Morgunblaðið - 16.09.2021, Side 50

Morgunblaðið - 16.09.2021, Side 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. ✝ Sigurrós Unn- ur Sigurbergs- dóttir (Rósa) fædd- ist í Ólafsvík 9. júlí 1928. Hún lést í Reykjavík 6. sept- ember 2021. Hún var dóttir hjónanna Sigurbergs Ás- björnssonar skó- smíðameistara og skókaupmanns, f. 10. október 1900, d. 17. júlí 1973, og Oddnýjar Guð- brandsdóttur húsmóður, f. 26. maí 1901, d. 11 maí 1942. Hún var elst fjögurra systra sem voru Guðrún Matthildur, f. 20. nóvember 1930, d. 23. nóvember 2017, Erla Fanney, f. 11. ágúst 1933, d. 8. október 2020, og Erna, f. 10. nóvember 1934. Hinn 17. mars 1951 gekk Sig- urrós að eiga dr. med Gunnar Guðmundsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, f. 25. desember 1927, d. 6. maí 1999. Foreldrar hans voru Guð- mundur J. Guðmundsson prent- ari, f. 17. mars 1899, d. 10. des- ember 1959, og Salóme Jóns- dóttir fatahönnuður, f. 4. apríl 1906, d. 11. janúar 1953. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur arki- borg, f. 1996, unnusta Molly Öxnevad rithöfundur, f. 1996. 4) Einar Örn lögfræðingur, f. 5. október 1961, giftur Margréti Stefánsdóttur flautuleikara og tónlistarkennara, f. 4. mars 1969. Dætur þeirra eru: a) Arna Björk myndlistarskólanemi, f. 2001, b) Arndís Ósk mennta- skólanemi, f. 2003, og c) Hugrún Helga, f. 2006. Fyrstu átta ár ævinnar bjó Sigurrós ásamt foreldrum sín- um og systrum í Ólafsvík uns þau fluttu til Keflavíkur. Sjö ár- um síðar réðst hún í vist til Reykjavíkur. Árið 1947 hóf hún nám við Húsmæðraskólann á Hallormsstað og útskrifaðist þaðan 1949. Það ár hóf hún nám við Hjúkrunarskóla Íslands en varð frá að hverfa á öðru ári. Síðar útskrifaðist hún sem sjúkraliði og starfaði í fram- haldinu á ýmsum heilbrigð- isstofnunum. Á árunum 1956 til 1959 dvöldu þau hjónin í London og Gautaborg þar sem Rósa sótti námskeið í málaralist en Gunnar var þar í sérfræðinámi. Stærstan hluta lífsins bjó hún í Reykjavík og þá á Laugarásvegi 60. Rósa hafði mikla ánægju af saumaskap, blómarækt og myndlist auk matargerðar. Þau hjón höfðu ánægju af ferðalög- um og ferðuðust vítt og breitt um heiminn. Útför Rósu fer fram frá Ás- kirkju í dag, 16. september 2021, kl. 13. tekt, f. 16. júlí 1951, giftur Margréti Maríu Þórð- ardóttur tann- lækni, f. 21. janúar 1951. Dóttir þeirra er Gunnþóra arki- tekt, f. 1976, gift Michael Blikdal Er- ichsen arkitekt, f. 1977. Börn þeirra eru: a) Saga María menntaskólanemi, f. 2004, b) Thelma Björk, f. 2007 og c) Elías Ari, f. 2011. 2) Oddný S., hjúkrunar- og lýðheilsufræð- ingur, f. 31. október 1955. Dæt- ur hennar og Ásgeirs Smára Einarssonar myndlistarmanns, f. 23. júní 1955, eru: a) Oddný Rósa lögfræðingur, f. 1987, og b) Dagný Hrönn húsmóðir, f. 1988. Synir hennar og Sandra Freys Gylfasonar húsasmiðs, f. 1988, eru: a) Hrannar Jökull, f. 2010, b) Styrmir Logi, f. 2014, 3) Sigur Þeyr, f. 2016, og óskírður 2021. 