Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 32
32 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
TESLA - MODEL 3 LR AWD – RN. 340561.
Nýskráður 4/2019, ekinn 36 þ.km., rafmagn, hvítur,
sjálfskiptur, hiti í framrúðu, glerþak, litað gler,
360° myndavél, bluetooth, GPS, leður, topplúga
Verð 5.690.000 kr.
MAZDA - CX-3 VISION – RN. 340522
Nýskráður 6/2017, ekinn 75 þ.km., bensín, brúnn,
sjálfskiptur, fjarlægðarskynjarar, hraðastillir, filmur,
bakkmyndavél, bluetooth, lyklalaust aðgengi.
Verð 2.590.000 kr.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
LAND ROVER - DISCOVERY SPORT HSE
RN. 331540. Nýskráður 4/2017, ekinn 76 þ.km.,
dísel, grár, sjálfskipting, driflæsing, dráttarkrókur,
akreinavari, leiðsögukerfi, hiti í stýri, bakkmyndavél.
Verð 5.990.000 kr.
HYUNDAI - I20 – RN. 191863
Nýskr. 12/2020, ekinn 6 þ.km., bensín, grár,
beinskipting, hiti í stýri, álfelgur, bluetooth,
handfjáls búnaður, stöðugleikakerfi.
Verð 2.490.000 kr.
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Útlit er fyrir að heimsfaraldurinn
muni haldi áfram að bíta í ferðaþjón-
ustuna og veturinn fram undan verði
erfiður. Erlendir ferðamenn verða að
öllum líkindum talsvert færri í ár en
spár gerðu ráð
fyrir. Þetta segir
Jóhannes Þór
Skúlason, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar, í
samtali við Morg-
unblaðið.
Í upphafi sum-
ars spáðu grein-
ingardeildir bank-
anna því að
600-800 þúsund erlendir ferðamenn
kæmu hingað til lands í ár. Þá spáði
Ferðamálastofa því í lok ágúst að þeir
yrðu um 890 þúsund talsins.
Jóhannes segir það þó orðið „alveg
ljóst“ að þeir verði nær því að vera
600 þúsund talsins.
Í upphafi sumars virtist vera að
birta yfir ferðaþjónustunni þegar
verulega var dregið úr fjölda-
takmörkunum vegna faraldursins
hér á landi og sóttvarnaaðgerðir á
landamærunum rýmkaðar. Þrátt fyr-
ir það gekk illa að ráða í störf geirans,
að sögn Jóhannesar.
„Heilt yfir gekk það verr en við
mátti búast og í raun mjög illa í upp-
hafi sumars,“ segir hann. „Það er
ýmsu um að kenna. Bæði hefur fólk í
greininni hætt og farið í nám, leitað í
önnur störf í öðrum greinum eða ein-
faldlega farið á atvinnuleysisbætur
og ekki treyst sér til að fara út á
vinnumarkaðinn aftur.“
Vegna óvissunnar sem faraldurinn
hefur haft í för með sér er erfitt að
meta mannaflaþörfina í vetur. Hún
muni þó að öllum líkindum fara
minnkandi, segir Jóhannes inntur
eftir því.
„Við sjáum fram á það að ákveðnir
hópar, sem hafa verið okkur mjög
mikilvægir, muni lítið láta sjá sig í
vetur.“
Þar nefnir hann annars vegar
ferðamenn frá Bretlandi, sem hafa
bæði verið að koma hingað á haustin
og vorin, og hins vegar ferðamenn frá
Asíu, sem hafa komið hingað í stórum
fylkingum í kringum jól og áramót.
„Það er ólíklegt að hér verði jafn
mikið flæði af þessum ferðamönnum,
bæði vegna takmarkana og stöðu far-
aldursins í löndunum sem þeir koma
frá,“ segir hann. „Það gefur augaleið
að þegar við kippum þessum tveimur
hópum nánast alveg út stendur
bandaríski markaðurinn eftir sem sá
mikilvægasti.“
Í ágúst hafi sóttvarnastofnun
Bandaríkjanna (CDC) þó sett Ísland
á hæsta hættustig stofnunarinnar og
þar með ráðið bandarískum ferða-
mönnum frá því að ferðast hingað til
lands. Inntur eftir því segir Jóhannes
ákvörðun CDC hafa haft merkjanleg
áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi.
„Þetta hafði ekki afgerandi áhrif á
það sem hafði þegar verið bókað áður
en þessi ákvörðun var tekin en þetta
hefur haft merkjanleg áhrif á eftir-
spurnina í kjölfarið, sérstaklega núna
í september.“
Segir erfiðan vetur fram undan
Því sé ljóst að verulega muni
slakna á ferðaþjónustunni hér á landi
í lok þessa mánaðar og mikilvægt sé
að stjórnvöld bregðist við því með
viðeigandi aðgerðum, að sögn Jó-
hannesar.
„Við eigum von á því að töluverðu
af fyrirtækjum, t.d. á landsbyggðinni,
verði bara lokað í vetur,“ segir hann.
„Þar koma t.d. ráðningarstyrkir
sterkir inn en það er mjög mikilvægt
að það úrræði verði framlengt fram á
næsta sumar. Það myndi minnka
óvissu starfsfólks í þessum geira
verulega.“
Aðspurður segist Jóhannes bjart-
sýnn á að stjórnvöld fari í að leysa
vanda ferðaþjónustunnar.
„Við hlökkum bara til að eiga sam-
talið við næstu ríkisstjórn, hver svo
sem hún verður.“
Þótt talsmenn SA séu bjartsýnir að
eðlisfari hafi þeir áhyggjur af því sem
koma skal, að sögn Jóhanns.
