Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 25
ensku. Við þurfum að vera ótrúlega góðir í „communication“, hvað heitir það aftur á íslensku?“ spyr Patrekur og blaðamaður bjargar honum með samskipti. „Fólkið okkar kemur frá 30 löndum og viðhorfin og menningin eru ólík milli landa, þarna þarf að gæta sín. Við erum líka með keppi- nauta sem borga fólki of lág laun, bransinn okkar, ræstingar, er starfs- svið sem oft er litið niður á, við þurf- um að setja mjög mikla vinnu í að byggja ræstingastarfið upp,“ segir Patrekur. Einn liður í þessari uppbyggingu er eins konar skóli sem Support Ser- vice Partner rekur. „Við bjóðum öll- um starfsmönnum okkar upp á nám- skeið og viljum hafa alvörufagfólk á okkar snærum. Margir átta sig ekki á mikilvægi ræstinga, til dæmis á vinnustöðum, ef þessu starfi er ekki sinnt stoppar allt og ræstingafólk fær oft ekki þá virðingu sem það á skilið og við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að breyta þeirri ímynd,“ segir hann. Þeir félagarnir auglýsa ekki mikið en halda úti söludeild hverrar starfs- menn hringja látlaust í fyrirtæki og bjóða upp á þjónustu. Kúnnarnir koma ekki sjálfir. „Enginn kemur til okkar, við förum til þeirra. Og við er- um heldur ekki hræddir við að treysta starfsfólkinu okkar og veita því ábyrgð. Margir stjórnendur ótt- ast að gefa öðrum ábyrgð vegna þess að þeir eru hræddir um að enginn geri hlutina eins vel og þeir. Ef þú hugsar svona getur fyrirtækið þitt ekki vaxið, þú kemst ekkert áfram. Þess vegna erum við mjög uppteknir af því að láta fólkið okkar bera ábyrgð. Auðvitað eru alltaf einhver rotin epli inn á milli en okkur finnst eina rétta leiðin að veita fólki frelsi og traust til að vinna vinnuna sína á réttan hátt. Fólk nýtur okkar trausts þangað til við höfum ekki ástæðu til að treysta því lengur og það hefur al- veg gerst,“ segir Patrekur og lítur djúpt í augu blaðamanns. Hér fylgir hugur máli. Orðstír deyr aldregi „Ræstingabransinn er þannig að enginn tekur eftir því þegar við vinnum vinnuna okkar, fólk tekur hins vegar eftir því þegar við vinnum hana ekki. Við fáum alls konar kvart- anir, stórar og smáar, okkar styrkur liggur kannski fyrst og fremst í því að við leysum málin fljótt og gerum það þannig að viðskiptavinurinn er ánægður. Öðruvísi rekurðu ekki fyrirtæki.“ Spurður út í framtíðarstefnu fyrir- tækisins segir Patrekur stefnuna vera að tuttugufalda stærð þess áður en þeir Ghazi standi á fertugu. Þeir ætla sér að velta milljarði norskra króna innan 14 ára. „Við höfum gott orðspor, fólk mæl- ir með okkur og það skilar miklu. Auðvitað eru þetta sjaldnast ein- staklingar, þetta eru mestallt fyrir- tæki sem eru að mæla með okkur við önnur fyrirtæki,“ segir Patrekur sem auk þess er eftirsóttur fyrirlesari í frumkvöðlafræðum við norska fram- halds- og háskóla. Förum aðeins yfir það. „Ég held oft fyrirlestra innan þess sem heitir „ung entreprenørskap“ [ungir frumkvöðlar] sem er nám í framhaldsskólum sem fjallar um að stofna eigin fyrirtæki. Þetta er nám sem væntanlegir stofnendur fyrir- tækja velja sér. Ég er mest hérna í Vestfold að tala við þessa nemendur en auk þess er ég dómari í árlegri keppni þar sem nemendur koma fram með hugmyndir sínar og kynna rekstrardrauma sína.“ Nú er miklu púðri varið í rekstur, fyrirtæki og grjótharðan vilja til að standa sig. Á þessu er enginn hörg- ull. En Patrekur á sér fleiri líf, inni í stofu situr gullfalleg kærasta og ræð- ir við móður Patreks. Þetta er sem fyrr segir Celina Svanberg frá Lar- vik. Hvernig stendur á þessu? „Við kynntumst um páskana í fyrra, hún fann mig á Tinder,“ segir Patrekur og hlær. „Ég bauð henni bara beint á stefnumót og hún er ekki farin heim enn þá. Ég sendi einn starfsmann hjá mér heim til hennar fyrst með páskaegg og inni í því voru skrifuð skilaboð frá mér. Þetta var maður frá Sómalíu og henni kolbrá auðvitað. Næsta dag sendi ég svo annað páskaegg sem í þetta sinn inni- hélt USB-lykil. Á honum var mynd- skeið þar sem strákur frá Bangla- dess þakkar henni fyrir stefnumótið fyrir mína hönd,“ segir Patrekur og sýnir rómantísku hliðina. „Við seldum svo íbúðirnar okkar og keyptum okkur þetta hús saman og sex mánuðum seinna varð hún ólétt. Við eignumst stelpu í október og hún á að heita Ilma, Ilma Patreks- dóttir,“ segir Patrekur Sólrúnarson við lok stórskemmtilegs samtals, maður sem hætti 17 ára gamall í framhaldsskóla til að láta draumana rætast og dæmi nú hver sem vill um hvort þeir gerðu það ekki í Tønsberg í Noregi. Ljósmynd/Úr einkasafni Jólahlaðborðið Starfsmenn komu Patreki og Ghazi á óvart með blómvendi og gjöf á jólahlaðborðinu. Morgunblaðið/Atli Steinn Með mömmu Patrekur er sonur Sólrúnar Stefáns- dóttur, vaxtarræktarkonu og naglasérfræðings. FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 Umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán geta nú óskað eftir því að ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán haldi áfram. Þetta er gert með því að skrá sig inn áwww.leidretting.is og óska eftir að gildistími ráðstöfunar sé framlengdur. Frestur til að óska eftir áframhaldandi ráðstöfun inn á lán er til og með 30. september 2021. Eftir það gilda umsóknir aðeins frá þeim mánuði þegar þær berast. Ef gildistími umsókna er ekki framlengdur falla umsóknir úr gildi frá og með 1. júlí 2021 og engar frekari greiðslur berast inn á lán. Heimild til ráðstöfunar séreignarsparnaðar framlengd um tvö ár Heimild til að nýta séreignarsparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól láns hefur verið framlengd til 30. júní 2023. Þeir sem nú þegar nýta sér úrræðið og vilja halda því áfram þurfa að óska eftir framlengingu. skatturinn@skatturinn.is 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Lengri útgáfa af viðtalinu verður birt á mbl.is. mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.