3) Gunnar Steinn cand. scient. aquaculture, f. 16. apríl 1960, giftur Berit Solvang líf- fræðingi, f. 22. maí 1965. Dætur þeirra eru a) Bertha viðskipta- fræðinemi, f. 1993, og b) Katla, nemandi við Háskólann í Vi- Frú Rósa Fyrsti hittingurinn á Laug- arásvegi: Sumarið 1989 hitti ég tilvon- andi tengdaforeldra mína, Rósu og Gunnar, í fyrsta sinn á Laug- arásveginum. Mér er minnis- stætt hversu alúðleg þau hjónin voru og hve vel þau tóku á móti mér. Eitt af því fyrsta sem vakti athygli mína var hversu gest- kvæmt var á heimilinu og hversu allir voru velkomnir þangað. Þar voru daglegir fastagestir auk annarra sem litu við í kaffi. Heimilið var líflegt, stútfullt af fólki og þar ríkti kaótísk stemmning. Fólk heilsaðist með kossi og faðmlögum. Þetta var allt annar heimur en sá sem ég þekkti. Stemmningin á heimilinu var fremur ítölsk en norræn. Eldhúsborðið: Miðpunktur heimilisins var eldhúsborðið þar sem fjölskyldan og gestir söfnuðust saman, drukku kaffi og spjallað var um listir, bókmenntir, pólitík og öll vandamál heimsins voru leyst yf- ir kaffibolla. Þarna voru allir jafnir og aldrei farið í mann- greinarálit. Rósa lagði mikið upp úr því að ég lærði íslensku og talaði aldrei við mig á öðru tungumáli. Eftir að hafa búið bæði á Englandi og í Svíþjóð vissi hún hversu mikil- vægt það var að læra tungumál þess lands sem dvalið er í en hún talaði sænsku og ensku vel. Ég lagði mig fram við að læra ís- lenskuna á næstu árum enda vildi ég ekki fyrir nokkurn mun missa af þeim góðu umræðum sem áttu sér stað við eldhúsborð- ið eða þeim sögum sem þar voru sagðar. Rósa var góður sögumað- ur og sögur hennar voru af ólík- um toga. Sumar fjölluðu um lit- ríkar persónur sem höfðu orðið á vegi hennar, aðrar um skemmti- legar uppákomur en líka spenn- andi sögur af ferðalögum og dvöl í erlendum borgum. Sögurnar voru oft og tíðum meinfyndnar en aldrei á kostnað annarra. Við eldhúsborðið kynntist ég vinum Rósu sem urðu góðir vinir mínir. Borðstofuborðið: Ótal stór matarboð voru hald- in á Laugarásveginum og mörg þeirra með litlum fyrirvara. Eitt af því sem ég lærði af Rósu var að hægt er að taka á móti tuttugu gestum og hafa þríréttað þó að- eins séu fáeinar klukkustundir til stefnu. Við deildum báðar gleðinni af því að elda góðan mat. Rósa varð mentor þegar kom að matreiðslu fyrir stórar veislur. Hún gaf mér margar uppskriftir sem eru í uppáhaldi hjá mér og þegar ég held veislur er gjarnan eitthvað sem frá henni. Í huga Rósu áttu boð að vera rausnarleg og yfirdrifið nóg af mat handa öllum. Mikilvægt var að geta bætt gesti við borðið ef einhverj- um yrði á að líta inn. Það var stór heiður í mínum huga að fá að sitja við hliðina á Rósu í boði, borða ljúffengan mat og hlusta á samræðurnar. Eftir nokkur ár sem lærlingur hjá henni treysti hún mér til að sinna matseldinni og stjórna kvöldverðarboðunum. Kaffiborðið: Stundum áttum við Rósa okk- ar einlægu stundir. Þá lokuðum við að okkur inn að stærri stof- unni þar sem við settumst við kaffiborðið. Þar áttum við marg- ar, langar og góðar samræður. Við fráfall Rósu hef ég ekki að- eins misst tengdamóður heldur traustan vin og mentor í lífinu. Þar sem borðin geta ekki talað mun ég halda áfram að segja sög- ur og deila uppskriftum í anda Rósu. Berit Solvang. Það var í janúar árið 2000 að ég hitti Rósu í fyrsta sinn en við Einar Örn höfðum