Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 18
SVIÐSLJÓS
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
„Þau helstu mál sem brenna á Ís-
lendingum erlendis eru meðal ann-
ars greiðari leið fyrir maka að öðl-
ast íslenskan ríkisborgararétt ef
fjölskyldan býr erlendis, erfiðleikar
við endurnýjun vegabréfa, vesen
með að fá og nota rafræn skilríki
og ýmis konar þröskuldar sem tor-
velda flutninga aftur til Íslands,“
segir Ásgeir Ingvarsson, stofnandi
og umsjónaraðili Facebook-hópsins
Íslendingar í útlöndum, í samtali
við Morgunblaðið.
Hafa gleymst við lagasetningu
Ásgeir hefur staðið fyrir kosn-
ingaspjalli á Facebook-hópnum með
fulltrúum stjórnmálaflokkanna sem
bjóða sig fram til alþingiskosninga.
Hópfélagar deildu með frambjóð-
endum því sem þeim lá þeim á
hjarta og spurðu út í stefnuskrár
þeirra. „Þetta gekk glimrandi vel.
Flokkarnir eru loksins farnir að
gefa þessum kjósendahópi gaum,“
segir Ásgeir. Hann bætir við að Ís-
lendingar erlendis hafi lengi
gleymst við lagasetningu og ýmis
mál þarfnist athugunar.
Samkvæmt Þjóðskrá búa um 40
þúsund Íslendingar erlendis. „Ís-
land er flökkuþjóð. Við skerum
okkur úr þegar litið er á hlutfall
þeirra sem búa erlendis og erum í
fimmta sæti yfir lönd sem hafa
hæst hlutfall landsmanna búsetta
erlendis,“ segir Ásgeir.
Missi ekki ríkisborgararéttinn
Hann nefnir sem dæmi að margir
Íslendingar sem eiga erlenda maka
myndu vilja að maki þeirra eigi
þann möguleika að geta öðlast ís-
lenskan ríkisborgararétt þó að fjöl-
skyldan búi erlendis en í mörgum
Evrópuríkjum tíðkast að erlendur
maki geti fengið ríkisborgararétt
eftir ákveðið langan tíma í hjúskap,
óháð lengd búsetu í því landi sem
veitir ríkisborgararéttinn.
Annað stórt mál er að einstak-
lingar sem fæddir eru erlendis og
búa þar enn geti haldið íslenska
ríkisborgararéttinum en samkvæmt
lögum getur einstaklingur sem
fæddur er erlendis og hefur aldrei
átt lögheimili á Íslandi misst ríkis-
borgararétt sinn við tuttugu og
tveggja ára aldur nema hann sæki
sérstaklega um að halda ríkisfang-
inu.
Þá nefnir Ásgeir einnig að of erf-
itt sé að endurnýja íslensk vegabréf
erlendis og margir þurfi að ferðast
langar vegalengdir til að heimsækja
íslenskt sendiráð til að endurnýja
vegabréfið. Hann segir að skoða
mætti að gera ferlið rafrænt eða
taka upp samstarf við Norður-
löndin.
Rafræn skilríki eru annað hita-
mál. Ásgeir segir erfitt fyrir brott-
flutta að sækja sér rafræn skilríki
þar sem krafist er að notandi sé
með íslenskt símanúmer. Hann
nefnir einnig að gott væri ef Ísland
myndi gefa út nafnskírteini í korta-
stærð og segir Ísland og Danmörku
einu Evrópuríkin sem ekki gefi
slíkt út.
Að lokum segir Ásgeir háa
þröskulda mæta brottfluttum þegar
þeir flytja aftur til Íslands. Hann
nefnir miklar hindranir varðandi
lántöku og vísar einnig til svokall-
aðrar sex mánaða reglu sjúkra-
trygginga en samkvæmt henni þarf
sjúkratryggður að hafa búið hér-
lendis í að minnsta kosti sex mán-
uði áður en bóta er óskað úr
sjúkratryggingum.
„Þetta snýst ekki bara um að
fjarlægja óþarfa hindranir heldur
líka að auðvelda Íslendingum á Ís-
landi að stökkva á tækifærin er-
lendis. Við viljum geta sigrað heim-
inn án þess að þurfa berjast við
kerfið og við viljum að leiðin sé
greið út og sömuleiðis aftur heim,“
segir Ásgeir.
Koma kjörseðlum á réttan stað
Sjálfstæðisflokkurinn býður Ís-
lendingum búsettum erlendis upp á
aðstoð og upplýsingar um kosningu
utan kjörfundar. Þá aðstoðar flokk-
urinn einnig við móttöku atkvæða.
„Við höfum milligöngu á því að
koma kjörseðlunum í rétt kjördæmi
og ef það eru margir að senda sam-
an kjörseðla sem eiga að fara í mis-
munandi kjördæmi þá flokkum við
þá í sundur og finnum út hvar við-
komandi kjósandi er skráður út frá
síðasta lögheimili,“ segir Bryndís
Loftsdóttir, verkefnastjóri utan-
kjörfundarskrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins, í samtali við Morgun-
blaðið.
