Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 18
SVIÐSLJÓS Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is „Þau helstu mál sem brenna á Ís- lendingum erlendis eru meðal ann- ars greiðari leið fyrir maka að öðl- ast íslenskan ríkisborgararétt ef fjölskyldan býr erlendis, erfiðleikar við endurnýjun vegabréfa, vesen með að fá og nota rafræn skilríki og ýmis konar þröskuldar sem tor- velda flutninga aftur til Íslands,“ segir Ásgeir Ingvarsson, stofnandi og umsjónaraðili Facebook-hópsins Íslendingar í útlöndum, í samtali við Morgunblaðið. Hafa gleymst við lagasetningu Ásgeir hefur staðið fyrir kosn- ingaspjalli á Facebook-hópnum með fulltrúum stjórnmálaflokkanna sem bjóða sig fram til alþingiskosninga. Hópfélagar deildu með frambjóð- endum því sem þeim lá þeim á hjarta og spurðu út í stefnuskrár þeirra. „Þetta gekk glimrandi vel. Flokkarnir eru loksins farnir að gefa þessum kjósendahópi gaum,“ segir Ásgeir. Hann bætir við að Ís- lendingar erlendis hafi lengi gleymst við lagasetningu og ýmis mál þarfnist athugunar. Samkvæmt Þjóðskrá búa um 40 þúsund Íslendingar erlendis. „Ís- land er flökkuþjóð. Við skerum okkur úr þegar litið er á hlutfall þeirra sem búa erlendis og erum í fimmta sæti yfir lönd sem hafa hæst hlutfall landsmanna búsetta erlendis,“ segir Ásgeir. Missi ekki ríkisborgararéttinn Hann nefnir sem dæmi að margir Íslendingar sem eiga erlenda maka myndu vilja að maki þeirra eigi þann möguleika að geta öðlast ís- lenskan ríkisborgararétt þó að fjöl- skyldan búi erlendis en í mörgum Evrópuríkjum tíðkast að erlendur maki geti fengið ríkisborgararétt eftir ákveðið langan tíma í hjúskap, óháð lengd búsetu í því landi sem veitir ríkisborgararéttinn. Annað stórt mál er að einstak- lingar sem fæddir eru erlendis og búa þar enn geti haldið íslenska ríkisborgararéttinum en samkvæmt lögum getur einstaklingur sem fæddur er erlendis og hefur aldrei átt lögheimili á Íslandi misst ríkis- borgararétt sinn við tuttugu og tveggja ára aldur nema hann sæki sérstaklega um að halda ríkisfang- inu. Þá nefnir Ásgeir einnig að of erf- itt sé að endurnýja íslensk vegabréf erlendis og margir þurfi að ferðast langar vegalengdir til að heimsækja íslenskt sendiráð til að endurnýja vegabréfið. Hann segir að skoða mætti að gera ferlið rafrænt eða taka upp samstarf við Norður- löndin. Rafræn skilríki eru annað hita- mál. Ásgeir segir erfitt fyrir brott- flutta að sækja sér rafræn skilríki þar sem krafist er að notandi sé með íslenskt símanúmer. Hann nefnir einnig að gott væri ef Ísland myndi gefa út nafnskírteini í korta- stærð og segir Ísland og Danmörku einu Evrópuríkin sem ekki gefi slíkt út. Að lokum segir Ásgeir háa þröskulda mæta brottfluttum þegar þeir flytja aftur til Íslands. Hann nefnir miklar hindranir varðandi lántöku og vísar einnig til svokall- aðrar sex mánaða reglu sjúkra- trygginga en samkvæmt henni þarf sjúkratryggður að hafa búið hér- lendis í að minnsta kosti sex mán- uði áður en bóta er óskað úr sjúkratryggingum. „Þetta snýst ekki bara um að fjarlægja óþarfa hindranir heldur líka að auðvelda Íslendingum á Ís- landi að stökkva á tækifærin er- lendis. Við viljum geta sigrað heim- inn án þess að þurfa berjast við kerfið og við viljum að leiðin sé greið út og sömuleiðis aftur heim,“ segir Ásgeir. Koma kjörseðlum á réttan stað Sjálfstæðisflokkurinn býður Ís- lendingum búsettum erlendis upp á aðstoð og upplýsingar um kosningu utan kjörfundar. Þá aðstoðar flokk- urinn einnig við móttöku atkvæða. „Við höfum milligöngu á því að koma kjörseðlunum í rétt kjördæmi og ef það eru margir að senda sam- an kjörseðla sem eiga að fara í mis- munandi kjördæmi þá flokkum við þá í sundur og finnum út hvar við- komandi kjósandi er skráður út frá síðasta lögheimili,“ segir Bryndís Loftsdóttir, verkefnastjóri utan- kjörfundarskrifstofu Sjálfstæðis- flokksins, í samtali við Morgun- blaðið. Íslendingar erlendis vilji kjósa Þá býður flokkurinn einnig kjós- endum sem eru búsettir á