þá nýlega kynnst. Hún tók svo eftirminni- lega vel á móti mér og ég fann hlýjuna sem frá henni stafaði. Rósa hafði einstaklega góða nær- veru og mér fannst strax eins og ég hefði þekkt hana lengi. Á þessum tíma var hún nýorðin ekkja og þó hún væri glaðleg í fasi þá skynjaði ég söknuðinn sem var innra með henni og þá hversu náin þau hjónin höfðu verið. Gunnar var svo lifandi í hugum fjölskyldunnar og þeim sögum sem sagðar voru af honum að mér þótti oft eins og ég hefði hitt hann. Rósa saknaði hans og það var mörgum árum síðar sem hún sagðist fyrst vera hætt að bíða eftir að hann kæmi inn úr dyrunum. Þótt fráfall Gunnars hefði ver- ið henni verulega erfitt þá gaf hún sér í engu eftir. Hún hafði nýlega keypt sér bíl, fór að keyra um alla borg og stundum teygðu ferðirnar sig til Keflavíkur. Rósa var einstaklega jákvæð og dríf- andi. Hvern dag byrjaði hún á því að fara í sund með vinkonum sín- um þar sem hún hitti góðan hóp sem vandi komur sínar í laugina. Þegar dætur okkar fæddust hver af annarri, Arna Björk, Arndís Ósk og Hugrún Helga þá bauðst hún til að passa þær. Voru þær mikið hjá henni virka daga þangað til að þær byrjuðu í leik- skóla. Þótt Rósa væri komin hátt á áttræðisaldur var hún í fullu fjöri og sinnti þeim einstaklega vel. Eftirsótt var að fá að gista heima hjá ömmu Rósu, vaka fram eftir og fá Coca Puffs í morgunmat. Rósa reyndist okkur fjölskyld- unni alla tíð vel og var alltaf til staðar. Í tvígang dvöldum við er- lendis og lét hún sig þá ekki muna um að koma í heimsóknir. Þannig eigum við fallegar minn- ingar um hana í Barcelona og London en einnig úr sólarlanda- ferðum sem við fórum saman í. Rósa átti ávallt ráð undir rifi hverju. Takmörkuð spænsku- kunnátta var ekki vandamál. Þegar við versluðum hjá kjöt- kaupmanninum þá var gripið í leikræna tjáningu. Til að komast að því hvort um væri að ræða kindakjöt, svínakjöt eða nauta- kjöt hermdi hún skemmtilega eftir dýrunum, brosið hennar gladdi alla og við fórum heim með allt sem þurfti. Rósa var einstaklega æðru- laus. Hún sá það jákvæða, það sem vel var gert. Hún vissi hvað núvitund var. „Allt í góðu Mar- grét mín við förum bara seinna,“ sagði hún ef áform urðu óvænt að breytast. Þegar hún sá að stress- ið var að fara með mig sagði hún gjarnan: „Margrét mín fáðu þér sæti…“ Ég er óendanlega þakklát fyr- ir að fengið að eiga hana að. Minning Rósu mun lifa áfram í hjörtum okkar. Margrét Stefánsdóttir. Amma Rósa hefur alltaf leikið stórt hlutverk í lífi okkar systra. Þegar við vorum litlar bjuggum við í næsta húsi við ömmu og afa og vorum við ekki minna heima hjá þeim en hjá okkur sjálfum. Eftir skóla fórum við iðulega til þeirra og oftar en ekki var tekið á móti okkur með mat og sögum. Amma fór á hverjum degi í sund með vinkonum sínum og frænk- um Rönku og Böggu og á sumrin fórum við systur alltaf með. Eftir að afi Gunnar veiktist fluttum við heim frá Danmörku til þeirra og bjuggum þar í nokkur ár eftir að afi lést. Amma kenndi okkur ótrúlega margt á þessum árum, sérstaklega hvað snerti heimilið. Hún leiðbeindi okkur hvernig átti að elda margvíslegan mat, sjá um garðinn og ýmis önnur