Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 16.09.2021, Qupperneq 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 ✝ Ólöf Krist- mundsdóttir fæddist á Ísafirði 12. ágúst 1943. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga Húsavík 5. september 2021. Foreldrar hennar voru Kristmundur Breiðfjörð Bjarna- son frá Ísafirði, bif- reiðarstjóri, f. 24. janúar 1914, d. 17. júní 2001, og Kristín Bjarney Ólafsdóttir frá Dynjanda, ljós- móðir, f. 21. febrúar 1922, d. 2. september 1998. Systkini Ólafar eru: Kristín Breiðfjörð Krist- mundsdóttir, f. 18. september 1944, og Svavar Cesar Krist- mundsson, f. 2. ágúst 1947, d. 2. febrúar 2016. Ólöf giftist Samúel Þór Sam- úelssyni, f. 17. maí 1943, d. 3. október 2014. Börn þeirra eru: 1) Ólafur Einar, f. 4. september 1966. Fyrrverandi kona hans er Guðný Steingrímsdóttir, f. 11. júlí 1997. Sigþór Orri, 26. maí 2004. 3) Sigrún Jóna, f. 11. mars 1972. Fyrrverandi eiginmaður hennar er Sveinn Aðalsteinsson, f. 13. desember 1968. Börn þeirra eru Samúel Jón, f. 23. nóvember 1990, unnusta Elísa Rún Gunn- arsdóttir, f. 22. mars 1989, þau eiga tvö börn. Anna Guðrún, f. 14. desember 1991. Ólöf, sem alltaf var kölluð Lóló, ólst upp í stórri fjölskyldu á Ísafirði. Þar lauk hún skyldunámi og fór því næst í lýðháskóla í Nor- egi. Lóló fluttist ung til Akraness þar sem hún hóf búskap með Samúel. Þau bjuggu síðar til skamms tíma í Mývatnssveit og Þorlákshöfn, áður en þau fluttu til Húsavíkur þar sem þau bjuggu framvegis. Lóló sinnti ýmsum störfum um ævina, svo sem versl- unarstörfum og rekstri, en starf- aði lengst af á Hvammi, dval- arheimili aldraðra. Útför Lólóar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 16. sept- ember 2021, klukkan 14. janúar 1967. Börn þeirra eru Steingrím- ur Þór, f. 26. júlí 1986, unnusta Urszula Kud- erska, f. 30. júní 1981, þau eiga þrjú börn. Sævar, f. 4. desember 1989. Einar Óli, f. 29. apríl 1993, unnusta Helga Gunnarsdóttir, f. 23. nóvember 1994. Eiginkona Ólafs er Laufey Marta Einars- dóttir, f. 5. september 1969. Börn hennar eru Thelma Björk Martin, f. 25. maí 1990, eiginmaður Rhys Martin, f. 16. apríl 1987, þau eiga þrjú börn. Andri Dan Traustason, f. 10. júlí 1992, unnusta Natascha Damen, f. 9. febrúar 1996. Dagný Anna Laufeyjardóttir, f. 16. febr- úar 1999. 2) Berglind, f. 19. júlí 1969. Eiginmaður hennar er Örn Logi Hákonarson, f. 8. ágúst 1968. Börn þeirra eru Snæfríður, f. 3. september 1993. Brynjar Örn, f. 3. júlí 1997, unnusta Sandra Björk Arnarsdóttir, f. 4. Elsku mamma, hugrakka hetj- an mín hefur kvatt okkur og er farin í annan og betri heim. Þessum degi hafði ég kviðið lengi, ég gerði mér grein fyrir að það væri ekki langt í hann en samt var ég alls ekki tilbúin. Ég ótt- aðist oft að hún myndi kveðja og hefði okkur ekki hjá sér. En með sínu ótrúlega hugrekki og ákveðni stjórnaði hún þessu að mestu sjálf. Hún talaði við okkur öll sem gátum verið hjá henni og hin voru með hugann hjá henni. Hún sagði okkur að tíminn sinn væri komin, hún væri orðin mjög þreytt og væri tilbúin að kveðja. Hún notaði