höfuð- borgarsvæðinu, en með lögheimili út á landi, að koma með atkvæði sitt upp í Valhöll og þau koma þeim á réttan stað. Bryndís segir um helming atkvæða sem þau fá til sín vera frá fólki innanlands og hinn helminginn frá Íslendingum erlend- is. Bryndís kveðst finna á samtölum sínum við Íslendinga búsetta er- lendis, sem dottnir eru af kjörskrá, að þeir séu skúffaðir yfir því að geta ekki kosið. Hún segir að fyrir alþingiskosningar 2009, 2016 og 2017 hafi verið gerðar undantekn- ingar á svokallaðri 1. desember reglu og var þá hægt að sækja um að vera á þjóðskrá þrem vikum fyr- ir kosningar en ekki hefur verið veitt undantekning í ár. Þá bendir Bryndís fólki á að það þurfi að fara koma atkvæðum sín- um til landsins með einhverjum sem er á leið til hingað til að at- kvæðið berist í tæka tíð þar sem póstþjónusta er óáreiðanlegri vegna heimsfaraldursins og tekur lengri tíma fyrir bréf að komast á áfanga- stað en áður. Bryndís bætir við að hún býðst til að sækja atkvæði sem fólk sendir með öðrum hvert sem er á höfuðborgarsvæðinu og kemur þeim á réttan stað. „Allt fyrir lýðræðið“ „Við tökum á móti öllum atkvæð- um og höfum enga leið til að sjá hvað fólk er að kjósa og það skiptir engu máli. Þetta er bara sjálfsögð þjónusta. Allir eru velkomnir, allt fyrir lýðræðið,“ segir hún að end- ingu. Fólk missi ekki ríkisborgararétt - Flokkarnir farnir að gefa Íslendingum erlendis gaum - Háir þröskuldar þegar fólk flytur heim - Erlendir makar fái ríkisborgararétt - Of erfitt að endurnýja vegabréf - Vilja nafnskírteini Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Íslendingar Talið er að um 40 þúsund Íslendingar séu búsettir erlendis og því mörg atkvæði í boði fyrir flokkana. Bryndís Loftsdóttir Ásgeir Ingvarsson 18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is MEÐ SJÁLFBÆRNI AÐ LEIÐARLJÓSI 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Alls hafa borist 779 aðsend atkvæði til sýslumanns. Þetta kemur fram í svari Ásdísar Höllu Arnarsdóttur, sviðsstjóra þinglýsinga- og leyfis- sviðs sýslumannsins á höfuðborg- arsvæðinu, í skriflegu svari til Morgunblaðsins. „Ekki er haldið sérstaklega utan um það hvaðan aðsend atkvæði koma, ég hef því aðeins upplýs- ingar um heildarfjölda aðsendra at- kvæða án aðgreiningar á því hvort þau koma erlendis frá eða innan- lands,“ segir Ásdís. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru um 40 þúsund Íslend- ingar sem búsettir erlendis en af þeim hafa 10.238 kosningarétt. Kjósendur senda atkvæðin Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis fer fram í öllum sendiráð- um Íslands erlendis og aðalræðis- skrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Nuuk og Þórshöfn í Fær- eyjum. Þá er einnig er hægt að kjósa utan kjörfundar eftir sam- komulagi hjá kjörræðismönnum Ís- lands erlendis. Kjósendum ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Ís- landi. Atkvæðið þarf að hafa borist kjörstjóra eða sýslumanns í síðasta lagi á kjördag Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en átta ár, talið frá 1. desember 2020, eru sjálfkrafa með kosningarétt og geta kosið í komandi alþingiskosn- ingum en þó er gerð krafa um að hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi. Þeir sem hafa átt lögheimili erlendis lengur en átta ár, talið frá 1. desember 2020, þurftu að sækja um til Þjóðskrár um að verða tekn- ir á kjörskrá fyrir kosningarnar. Fullnægjandi umsókn hefði þurftað berast Þjóðskrár fyrir 1. desember í fyrra. Þeir sem sendu því ekki um- sókn og hafa búið lengur en átta ár erlendis geta ekki kosið í komandi kosningum. Alþingi samþykkti í sumar frum- varp að nýjum kosningalögum. Í þeim er gert ráð fyrir að Íslend- ingar geti búið erlendis í allt að sex- tán ár án þess að missa kosninga- rétt sinn í kosningum. Nýju lögin taka gildi 1. janúar 2022. Tíu þúsund brott- fluttra mega kjósa Morgunblaðið/Árni Sæberg Kjör Það styttist í þingkosningar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.