heimilisstörf. Hún var líka stór- góður handavinnukennari og kenndi okkur að prjóna, hekla, bródera, sníða og sauma. Hún var ótrúlega úrræðagóð og kom iðulega með skapandi tillögur að lausnum, hvort sem það varðaði matseld, saumaskap eða að búa til öskudagsbúninga. Amma var alltaf tilbúin að leyfa okkur systr- um að framkvæma hinar ýmsu hugmyndir okkar og máttum við alltaf fá garn, efni og málningu til verksins og gátum við reiknað með dyggri aðstoð hennar sömu- leiðis. Á meðan við unnum sagði amma okkur sögur af hinu og þessu, svo sem barnæsku henn- ar, ferðalögum hennar og afa eða eldri handavinnuverkefnum. Þessari kunnáttu frá ömmu mun- um við alltaf búa að og minningar af dýrmætum stundum ylja okk- ur um alla tíð. Laugarásvegurinn var stórt hús og má eiginlega kalla það nokkurs konar fjölskylduhús, því hann var sjaldan tómur enda þótti ömmu gott að hafa einhvern í húsinu, eins og hún sagði. Þann- ig höfum við systur báðar og fleira ungt frændfólk fengið að búa hjá ömmu í góðu yfirlæti gegnum tíðina. Amma hafði gam- an að því að bjóða fólki kaffi og átti alltaf eitthvað til að bjóða upp á með því og hafa eflaust margir átt ófáar stundir við kringlótt eldhúsborðið hennar. Við kveðjum senn ömmu Rósu og þökkum henni fyrir allar stund- irnar, sögurnar og ástina sem hún sýndi bæði í orði og verki. Í minningunni situr hún í sætinu sínu við eldhúsborðið, brosir og teygir sig í kaffikönnuna meðan örlítil morgunsól brýst út milli skýja og skín inn um eldhús- gluggann á Laugárásveginum. Oddný Rósa og Dagný Hrönn Ásgeirsdætur. Fátt þótti okkur systrunum meira spennandi en að fá að gista heima hjá ömmu Rósu á Laug- arásveginum þegar við vorum yngri. Þá máttum við vaka fram eftir og horfa á sjónvarpið. Amma bauð upp á stjörnupopp og kók. Oft horfðum við saman á Animal planet en jafnframt ýms- ar ævintýramyndir. Það var gaman að vakna heima hjá henni og hefja daginn með ömmu. Hún átti alltaf nóg af Cocoa Puffs og Lucky Charms. Þar föndruðum við og saumuðum í borðstofunni, fórum með henni út í garð að róla og skoða blómin. Sundferðirnar voru stór þáttur í lífinu á Laug- arásveginum. Amma hafði mikinn áhuga á því sem við vorum að fást við í daglegu lífi og fylgdist vel með. Hún var dugleg að hvetja okkur áfram og mætti á skautasýningar og tónleika lengst framan af en síðustu tvö árin átti hún erfiðara um vik. Það sem einkenndi ömmu var hvað hún var alltaf í góðu skapi og það var stutt í hláturinn og hennar einstaka húmor. Við systurnar erum óendanlega þakklátar fyrir að hafa fengið að hafa hana í lífi okkar. Arna Björk, Arndís Ósk og Hugrún Helga. Þegar ég var barn og bjó í Noregi fannst mér fátt meira spennandi en að heimsækja fjöl- skylduna á Íslandi. Þá dvöldum við heima hjá afa Gunnari og ömmu Rósu. Stór þáttur í heim- ilislífinu voru sundferðir í Laug- ardalslaugina. Það sem mér fannst furðulegt var að fólkið mitt var alltaf að flýta sér en þrátt fyrir það vorum við aldrei komin út úr húsi fyrr en löngu eftir áætlaðan tíma. Ástæðan var sú að það kom yfirleitt eitthvað óvænt upp á. Stundum komu gestir inn úr dyrunum og þá var bara sest niður, drukkið kaffi og