„Það er alveg ljóst að þetta verður
mjög erfiður vetur.“
Ferðaþjónustan í frost
- Erlendir ferðamenn verða færri í ár en spár gerðu ráð fyrir - Mannaflaþörf fer
minnkandi - Einhver fyrirtæki gætu þurft að draga saman seglin í lok sumars
Þúsundir
Fjöldi erlendra ferðamanna til Íslands
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
2016 2017 2018 2019 2020 2020 2021 2021
Heildarfjöldi erlendra ferðamanna 2016 til 2020
skv. tölum frá Ferðamálastofu
Fjöldi í janúar
til ágúst
Spár um
heildarfjölda
árið 2021
451
337
1.792
2.225
2.342
2.013
486
600
890
Spár Arion banka, Hagstofunnar,
Landsbankans, Íslandsbanka,
Ferðamálastofu og Seðlabankans
gerðar á tímabilinu mars til ágúst
2021 hafa verið um 600 til 890
þúsund ferðamenn á árinu
Jóhannes Þór
Skúlason
framleiðslu á íslensku viskíi þegar
hann var á ferðalagi í Skotlandi. „Þá
tók ég eftir því að veður- og hitaskil-
yrðin í Skotlandi eru ekkert svo ólík
skilyrðunum hér á Íslandi. Þá vakn-
aði spurningin um það hvers vegna
við værum ekki líka að framleiða
viskí.“
Hreint umhverfi, gott aðgengi að
hráefni og græna orku segir hann
vera það sem geri íslenska viskí-
framleiðslu vænlega til vinnings en
lykilhráefnin í viskí eru korn, ger og
vatn. „Að framleiða á svona hreinu
landi gæti skilað sér í mjög góðu vis-
kíi.“
Viskíið frá Þoran mun þurfa að
liggja í tunnum næstu þrjú árin áður
en hægt verður að selja það, að sögn
Birgis. Þangað til getur fólk bragð-
að á íslensku gini frá Þoran, sem
fæst bæði í ÁTVR og í fríhöfninni
eða íslensku Limoncello sem er
væntanlegt í verslanir von bráðar.
Úrval af íslensku viskíi mun brátt
aukast en ný tegund af íslensku vis-
kíi frá bruggverksmiðjunni Þoran
fór í tunnur í fyrsta sinn á þessu ári.
Aðeins ein tegund af alíslensku vis-
kíi hefur verið fáanleg hér á landi
fram að þessu en það er frá brugg-
verksmiðjunni Eimverki.
Inntur eftir því segist Birgir Már
Sigurðsson, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri Þoran distillery, hafa
fengið hugmyndina um að hefja
Viskí frá Þoran distillery komið í tunnur
Ljósmynd/Þoran distillery
Viskí er látið liggja í viðartunnum.
16. september 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.99
Sterlingspund 177.35
Kanadadalur 101.13
Dönsk króna 20.333
Norsk króna 14.865
Sænsk króna 14.904
Svissn. franki 138.87
Japanskt jen 1.1623
SDR 182.3
Evra 151.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.1385
Upplýsingatæknifyrirtækið Luc-
inity, sem framleiðir gervi-
greindarhugbúnað sem hjálpar
fyrirtækjum að berjast gegn
peningaþvætti, var valið vaxt-
arsproti ársins (e. Nordic Scale-
up of the Year)
á fjártækniviku
Kaupmanna-
hafnar (CPH
Fintech Week)
í síðustu viku.
Fjártækni-
vikan er haldin
á ári hverju af
CPH Fintech
sem er að sögn
Guðmundar
Kristjánssonar,
framkvæmdastjóra Lucinity,
einn sterkasti nýsköpunarklasi
Norðurlanda.
Lucinity atti kappi við tíu önn-
ur norræn sprotafyrirtæki, en
þrjú voru valin úr hópnum til að
kynna starfsemi sína nánar fyrir
dómnefnd.
„Það sem var hvað merkilegast
við þessa verðlaunahátíð var
dómnefndin. Hún var skipuð
fulltrúum frá Citibank, eins
stærsta banka í heimi, endur-
skoðunarfyrirtækinu Ernst &
Young, Klarna, eins stærsta fjár-
tæknisprota Norðurlanda, og
Lunar, stærsta nýja bankans á
Norðurlöndum,“ segir Guð-
mundur.
Aukinn trúverðugleiki
Spurður um þýðingu verð-
launanna segir Guðmundur þau
mikilvæg upp á aukinn trúverð-
ugleika á markaðnum. „Einnig
skipta þau máli til að sýna fjár-
festum Lucinity að mögulegir
kaupendur að okkar vörum og
þjónustu séu spenntir fyrir því
sem við erum að gera.“
Lucinity
vaxtarsproti
ársins
Guðmundur
Kristjánsson.
- Spennandi dóm-
nefnd - 10 kepptu
Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar hefur atvinnuleysi í ferða-
þjónustunni aukist talsvert frá því í upphafi árs 2020.
Þar hefur atvinnulausum í gistiþjónustu fjölgað hvað mest en í janúar
2020 voru þeir 543 talsins samanborið við 724 í ágúst 2021. Er það 33%
aukning á rúmu einu og hálfu ári. Þá hefur atvinnulausum konum innan
ferðaþjónustunnar fjölgað um 27% samanborið við 13% fjölgun karla á
síðastliðnu 1,5 ári. Í janúar 2020 voru atvinnulausir karlar í ferðaþjón-
ustu 2.142 talsins en í ágúst 2021 voru þeir 2.416. Atvinnulausar konur
voru 1.837 í upphafi árs 2020 samanborið við 2.334 í ágúst 2021.
Þá eru hlutfallslega fleiri Íslendingar heldur en útlendingar í starfs-
greininni enn án atvinnu eða um 21% á móti 17%.
Atvinnuleysi hefur aukist í ár
VINNUMARKAÐUR