Morgunblaðið - 16.09.2021, Page 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
✝
Jón Svein-
björnsson
fæddist í Reykjavík
27. júlí 1928. Hann
lést 1. september
2021. Foreldrar
Jóns voru hjónin
Sveinbjörn Jónsson
hæstaréttar-
lögmaður, f. 5.11.
1894, d. 27.10.
1979, og Þórunn
Bergþórsdóttir
húsmóðir, f. 8.11. 1895, d.
13.10. 1949. Systir Jóns var
Helga Bergþóra auglýs-
ingateiknari, f. 6.3. 1933, d.
21.11. 2000.
Jón kvæntist 5. september
1954 Guðrúnu Magnúsdóttur
húsmóður, f. 23.8. 1932. For-
eldrar hennar voru Magnús
Bjarnason skipasmíðameistari,
f. 30.12. 1900, d. 8.12. 1992, og
Ingibjörg Halldórsdóttir hús-
móðir, f. 29.10. 1906, d. 3.8.
1999.
Börn Jóns og Guðrúnar eru:
1) Sveinbjörn verkfræðingur, f.
26.12. 1954, hann á fjórar dæt-
ur: a) Guðrúnu Eddu verkfræð-
ing, f. 22.10. 1984, móðir Jenný
Gunnarsdóttir, f. 1.3. 1957.
Dætur Guðrúnar Eddu og Just-
in Christopher Shouse, f. 16.9.
1981, eru Sóley Lilja, f. 12.12.
2017, og Alma Ingibjörg, f. 6.5.
2021. Maki Sveinbjörns er Sig-
b) Alexander Jose verk-
fræðinemi, f. 25.7. 1996, og c)
Anna Guðrún viðskipta-
fræðinemi, f. 26.8. 2000. 4)
Halldór lögmaður, f. 23.7. 1966,
synir hans og Önnu Dóru
Helgadóttur lögfræðings, f. 6.5.
1966, eru: a) Helgi, tölfræð-
ingur og tölvunarfræðingur, f.
17.8. 1994, og b) Jón Sveinbjörn
fjármálastærðfræðingur, f.
30.9. 1996. 5) Ingibjörg, land-
fræðingur og dósent, f. 1.4.
1969, synir hennar og Richards
Fraser Yeo eðlisfræðings, f.
3.12. 1966, eru: a) Bergur
Helgi, f. 2.11. 2003, og b) Jón
Björn, f. 5.8. 2005, framhalds-
skólanemar.
Jón ólst upp við Marargötu í
Reykjavík en síðan í Ártúns-
brekku við Elliðaár. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1948, fil.
cand.-prófi í grísku, trúar-
bragðafræðum og heimspeki
frá Uppsalaháskóla árið 1955,
cand. theol. prófi frá Háskóla
Íslands árið 1959. Stundaði
framhaldsnám í grísku og nýja-
testamentisfræðum við Upp-
salaháskóla og við Háskólann í
Cambridge á Englandi. Starfaði
við þýðingar biblíunnar 1962-
2005, lektor í grísku við guð-
fræðideild HÍ árið 1966, dósent
1971 og prófessor 1974-1998.
Sæmdur heiðursdoktorsnafnbót
við Háskóla Íslands árið 2000.
Útförin fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag, 16. september
2021, klukkan 13.
Streymt verður frá útför:
https://youtu.be/56eT7BflY3Q
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
rún Kristjánsdóttir
hjúkrunarfræð-
ingur, f. 6.7. 1953,
þau eiga b) Helgu
verkfræðing, f.
22.4. 1985, dætur
hennar og Braga
Kárasonar, f. 18.6.
1981, eru Hrefna,
f. 28.12. 2011, og
Lóa, f. 19.9. 2013.
c) Hjördísi við-
skiptafræðing, f.
