Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 37

Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 Samkeppnin um sjónvarpsmínúturnar er hörð þegar aðeins níu dagar eru til al- þingiskosninga. Mál- flutningur flestra frambjóðenda ein- kennist af miklu hug- myndaflugi þegar kemur að nýjum rík- isútgjöldum. Skatta- sinnar telja að leysa megi hvers manns vanda með aukn- um ríkisútgjöldum og hærri skött- um. Það virðist hins vegar oft vera feimnismál hver eigi að greiða reikninginn. Slíkur málflutningur er ábyrgð- arlaus og ekki í neinu samræmi við stöðu ríkisfjármála. Árið 2021 var 144 milljarða króna halli á ríkis- sjóði. Þá voru fjárlög yfirstandandi árs afgreidd með 326 milljarða króna halla en horfur eru á að hann verði eitthvað lægri. Skuldir í dag eru skattur á morgun Samstaða var um það meðal al- þingismanna að reka ríkissjóð tíma- bundið með miklum halla vegna kórónukreppunnar. Forsenda slíkr- ar skuldaaukningar var sterk staða ríkissjóðs eftir mikla lækkun ríkis- skulda í góðærinu 2014-2018. Hætt- an er þó sú að tímabundinn halla- rekstur ríkissjóðs verði varanlegur, einkum ef vinstristjórn tekur við valdataumum eftir kosningar. Við þekkjum að ýmsir „tímabundnir“ skattar hafa orðið varanlegir. Í kosningastefnu Sjálfstæðisflokksins er áhersla lögð á ábyrga efnahagsstjórn og skynsamleg ríkisfjár- mál. Flokkurinn tekur ekki þátt í því yfirboði á skattfé, sem vinstri- flokkarnir stunda nú í aðdraganda kosninga. Öll slík yfirboð eru ávísun á aukna skulda- söfnun og hækkun skatta eins og landsmenn þekkja. Vísum vandanum ekki til komandi kynslóða Eitt mikilvægasta verk næstu ríkisstjórnar verður að lækka skuldir ríkissjóðs. Auka þarf ráð- deild í ríkisrekstri og örva hagvöxt og auðvelda ríkinu þannig að greiða niður skuldir sínar. Við þurfum að vaxa upp úr vandanum með því að auka verðmætasköpun og gera at- vinnulífinu kleift að blómstra. Það væri feigðarflan að reka ríkissjóð með halla til langframa og vísa vandanum þannig til komandi kyn- slóða. Oft vantar upp á að ríkisfjármál séu rædd með ábyrgum hætti í kosningabaráttunni. Margir fram- bjóðendur tala fjálglega og dreymn- ir á svip um mikla hækkun ríkis- útgjalda og ný verkefni upp á hundruð milljarða króna. Reikning- inn á að senda á ríkissjóð, sem þýð- ir að þjarma á enn frekar að skatt- píndum almenningi. Oft vantar upp á að stjórnendur umræðuþátta krefji frambjóðendur um skýr svör við því hvernig eigi að fjármagna herlegheitin. Verður það gert með hækkun skatta, nýjum lántökum, óðaverðbólgu eða jafnvel þessu öllu? Og hvernig á að eyða halla ríkissjóðs, sem er auðvitað ærið verkefni án þess að nokkur ný út- gjöld bætist við? Íslendingar axla nú næsthæstu skattbyrðina innan OECD. Lof- orðaflaumur vinstrisinnaðra fram- bjóðenda þýðir að þeir vilja koma Íslandi í efsta sæti yfir þyngstu skattbyrðina. Sjálfstæðisflokkurinn, XD, er hins vegar eini flokkurinn, sem leggur áherslu á traustan rekstur ríkissjóðs og lækkun skatta. Höfnum skattaglöðum stjórnmálamönnum Eftir Kjartan Magnússon Kjartan Magnússon » Vinstriflokkarnir boða stórhækkun ríkisútgjalda. Þjarmað skal enn frekar að skatt- píndum almenningi. Sjálfstæðisflokkurinn leggur hins vegar áherslu á ábyrga efna- hagsstjórn og