spjallað. Stundum vildu einhverj- ir koma með í sund og þá þótti sjálfsagt að bíða í rólegheitum eftir þeim. Amma setti allaf á sig rauðan varalit áður en lagt var af stað en um leið og hún var komin í laugina var það fyrsta sem hún gerði að fjarlægja hann. Í sund- inu var hún yfirleitt í sundbol með áberandi blómamynstri og litríka sundhettu. Hún virtist þekkja alla í lauginni og skiptist á orðum við fjölda manns í hverri ferð. Alla tíð var ömmu umhugað um útlitið án þess að hún væri upptekin af því. Þegar ég skráði mig í Háskóla Íslands fyrir nokkrum árum bauð amma mér að búa hjá sér. Þá áttum við okkar stundir sam- an. Eitt sinn bað hún mig að plokka á sér augabrúnirnar því hún átti erfitt með að gera það sjálf. Mér fannst það sýna hvað hún var lifandi og vel með á nót- unum. Líklega eru ekki margar konur sem komnar eru fast að ní- ræðu sem leggja upp úr því að plokka augabrúnir. Í gegnum tíðina hefur amma kennt mér ótal margt. Hún brýndi fyrir mér að það væri óþarfi að vera feimin eða hafa áhyggjur af því hvað öðrum fynd- ist um mann. Sjálf var hún al- gjörlega ófeimin og velti sér ekki upp úr smámunum. Ég átti það til þegar ég var yngri að svara með einsatkvæðisorðum þegar hún bauð mér að borða. Þá brýndi hún fyrir mér að vera kurteis og þakka ávallt fyrir mig. „Þú átt að segja: „Já takk“ eða „nei takk“, annað er bara dóna- skapur,“ sagði hún svo eftir- minnilega. Ef það er einhverjum að þakka að ég segi „já takk“ frekar en „já“ þá er það ömmu Rósu. Eftir að afi lést tók amma bíla- tíma og keypti sér VW Golf. Stundum fórum við í búðir saman og þá var hún ekkert að kippa sér upp við það þótt hún væri smá stund á röngum vegarhelmingi. Það kom oftar en einu sinni fyrir að hún rakst utan í grindverk eða ljósastaura en hún tók því sem sjálfsögðum hlut. Aldrei hlaust alvarlegur skaði af aksturslaginu en bíllinn var orðinn eins og gjörningslistaverk þar sem beyglurnar blöstu hvarvetna við. Uppáhaldsliturinn hennar var rauður og síðustu árin var hún alltaf með rauðan varalit, rautt veski og helst í rauðri kápu. Mynstur og skærir litir munu ávallt minna mig á hana. Hennar verður sárt saknað. Bertha Gunnarsdóttir. Rósa var alltaf stór hluti af lífi mínu og reyndist mér vel alla tíð. Hún var gift Gunnari móður- bróður mínum. Fjölskyldurnar voru mjög nánar og um tíma bjuggum við saman á Lokastíg 5 eins og ein stór fjölskylda. Þegar faðir minn og Gunnar voru við læknanám í Gautaborg í gamla daga var líka náinn samgangur og samskipti á milli fjölskyldn- anna, enda bjuggum við í sam- liggjandi blokkum. Við fráfall Rósu rifjast upp hvað mér fannst alltaf gaman að fá hana í heimsókn eða vera heima hjá þeim hjónum og frændsystkinum mínum. Rósa var einstaklega barngóð og sýndi okkur börnunum jafnvel meiri athygli en fullorðna fólkinu þegar komið var saman við hátíðleg sem hversdagsleg tækifæri. Ég minnist þess líka hvað okk- ur frændsystkinum þótti gaman að hlusta á hana segja okkur sög- ur þegar ég var lítil. Við hópuð- umst í kringum hana þar sem hún var að sauma og þá sagði hún okkur sögur sem hún bjó til sjálf á staðnum og við hlógum dátt. Rósa kenndi mér líka