17.3. 1990, dætur hennar og
Kára Einarssonar, f. 29.7. 1986,
eru Harpa, f. 16.10. 2017, og
Rakel, f. 16.1. 2020. d) Hildi
hagfræðing, f. 19.8. 1993, dæt-
ur hennar og Sverris Eðvalds
Jónssonar, f. 24.5. 1992, eru
Birta Kolbrún, f. 20.10. 2019,
og Erla Sigrún, f. 26.5. 2021. 2)
Þórunn Bergþóra, tölv-
unarfræðingur og kennari, f.
12.4. 1957, börn hennar og
Birgis Bachmann, sjómanns og
skrifstofumanns, f. 23.12. 1952,
eru: a) Unnur lögfræðingur, f.
19.7. 1988, maki Trausti Páll
Þórsson, f. 26.4. 1988, og b) Jón
byggingafræðingur, f. 23.2.
1990. Áður átti Birgir Höllu, f.
1.5. 1979. 3) Magnús Bjarni iðn-
aðartæknifræðingur, f. 12.11.
1964, börn hans og Lucia Am-
oros verkfræðings, f. 30.3.
1964, eru: a) Jón Tómas sjáv-
arvistfræðingur, f. 12.1. 1995,
Tengdafaðir minn hann Jón
Sveinbjörnsson er dáinn 93 ára
að aldri. Ég kynntist honum fyrir
um 35 árum þegar við Þórunn
dóttir hans fórum að búa saman.
Hann kom mér fyrir sjónir sem
mjög þægilegur og heimakær
fjölskyldumaður. Hann var pró-
fessor í guðfræðideild við Há-
skóla Íslands og þegar hann var
ekki þar við vinnu undi hann sér
best heima þar sem hann vann
við biblíuþýðingar og vinnu í
garðinum.
Samhliða kennslu vann hann
að endurskoðun á nýja testa-
mentinu sem út kom 1981 og þýð-
ingu á nýja testamentinu og bréf-
um þess sem út kom 2007. Sú
þýðing var þýdd úr frummálinu
og var markmiðið að hún yrði á
góðu samtímamáli og erfið bibl-
íuorð þannig þýdd að þau yrðu
öllum auðskiljanleg. Eitthvað var
vikið frá þessu markmiði á síð-
ustu stigum þýðingarinnar og var
Jón afar ósáttur við það og sagði
sig frá verkinu. Hann vildi að allir
gætu lesið biblíuna á nútímamáli
sér til skilnings.
Garðurinn í Ártúnsbrekku er
feikistór. Sveinbjörn faðir Jóns
hóf þar trjárækt þegar hann
flutti þangað 1934 og Jón erfði
skógræktaráhugann frá föður
sínum. Þar eyddi hann miklum
tíma í að planta, slá og snyrta til
og ber garðurinn þess merki. Á
veturna voru trén snyrt og þá fór
hann með hvert kerruhlassið á
eftir öðru í Sorpu á Súkkunni
sinni. Á sumrin var garðurinn
alltaf nýsleginn og eins og lysti-
garður þannig að eftir var tekið.
Jónsmessugangan í Elliðaárdaln-
um endaði oftast í garðinum hjá
Jóni þar sem hann sýndi fólki
garðinn meðan heilsan entist.
Þegar starfsævinni lauk hafði
hann enn meiri tíma til að vinna í
garðinum en var einnig að dunda
sér við þýðingar á verkum forn-
grískra heimspekinga sem hann
hafði mikið dálæti á eins og t.d.
Epiktet, Platon og fleirum. Hann
náði ekki að ljúka þeirri þýðingu
þannig að hann væri ánægður
með.
Jón kynntist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Guðrúnu Magnús-
dóttur, á námsárum sínum í Sví-
þjóð. Þau áttu saman fimm börn
og afkomendurnir eru orðnir fjöl-
margir. Jóni þótti einkar vænt
um þau öll og þótti ekki verra ef
hann gat strítt þeim aðeins. Með-
an börnin okkar Þórunnar voru
yngri vorum við þar yfirleitt á að-
fangadagskvöld. Það var erfið
stund fyrir börnin þegar afi
þurfti að leggja sig eftir matinn
og hlusta á messuna og ekki búið
að opna einn einasta pakka. Og
þegar messan var loksins búin og
afi fór að deila út pökkum var
hann jafnvel ákafari og æstari en
börnin svo pakkar og pappír utan
af þeim flugu um alla stofuna.