tímann í að telja kjark í okkur og hafði mestar áhyggjur af okkur, en ekki sjálfri sér, hún vissi að stutt yrði í að hún losnaði þrautum sínum frá. Með heilan her í kringum rúm- ið sitt kvaddi mamma okkur á friðsælan hátt. Hún elskaði okkur og var stolt af okkur öllum og þakklát og lét okkur heyra það. Hún tók á sínum veikindum í gegnum lífið með miklu æðruleysi og ákveðni (vestfirskri þrjósku). Það var alltaf gaman að koma til mömmu og pabba og síðar mömmu, hún fylgdist vel með öll- um sínum afkomendum og gerði engan greinarmun hvort það væru barnabörn eða langömmu- börn og hafði gaman af að fá þau til sín. Þegar ég flutti til Akureyr- ar voru samskiptin áfram mikil. Síðasta eina og hálfa árið jukust þau til muna vegna covid, við lok- uðum okkur af og vorum saman í sjálfskipaðri sóttkví. Á þeim tíma fór heilsu mömmu að hraka mikið og hún átti erfitt með að vera ein, þá snerust hlutverk okkar við; við systkinin fórum að sjá um þig eins og þú hafðir gert fyrir okkur áður, það var skrýtið en samt svo gott að geta gert þetta fyrir þig. Á þessum tíma fjölgaði gæða- stundum okkar til muna. Loksins þroskaðist ég nóg til að fá mikinn áhuga á ættfræði og áhuga á fólk- inu okkar í sumarlandinu, búsetu þess áður og lífi almennt. Stund- um gekk ég svo langt að henni fannst nóg um. Ég nýtti tímann okkar saman vel og spurði hana um margt, henni fannst líka gam- an þegar ég gat sagt henni eitt- hvað sem hún vissi ekki áður. Mamma fæddist og ólst upp á Ísafirði, þaðan var mest af föður- fólki hennar, móðurætt hennar var frá Jökulfjörðum og af Ströndum, frá Dynjanda í Leir- ufirði og Skjaldabjarnarvík á Ströndum, síðar í Furufirði á Ströndum þar til það fór í eyði. Kveðja til þín mamma mín. Þú bauðst mér upp á allt hið besta, elsku mamma mín. Þú þerraðir tárin mín mörgu, sem komu vegna þín. Nú svífur þú í skýjum, í heimi við hliðina á mér. Í fangið á pabba ertu komin, og unir á sælustöðum nýjum. Berðu honum kveðjuna mína, þar til ég mæti svo þar. Ég elska þig svo mikið, í sumarlandið ég kem. Minn tími er ekki kominn, en ég leggjast mun hjá þér. Saman í hring við rúm þitt við sátum, í höndina þína ég hélt. Hjarta mitt brotnaði, ég vildi ekki sleppa þér. Ég sendi þér elsku mamma, mína hinstu kveðju hér. Nú bíð ég eftir tímanum okkar, með pabba, mér og þér. (Sigrún Jóna Samúelsdóttir) Ég elska þig alltaf og á eftir að sakna þín endalaust. Þín Sigrún Jóna. Ólöf Kristmundsdóttir Að skrifa minningarorð um elsku fallegu Hildi Elínu Heró okkar er alveg óbærilega erfitt. Við biðum fæðingar hennar með mikilli eftirvæntingu og hlökkuðum öll til að hitta þenn- an litla einstakling. Okkur hafði verið boðið í fjölskyldubrúðkaup í Noregi og hún mætti í heiminn nógu tímanlega til að koma með í brúðkaupið. Það var lýsandi fyrir Hildi því frá fyrsta degi var hún mikil félagsvera og vildi alltaf vera með í fjörinu. Hún var glaðleg og félagslynd og það var mikið líf í kringum hana. Hildur var yngst þriggja systkina. Hún og Arnar Páll bróðir hennar voru afar náin og miklir félagar. Tvö ár skildu þau að í aldri og var hann