skyn- samleg ríkisfjármál. Höfundur skipar 4. sæti framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík- urkjördæmi nyrðra. kjartanmagg@gmail.com til að auðvelda fyrirtækjum að ráða fólk. Þá viljum við lækkun bifreiða- gjalda um allt að 25% sem nýtist hinum tekjulágu best. Miðflokk- urinn hyggst hrinda í framkvæmd því sjálfsagða réttlætismáli að af- nema stimpilgjöld, hve sanngjarnt er að setja sérstakan skatt á skuld- ara? Þá viljum við fimmfalda frí- tekjumark atvinnutekna í 500 þús- und á mánuði, sem er sjálfsagt réttindamál. Þá viljum við afnema skattlagn- ingu á hlunnindi starfsfólks enda ósanngjarn tekjustofn því flest hlunnindi tengjast með beinum hætti vinnunni og eru því nauðsyn- leg. Þá viljum við tryggja litlum fyrirtækjum ríflegri skattaafslætti með það að markmiði að styrkja og bæta samkeppnisstöðu þeirra. Það er erfitt fyrir litlu fyrirtækin að halda sjó, það þarf aðstoða þau enda ein helsta undirstaða atvinnu- lífs landsmanna. Skerðingar afnumdar En þessi sanngirnis- og réttlæt- isnálgun á að ná til fleiri. Eldri borgarar geta ekki beðið lengur og Miðflokkurinn leggur áherslu á að núverandi fyrirkomulag skerðinga verði afnumið og þess í stað komið á sanngjörnu kerfi þar sem ævi- starf fólks er virt og komið á já- kvæðum hvötum sem stuðla að vinnu, verðmætasköpun og sparn- aði. Þeir sem vilja vinna lengur en núverandi lög um starfslok gera ráð fyrir eiga að hafa rétt á því. Það er réttlátt og hagkvæmt fyrir ríkissjóð, lífeyriskerfið og sam- félagið allt. Sömu viðmið um sann- girni, eðlilegt lífsviðurværi og já- kvæða hvata skulu eiga við um örorkulífeyri. Innleiðum hagkvæmni og skilvirkni Það er mannúðlegt og hagkvæmt að eyða biðlistum. Því fyrr sem fólk fær lækningu því betra fyrir einstaklinginn og samfélagið. Það er líka hagkvæmt að byggja fleiri hjúkrunarheimili og efla heima- hjúkrun og þjónustuheimili sem henta þeim sem hafa heilsu til. Þegar við verðum búin að laga kerfið mun fólk ekki heyra fleiri fréttir um að- og fráflæðisvanda. Þetta er allt spurning um skipulag og góðan rekstur byggðan á skyn- semi, ekki pólitískum kreddum. Við erum mjög ánægð með það loforð sem við höfum gefið kjós- endum um að öllum íslenskum rík- isborgurum, búsettum á Íslandi, 40 ára og eldri, býðst almenn heil- brigðisskimun á þriggja ára fresti þeim að kostnaðarlausu. Við viljum nálgast hlutina á nýjan hátt og þessi aðferð getur markað tímamót í heilsufari þjóðarinnar. Að lokum hvet ég lesendur til að kynna sér stefnuskrá Miðflokksins og þau 10 nýju réttindi fyrir ís- lenska þjóð sem formaður flokks- ins kynnti fyrir stuttu. Að lestri loknum muntu komast að því að loks eru komnar fram lausnir sem munu raungera þá stefnu, sem leg- ið hefur í láginni hjá öllum stjórn- málaflokkum síðastliðin 20 ár, sem nefnd hefur verið „stétt með stétt“ og við í Miðflokknum munum raun- gera undir slagorðinu „stétt með stétt – raunverulega“. »Eldri borgarar geta ekki beðið lengur og Miðflokkurinn leggur áherslu á að núverandi fyrirkomulag skerðinga verði afnumið Höfundur er byggingarverkfræð- ingur og skipar 2. sæti á lista Mið- flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. tomasellert@gmail.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.