Síðustu árin dró mjög úr þrek-
inu og síðustu tvö árin voru Jóni
erfið. Hann gat ekki gengið um
garðinn með sögina sína eða
sláttuvélina og hann hætti að
geta grúskað í bókunum sínum
eins og hann hafði alla tíð gert.
Ég vil þakka fyrir góðar og
notalegar samverustundir og
votta Guðrúnu og nánustu ætt-
ingjum Jóns innilega samúð.
Birgir Bachmann.
Ég hitti Jón, tengdaföður
minn, fyrst fyrir rúmlega þrjátíu
árum er við Halldór fórum að
stinga saman nefjum. Það var á
heimili þeirra sem alltaf var nefnt
Ártúnsbrekka en telst nú til Raf-
stöðvarvegar. Heimili þetta var
að því leyti sérstakt að þarna
hafði stórfjölskyldan búið en fað-
ir Jóns lét byggja húsið á sínum
tíma og bjó þar fram að andláti
ásamt börnum sínum, tengda-
dóttur og barnabörnum. Húsið
stendur á stórri lóð sem Svein-
björn hóf skógrækt á. Tók Jón við
húsinu af föður sínum og hélt
áfram skógrækt á lóðinni.
Jón tók mér strax vel og sýndi
mér alla tíð mikla vinsemd og
væntumþykju. Þegar við Halldór
kynntumst var Jón prófessor við
Guðfræðideild Háskóla Íslands.
Sinnti hann kennslu við skólann
auk þýðinga og lagði metnað í
störf sín. Heima fyrir naut Jón
sín best í garðinum sínum við
skógrækt en garðurinn var enda-
laus uppspretta verkefna sem
gaman var að aðstoða hann við.
Meðal annars þurfti að saga
greinar og tré og sinnti Jón því
langt fram á níræðisaldur með
handsög að vopni.
Jón var laus við allt prjál og
kom til dyranna eins og hann var
klæddur. Hann var heiðarlegur
og nægjusamur og hafði ríka
kímnigáfu. Lagði hann áherslu á
að börn sín væru ætíð þau sjálf í
samskiptum við fólk. Jóni leið
alltaf best í Ártúnsbrekku um-
kringdur fjölskyldu sinni og kisu
en fjölskyldan hafði fyrir sið að
hittast þar á laugardögum í kaffi.
Bar Jón hag fjölskyldu sinnar
fyrir brjósti og var umhugað um
að fólkinu sínu farnaðist vel og
sýndi hann það allt fram á dán-
ardag.
Ég minnist Jóns með mikilli
hlýju og þakklæti.
Guð blessi minningu hans.
Anna Dóra.
Þá er runnin upp sú stund sem
við vissum svo sem að kæmi ein-
hvern tíma, að Jón afi er fallinn
frá eftir langa og gæfusama ævi.
Við eyddum svo miklum tíma
hjá afa og ömmu í Ártúnsbrekku
að flestar minningarnar renna í
raun saman. Afi var stöðugt að
vinna í garðinum eða einfaldlega
rölta um og njóta garðsins. Þegar
við vorum inni, þá heyrði maður
reglulega einkennandi blásturs-
blístrið hans þegar hann labbaði
á milli herbergja. Flestar minn-
ingar af honum eru af honum inni
á kontór að grúska, í garðinum
með klippur eða sög, sitjandi með
fjölskyldunni inni í stofu að
spjalla um heima og geima. Þá
var hann mikill kisukarl og lék
sér oft við kisu. Sagði okkur frá
því að hann hefði átt kött allt sitt
líf.