fallegt ljóð eftir Steingrím Thorsteinsson sem ég hef alltaf haft dálæti á. Það er svona: Trúðu á tvennt í heimi, tign sem hæsta ber: Guð í alheims geimi, Guð í sjálfum þér. Eftir að ég flutti til Bandaríkj- anna, var gift og orðin móðir komu Rósa og Gunnar að heim- sækja okkur. Það var tilhlökkun að fá þau, skemmtileg voru þau bæði. Synir mínir minnast líka oft á Rósu og tala um hvað þeir höfðu gaman af nærveru hennar. Nú á síðari árum, þegar við Oddný dóttir hennar byrjuðum að fara saman í gönguferðir, heimsóttum við gjarnan Rósu. Hún var alltaf glaðleg og hnyttin í tilsvörum alveg fram í andlátið. Blessuð sé minning hennar. Salóme Magnúsdóttir. Nágranni okkar, vinkona og „amma“ er látin. Fjölskyldur okkar hafa verið nánir vinir í þrjár kynslóðir og spannar vin- skapurinn meira en hálfa öld. Rósa átti stóran sess í lífi okk- ar, sérstaklega á yngri árum okk- ar barnanna á Laugarásvegi 58. Þegar við hugsum um Rósu þá er hún brosandi eða hlæjandi, margar minningar eru af henni að nostra við fallega garðinn sinn þar sem við krakkarnir fengum oft verkefni við hæfi, þá stundum að hemja rósarunnann sem skildi að sólbaðsstéttina við húsið og neðri garðinn. Engin mörk voru á milli lóðanna á Laugarásvegi 58 og 60 og við krakkarnir hlupum inn til Rósu og Gunnars um bak- dyrnar í gegnum svefnherbergi þeirra hjóna og upp á efri hæð- ina. Þar tók Rósa iðulega á móti okkur með bros á vör. Við eigum óteljandi minningar í eldhúsinu, spjallandi um heima og geima eða að föndra einhverja fallega hluti, enda var Rósa mjög lagin í höndunum. Rósa var hlý og þol- inmóð og tók okkur öllum með opnum örmum og við systur töl- uðum oft um Rósu sem ömmu Rósu. Einstök vinabönd mynduðust á milli Gumma, Einars Arnar og Gunnars Steins. Voru uppátæki þeirra fjölmörg og reyndu á þol- inmæði foreldranna, en var þó jafnan tekið með brosi og skiln- ingi hjá Rósu. Hún deildi einu sinni sögu af því þegar kunn- ingjakona hennar var í heimsókn og þær litu inn í svefnherbergi þeirra hjóna þar sem lítill strák- ur lá sofandi. Kunningjakonan spurði þá hvort þarna svæfi Ein- ar en þá svaraði Rósa því að svo væri ekki, heldur væri þetta ná- granni þeirra hann Gummi. Síðar mynduðust traust vinabönd á milli okkar systra Rósu og Maríu og barnabörnum Rósu og Gunn- ars, Gunnþóru, Oddnýjar og Dagnýjar. Þar lék Rósa stórt hlutverk enda var hún í raun miðpunktur þessarar vináttu, fyrst sem móðir og síðar sem amma. Sigga og Rósa komu upp þeirri venju að lyklar að húsunum voru geymdir á hvorum stað, svo hægt væri að fá „lánaðan“ lykil ef maður læst- ist úti sem gerðist nokkuð oft hjá yngri kynslóðinni. Eftir að Rósa flutti af Laug- arásveginum á Skúlagötuna urðu samskiptin minni en ávallt var mikil gleði þegar fundir urðu, eins og í 85 ára afmæli Rósu, og mikið rætt um börn og afkom- endur. Við sendum ykkur öllum, Mumma, Oddnýju, Gunnari Steini og Einari og fjölskyldum ykkar, okkar hjartans samúðar- kveðjur. Fjölmargar minningar um einstaka og góða konu munu lifa áfram. Sigríður, Guðmundur, María og Rósa, áður á Laugarásvegi 58. Sigurrós Unnur Sigurbergsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.