opn- aðir í Öskjuhlíð Skúli Halldórsson sh@mbl.is Hrauntjörn í syðri hluta Geldinga- dala er talin hafa brostið í gærmorg- un. Í kjölfarið tók hraun að flæða stríðum straumi suður að leiðigarð- inum þar og niður í Nátthaga. Breiddi straumurinn úr sér yfir gamla hraunið en storknaði fljótt. Enn mátti þó sjá, síðdegis í gær, hraun renna undir yfirborði eldri hraunfossins niður vestari hlíðar Nátthaga. Í fyrstu óttuðust almannavarnir að fólk á svæðinu kynni að vera í hættu og var blásið til allsherjar- rýmingar í því skyni að afstýra manntjóni. Fljótt varð ljóst að engin aukin hætta var á ferðum og um einni klukkustund síðar gat fólk gengið frjálst upp grýttar hlíðar Langahryggs til að berja gosstöðv- arnar augum. Ekkert lát á streymi hrauns Og ekki vantaði fólkið. Ferða- menn hvaðanæva lögðu leið sína að gosinu í gær, eins og nær alla aðra daga. Ferðamenn sem blaðamaður tók tali voru allir sammála um að út- sýnið væri engu líkt. Ljóst er að ekkert lát er á streymi fólks þangað, rétt eins og streymi hraunsins úr iðrum jarðar sem virð- ist engan enda ætla að taka. Portú- galska, danska, finnska, spænska, þýska, hollenska, tékkneska, enska og íslenska voru tungumálin sem blaðamaður gat heyrt á annars stuttri göngu sinni upp hrygginn. Í þessari röð. Engu var líkara en að úr svörtu hrauninu hefði verið reistur Babels- turn og að þaðan streymdi fólkið. Stöðugur straumur að gosinu og í því - Ferðamenn sækja enn margir að eldgosinu - Heyra má fjölda tungumála á leið upp Langahrygg - Allsherjarrýming á svæðinu í gærmorgun eftir að hrauntjörn brast - Rýmingin fljótt blásin af Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hraun Eldrauð hrauntunga teygði sig niður vesturhlíðar Nátthaga í gær og læddi sér yfir eldra og storknað hraun. Gos Mathias og Ada, frá Þýskalandi og Ísrael, hrifust af sjónarspilinu. Bros Michal og Radka frá Tékk- landi voru ánægð með upplifunina. Anton Kristinn Þórarinsson kom í skýrslutöku í aðalmeðferð Rauða- gerðismálsins í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær þar sem hann tjáði dóm- inum að hann og fjölskylda hans hefðu átt mjög erfitt eftir að málið kom upp. Anton var færður í gæslu- varðhald vegna morðsins á Armandi Beqirai 13. febrúar síðastliðinn í Rauðagerði, sem Angjelin Sterkaj hefur játað að hafa framið. Sat hann í gæsluvarðhaldi þegar rannsókn málsins fór fram á sínum tíma en var síðan sleppt. Spurður út í meintar sektar- greiðslur upp á samtals 50 milljónir segir Anton að þær greiðslur hafi aldrei átt sér stoð í raunveruleikan- um. Segist hann hafa þekkt Angjelin vel og þeir hafi verið vinir en Arm- ando þekkti hann lítillega. Þá sagði Anton fyrir dómi að hann hefði ekki kippt sér sérstaklega upp við að Sterkaj og meðákærð, Claudia Sofia, hefðu komið í sumarbústað sem hann var staddur í með fjölskyldu sinni aðeins klukkustundum eftir morðið. Hann hefði ekki vitað neitt um að Angjelin hefði þá þegar myrt Armando, né að Angjelin hefði átt byssu. oddurth@mbl.is Málið verið erfitt fyrir fjölskylduna - Segir 50 milljóna skuld ekki til staðar Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Rauðagerðismál Anton Kristinn kom fyrir héraðsdóm í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.