Afi fylgdist alltaf spenntur
með því sem við vorum að læra og
gaf okkur góð ráð þegar við fór-
um til útlanda í nám. Hann kynnti
okkur stóuspeki og sagði okkur
að það væri mikilvægt veganesti,
sérstaklega ef eitthvað kæmi fyr-
ir eða ef maður fengi ekki það
sem maður vildi. Afi grínaðist oft
og var að eigin sögn mikill prakk-
ari í æsku. Hann virtist alltaf eiga
tíma fyrir okkur afabörnin,
smyrja afabrauð handa okkur og
segja okkur hvernig hlutirnir
voru í gamla daga. Þrátt fyrir Co-
vid-19 þá tókst fjölskyldunni að
hittast reglulega.
Síðustu dagana fór hann yfir
lífshlaup sitt og var sáttur og
tilbúinn að fara. Tveimur dögum
fyrir kveðjustundina fór kisa líka
í heimsókn til þeirra, og lá
malandi á milli afa og ömmu. Við
erum þakklátir fyrir allar sam-
verustundirnar og munum
geyma þær í minningunni um
ókomna tíð.
Helgi og Jón Sveinbjörn.
Þótt við hefðum búið á Spáni,
þá hittum við afa og ömmu reglu-
lega. Við fórum til þeirra í sum-
arfríum og mörg jól en þau komu
líka út til okkar og nutu þess að
vera með okkur á ströndinni. Það
fyrsta sem við báðum afa um var
„afabrauð“ en hann gerði fyrir
okkur ristað brauð með smjöri og
osti sem okkur fannst svo gott.
Við bjuggum meira að segja til
smá lag sem við sungum til að
biðja um brauðið „Afabrauð, heitt
og gott.“ Honum fannst gaman
þegar við komum og lék með okk-
ur. Einnig fannst honum gaman
að sýna okkur myndir og tala um
fjölskylduna en fjölskyldan var
honum dýrmæt. Afi hafði
skemmtilegan húmor og gat ver-
ið dálítið stríðinn, en alltaf í gríni.
Alla laugardaga og sunnudaga
komu allir sem gátu upp í Ártúns-
brekku í kaffi. Það voru oft mjög
margir sem komu, enda fjöl-
skyldan orðin stór. Afi var gáf-
aður og vel að sér og alltaf svo
góður við okkur. Við höfum alltaf
litið upp til hans og við eigum
honum svo margt að þakka. Nú
síðustu ár höfum við síðan búið á
Íslandi. Það var erfið ákvörðun
að ákveða að flytja til Íslands en
það hjálpaði að vita af afa og
ömmu og getað farið daglega að
heimsækja þau. Afi sýndi áhuga á
því sem við vorum að gera og átt-
um við oft skemmtileg samtöl.
Okkur fannst afi stundum alvar-
legur sem krakkar en hann var
alltaf mjög vingjarnlegur og
skemmtilegur við okkur. Það var
síðan frábært að kynnast honum
betur sem fullorðið fólk og verða
raunverulegur vinur. Hann
kynnti fyrir okkur lífspeki Stoiko
og kenndi okkur að nálgast hluti
og fólk með opnum hug, en afi var
lifandi ímynd þess að vilja alltaf
halda áfram að læra og nema
nýja hluti. Hann vildi endilega
læra spænsku og vorum við
stundum að kenna honum orð og
setningar. Honum þótti mjög
vænt um kisuna sína og sagði
okkur sögur frá kisunum sem
hann átti sem krakki. Hann var
einnig þakklátur ömmu Guðrúnu
sem stjórnaði alltaf öllu á heim-
ilinu. Þau voru svo flott saman.
Hann gleymist okkur aldrei og
mun lifa í huga okkar og gefa
okkur orku og ást. Við vitum að
hvar sem hann er, þá er hann í
mikilli ró. Takk elsku afi.
Jón Tómas, Alexander Jose
og Anna Guðrún.