Íslendingar erlendis vilji kjósa
Þá býður flokkurinn einnig kjós-
endum sem eru búsettir á höfuð-
borgarsvæðinu, en með lögheimili
út á landi, að koma með atkvæði
sitt upp í Valhöll og þau koma þeim
á réttan stað. Bryndís segir um
helming atkvæða sem þau fá til sín
vera frá fólki innanlands og hinn
helminginn frá Íslendingum erlend-
is.
Bryndís kveðst finna á samtölum
sínum við Íslendinga búsetta er-
lendis, sem dottnir eru af kjörskrá,
að þeir séu skúffaðir yfir því að
geta ekki kosið. Hún segir að fyrir
alþingiskosningar 2009, 2016 og
2017 hafi verið gerðar undantekn-
ingar á svokallaðri 1. desember
reglu og var þá hægt að sækja um
að vera á þjóðskrá þrem vikum fyr-
ir kosningar en ekki hefur verið
veitt undantekning í ár.
Þá bendir Bryndís fólki á að það
þurfi að fara koma atkvæðum sín-
um til landsins með einhverjum
sem er á leið til hingað til að at-
kvæðið berist í tæka tíð þar sem
póstþjónusta er óáreiðanlegri vegna
heimsfaraldursins og tekur lengri
tíma fyrir bréf að komast á áfanga-
stað en áður. Bryndís bætir við að
hún býðst til að sækja atkvæði sem
fólk sendir með öðrum hvert sem
er á höfuðborgarsvæðinu og kemur
þeim á réttan stað.
„Allt fyrir lýðræðið“
„Við tökum á móti öllum atkvæð-
um og höfum enga leið til að sjá
hvað fólk er að kjósa og það skiptir
engu máli. Þetta er bara sjálfsögð
þjónusta. Allir eru velkomnir, allt
fyrir lýðræðið,“ segir hún að end-
ingu.
Fólk missi ekki ríkisborgararétt
- Flokkarnir farnir að gefa Íslendingum erlendis gaum - Háir þröskuldar þegar fólk flytur heim
- Erlendir makar fái ríkisborgararétt - Of erfitt að endurnýja vegabréf - Vilja nafnskírteini
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Íslendingar Talið er að um 40 þúsund Íslendingar séu búsettir erlendis og því mörg atkvæði í boði fyrir flokkana.
Bryndís
Loftsdóttir
Ásgeir
Ingvarsson
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
MEÐ SJÁLFBÆRNI
AÐ LEIÐARLJÓSI
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Alls hafa borist 779 aðsend atkvæði
til sýslumanns. Þetta kemur fram í
svari Ásdísar Höllu Arnarsdóttur,
sviðsstjóra þinglýsinga- og leyfis-
sviðs sýslumannsins á höfuðborg-
arsvæðinu, í skriflegu svari til
Morgunblaðsins.
„Ekki er haldið sérstaklega utan
um það hvaðan aðsend atkvæði
koma, ég hef því aðeins upplýs-
ingar um heildarfjölda aðsendra at-
kvæða án aðgreiningar á því hvort
þau koma erlendis frá eða innan-
lands,“ segir Ásdís.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðskrá eru um 40 þúsund Íslend-
ingar sem búsettir erlendis en af
þeim hafa 10.238 kosningarétt.
Kjósendur senda atkvæðin
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
erlendis fer fram í öllum sendiráð-
um Íslands erlendis og aðalræðis-
skrifstofum Íslands í New York,
Winnipeg, Nuuk og Þórshöfn í Fær-
eyjum. Þá er einnig er hægt að
kjósa utan kjörfundar eftir sam-
komulagi hjá kjörræðismönnum Ís-
lands erlendis. Kjósendum ber
sjálfum að póstleggja atkvæði sín
eða koma þeim á annan hátt í tæka
tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Ís-
landi. Atkvæðið þarf að hafa borist
kjörstjóra eða sýslumanns í síðasta
lagi á kjördag
Íslenskir ríkisborgarar sem hafa
átt lögheimili erlendis skemur en
átta ár, talið frá 1. desember 2020,
eru sjálfkrafa með kosningarétt og
geta kosið í komandi alþingiskosn-
ingum en þó er gerð krafa um að
hafa einhvern tíma átt lögheimili á
Íslandi. Þeir sem hafa átt lögheimili
erlendis lengur en átta ár, talið frá
1. desember 2020, þurftu að sækja
um til Þjóðskrár um að verða tekn-
ir á kjörskrá fyrir kosningarnar.
Fullnægjandi umsókn hefði þurftað
berast Þjóðskrár fyrir 1. desember
í fyrra. Þeir sem sendu því ekki um-
sókn og hafa búið lengur en átta ár
erlendis geta ekki kosið í komandi
kosningum.
Alþingi samþykkti í sumar frum-
varp að nýjum kosningalögum. Í
þeim er gert ráð fyrir að Íslend-
ingar geti búið erlendis í allt að sex-
tán ár án þess að missa kosninga-
rétt sinn í kosningum. Nýju lögin
taka gildi 1. janúar 2022.
Tíu þúsund brott-
fluttra mega kjósa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjör Það styttist í þingkosningar.