Morgunblaðið - 16.09.2021, Síða 44
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Fyrir rúmlega ári sendi Lilja mér
skilaboð um að hún vildi byrja með
hlaðvarp um Bachelor-þættina. Hún
var í Facebook-grúppunni minni,
Piparsveinar og piparmeyjar, þar
sem ég geri samantekt um hvern
þátt og vissi hún þess vegna að ég
væri jafn mikið nörd og hún. Viku
seinna tókum við upp fyrsta þáttinn
og við höfum tekið upp 72 þætti síð-
an þá,“ segir Unnur Eggertsdóttir,
leikkona og söngkona og annar af
tveimur hlaðvarpsstjórnendum í vin-
sæla Bachelor-hlaðvarpinu Fant-
asíusvítunni. Hún byrjaði á dög-
unum með annað hlaðvarp,
hlaðvarpið Tjikk Tjatt ásamt El-
ísabetu Hönnu vinkonu
sinni en það fjallar um allt
það sem mótaði þúsaldar-
kynslóðina.
„Ég dýrka hlaðvörp.
Þetta er svo skemmtilegur
vettvangur fyrir afslapp-
aðar umræður og hægt að
kafa svo djúpt,“ segir Unnur.
„Við Elísabet Hanna erum
búnar að vera vinkonur síðan
við vorum 13 ára. Við erum
rosalega týpískar þúsald-
arstelpur – elskuðum „chick-
flicks“, horfðum á alla
unglingaþættina eins og
„One Tree Hill“ og „The
O.C.“ og vorum með plag-
göt af Channing Tatum
uppi á vegg,“ segir Unnur.
„Þegar Elísabet sagði
mér frá hugmyndinni að
„Tjikk Tjatt“ varð ég sjúk-
lega spennt að hafa afsökun
til að „endurheimsækja“
myndir eins og „Mean Girls“
og „Notebook“, sem hafa elst
misvel,“ segir Unnur og bæt-
ir við að kvikmyndin
„Notebook“ sé „núll
rómantísk þegar maður
horfir á hana með fem-
íniskum augum nú-
tímans“.
„Noah er basically ást-
sjúkur ofbeldismaður
sem hótar að drepa sig ef Allie fer
ekki á deit með honum. Svo er hún
alltaf að lemja hann. Við ræðum
„Notebook“ í þætti tvö. Ég mæli
með að fólk hlusti og sendi okkur
hvað þeim finnst,“ segir Unnur.
Unnur er með mjög fjölbreyttan
hlaðvarpssmekk en hún mælir hér
með sínum uppáhaldshlaðvörpum:
Armchair expert
„Dax Shephard er fullkomið dæmi
um karlmann sem er í stöðugri
sjálfsskoðun, er meðvit-
aður um forréttindi sín og
talar við fólk af miklum
áhuga og forvitni. Hann
og Monica eru æðislegt
duo.“
Higher Learning with
Van Lathan &
Rachel Lindsay
„Fyrrverandi Bac-
helorettan Rachel fer
yfir mál líðandi stund-
ar og kafa ofan í þau
út frá sjónarhorni
svartra í Bandaríkjunum.
Mæli með fyrir fólk sem vill
breikka sjóndeildarhring-
inn.“
Bíóblaður
„Hafsteinn er kvik-
myndanörd af guðs náð.
Það er mjög gaman að
heyra hann tala um bíó-
myndir við skemmtilega
gesti.“
Í ljósi sögunnar
„Þarf að segja meira?“
How to Fail with
Elizabeth Day
„Dýrka að heyra fólk tala
um mistökin sín og deila
hvað það hefur lært af þeim.
Mikið af skemmtilegum gestum og
skemmtilegum „failures.““
Fimm áhugaverð
hlaðvörp vikunnar
Ljósmynd/Saga Sig
Fjölhæf Unnur Eggertsdóttir
er afar fjölhæf og er með fjöl-
breyttan smekk á hlaðvörpum.
Unnur Eggertsdóttir, leikkona, söngkona og hlað-
varpsstjórnandi í bachelorhlaðvarpinu Fantasíusvít-
unni og glænýja þúsaldarkynslóðahlaðvarpinu Tjikk
Tjatt, deilir sínum fimm uppáhaldshlaðvörpum.
Unnur Eggertsdóttir gefur álit
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum
frá CASÖ í Danmörku
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Vefverslun: selena.is
í fullum gangi
Útsalan
50%
afsláttur
af allri
útsöluvöru