Elsku afi.
Það var alltaf gott að koma í
Ártúnsbrekku til ykkar ömmu.
Garðurinn leikur stórt hlutverk í
æskuminningum okkar allra og
okkur finnst verðmætt að dætur
okkar flestar hafa fengið að upp-
lifa gleðina að koma í Ártúns-
brekku og hitta langömmu og
langafa.
Minningarnar munu ylja okk-
ur um ókomna tíð.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Hvíl í friði, elsku afi.
Guðrún Edda, Helga,
Hjördís og Hildur
Sveinbjörnsdætur
Sælt er að endurminnast
glaðra haustdaga 1967, þegar
hafið var nám við guðfræðideild
Háskóla Íslands. Kennarar orð-
lagðir heiðursmenn, ógleyman-
legir. Jón Sveinbjörnsson kenndi
grísku, síra Magnús Már Lárus-
son kirkjusögu og nýjatesta-
mentisfræði, síra Jónas Gíslason
kirkjusögu, síra Björn Magnús-
son guðfræði Nýja testamentis-
ins og kennimannleg fræði, síra
Jóhann Hannesson heimspeki,
trúfræði og prédikunarfræði,
Björn Björnsson siðfræði, Þórir
Kr. Þórðarson hebresku og guð-
fræði Gamla testamentisins og
Róbert Abraham Ottósson
messusöngfræði.
Jón
Sveinbjörnsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐBJÖRG ÞORLEIFSDÓTTIR,
Hrísmóum 1, Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu,
Hraunvangi í Hafnarfirði, sunnudaginn
12. september. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
klukkan 14 mánudaginn 20. september.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Sigurborg Sigurðardóttir Ljótur Ingason
Svanhvít Sigurðardóttir Ragnar Jörundsson
María Sigurðardóttir Páll Sigurðsson
Halldór Ó. Sigurðsson Margrét H. Hjaltested
Þóra Sigurðardóttir Sigurður G. Jóhannsson
Ingvar E. Sigurðsson Edda Arnljótsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Heiðargerði 58, Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn
12. september. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 23. september klukkan 13.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar
Landspítalans fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Árni Þór Kristjánsson
Fjölnir Þór Árnason Björg Alexandersdóttir
Guðrún Árnadóttir Martin Kollmar
Fróði Árnason
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur og tengdasonur,
ÞORSTEINN VALSSON,
Stuðlaseli 1, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 8. september.
Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn
21. september klukkan 13. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþökkuð en þeim er vildu minnast hans er
bent á Krabbameinsfélagið.
Mínerva Gísladóttir
Anna Pála Þorsteinsdóttir Guðmundur I. Hammer
Gísli Þráinn Þorsteinsson Sara Atladóttir
Snjólaug Þorsteinsdóttir
Anna Pála Þorsteinsdóttir
Snjólaug Kristinsdóttir Gísli Sæmundsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURRÓS UNNUR
SIGURBERGSDÓTTIR,
Rósa,
Lindargötu 57,
áður Laugarásvegi 60,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 6. september. Útförin fer
fram í dag fimmtudaginn 16. september klukkan 13 frá Áskirkju.
Alúðarþakkir færum við starfsfólki Vitatorgs, Múlabæjar og
bráðaöldrunarlækningadeildar B4 á Landspítalanum Fossvogi.
Guðmundur Gunnarsson Margrét María Þórðardóttir
Oddný Sigurborg Gunnarsd.
Gunnar Steinn Gunnarsson Berit Solvang
Einar Örn Gunnarsson Margrét Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar yndislega eiginkona, móðir, systir,
mágkona, amma, langamma og frænka,
MARÍA FRÍMANNSDÓTTIR,
er látin.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 17. september klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Thorvaldsensfélagið.
Baldur Ólafsson
Rósa Kristín Baldursdóttir
Vilhelm Frímann Frímannss. Hildur Gísladóttir
og fjölskyldur