Morgunblaðið - 16.09.2021, Side 44

Morgunblaðið - 16.09.2021, Side 44
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Fyrir rúmlega ári sendi Lilja mér skilaboð um að hún vildi byrja með hlaðvarp um Bachelor-þættina. Hún var í Facebook-grúppunni minni, Piparsveinar og piparmeyjar, þar sem ég geri samantekt um hvern þátt og vissi hún þess vegna að ég væri jafn mikið nörd og hún. Viku seinna tókum við upp fyrsta þáttinn og við höfum tekið upp 72 þætti síð- an þá,“ segir Unnur Eggertsdóttir, leikkona og söngkona og annar af tveimur hlaðvarpsstjórnendum í vin- sæla Bachelor-hlaðvarpinu Fant- asíusvítunni. Hún byrjaði á dög- unum með annað hlaðvarp, hlaðvarpið Tjikk Tjatt ásamt El- ísabetu Hönnu vinkonu sinni en það fjallar um allt það sem mótaði þúsaldar- kynslóðina. „Ég dýrka hlaðvörp. Þetta er svo skemmtilegur vettvangur fyrir afslapp- aðar umræður og hægt að kafa svo djúpt,“ segir Unnur. „Við Elísabet Hanna erum búnar að vera vinkonur síðan við vorum 13 ára. Við erum rosalega týpískar þúsald- arstelpur – elskuðum „chick- flicks“, horfðum á alla unglingaþættina eins og „One Tree Hill“ og „The O.C.“ og vorum með plag- göt af Channing Tatum uppi á vegg,“ segir Unnur. „Þegar Elísabet sagði mér frá hugmyndinni að „Tjikk Tjatt“ varð ég sjúk- lega spennt að hafa afsökun til að „endurheimsækja“ myndir eins og „Mean Girls“ og „Notebook“, sem hafa elst misvel,“ segir Unnur og bæt- ir við að kvikmyndin „Notebook“ sé „núll rómantísk þegar maður horfir á hana með fem- íniskum augum nú- tímans“. „Noah er basically ást- sjúkur ofbeldismaður sem hótar að drepa sig ef Allie fer ekki á deit með honum. Svo er hún alltaf að lemja hann. Við ræðum „Notebook“ í þætti tvö. Ég mæli með að fólk hlusti og sendi okkur hvað þeim finnst,“ segir Unnur. Unnur er með mjög fjölbreyttan hlaðvarpssmekk en hún mælir hér með sínum uppáhaldshlaðvörpum: Armchair expert „Dax Shephard er fullkomið dæmi um karlmann sem er í stöðugri sjálfsskoðun, er meðvit- aður um forréttindi sín og talar við fólk af miklum áhuga og forvitni. Hann og Monica eru æðislegt duo.“ Higher Learning with Van Lathan & Rachel Lindsay „Fyrrverandi Bac- helorettan Rachel fer yfir mál líðandi stund- ar og kafa ofan í þau út frá sjónarhorni svartra í Bandaríkjunum. Mæli með fyrir fólk sem vill breikka sjóndeildarhring- inn.“ Bíóblaður „Hafsteinn er kvik- myndanörd af guðs náð. Það er mjög gaman að heyra hann tala um bíó- myndir við skemmtilega gesti.“ Í ljósi sögunnar „Þarf að segja meira?“ How to Fail with Elizabeth Day „Dýrka að heyra fólk tala um mistökin sín og deila hvað það hefur lært af þeim. Mikið af skemmtilegum gestum og skemmtilegum „failures.““ Fimm áhugaverð hlaðvörp vikunnar Ljósmynd/Saga Sig Fjölhæf Unnur Eggertsdóttir er afar fjölhæf og er með fjöl- breyttan smekk á hlaðvörpum. Unnur Eggertsdóttir, leikkona, söngkona og hlað- varpsstjórnandi í bachelorhlaðvarpinu Fantasíusvít- unni og glænýja þúsaldarkynslóðahlaðvarpinu Tjikk Tjatt, deilir sínum fimm uppáhaldshlaðvörpum. Unnur Eggertsdóttir gefur álit MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ í Danmörku Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Vefverslun: selena.is í fullum gangi Útsalan 50% afsláttur af allri útsöluvöru

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.