alltaf blíð- ur og góður við litlu systur sína. Elst er svo Saga Dögg sem dýrkaði og dáði yngri systkini sín og vildi allt fyrir þau gera. Þau eru ófá eftirminnilegu ferðalögin, hvort heldur sem er sólarlandaferðir eða bústaða- ferðir, þar sem Hildur var hrók- ur alls fagnaðar. Fyndin, kímin og yndislegur prakkari. Hún var skemmtilega stríðin og í sundi hafði hún dálæti á því að taka vatn upp í munninn og sprauta á afa sinn í von um að fá hann til að tuskast við sig. Þegar Hildur var að verða tveggja ára fæddist Helena frænka hennar. Þær urðu strax afar samrýndar og léku sér mikið saman. Í fjölskylduboðum voru þær duglegar að búa til leikrit og svo fékk fjölskyldan að njóta sýninganna við mikinn hlátur og fögnuð. Seinna bætt- ust fleiri frænkur í hópinn sem Hildur umvafði kærleik sínum. Það var skemmtilegt og áhugavert að tala við Hildi. Hún hafði einstakt lag á því að segja frá og kom fólki iðulega á óvart í samræðum. Hún var listræn og bjó til sögur, teiknaði fallegar andlitsmyndir af fólki og orti ljóð. Hún var bæði dug- leg og vandvirk í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún hafði áhuga á tónlist og amma hennar fékk að kenna henni á gítar og skutla henni í gítartíma. Hún var mikil ömmu- og afastelpa og undi sér vel hjá okkur. Hildur okkar var með hjarta úr gulli og vildi öllum vel. Hún var mikil baráttukona fyrir bættum mannréttindum og stóð alltaf með þeim sem minna máttu sín. Hún gat stundum lent í vandræðum út af því en ávallt stóð hún föst á sinni skoð- un, enda með eindæmum sterk- ur karakter. Ranglæti, yfirgang og illt umtal gat hún alls ekki liðið. Sjálf talaði hún alltaf vel um fólk og var traustur vinur vina sinna. Elsku fallegi gleðigjafinn okkar. Þú hefur kennt okkur svo ótrúlega margt. Við erum endalaust þakklát fyrir hverja stund sem við fengum að hafa þig í lífi okkar. Við elskum þig alltaf elsku dýrmæta barnið okkar. Hildur amma og Arnar afi. Hildur Elín R. Ólafsdóttir Heró ✝ Hildur Elín R. Ólafsdóttir Heró fæddist í Reykjavík 6. júlí 2007. Hún lést 6. september 2021. Foreldrar hennar eru Rut Arnars- dóttir, f. 28. janúar 1977, og Ólafur Eg- ilsson, f. 30. júní 1955. Systkini Hildar eru Arnar Páll Ólafsson, f. 12. október 2005, og Saga Dögg Þrastardóttir, f. 19. maí 1996. Útförin fer fram frá Árbæj- arkirkju í dag, 16. september 2021, klukkan 15. Það fer margt í gegnum hugann þegar við kveðjum elsku litlu frænku okkar, Hildi Elínu. Við munum litlu ljóshærðu stelpuna sem lék sér við hundana, klappaði köttunum, skrifaði, litaði, hló og lék sér við frænd- systkinin sín, áhyggjulaust barn. Þegar barnsárin eru að baki og við taka unglingsárin verða oft kaflaskil. Þessi skil urðu Hildi Elínu erfið. Enginn getur með fullri vissu sagt hvað ger- ist, hvers vegna fer áður ánægðu barni að líða svona illa? Hvers vegna eru ekki til full- nægjandi ráð? Falleg og vel gefin stúlka sem átti framtíðina fyrir sér verður vanlíðan og myrkum hugsunum að bráð. Við sem á eftir henni horfum með ólýsanlega sorg í hjarta reynum að skilja og virða henn- ar vilja, minnumst hennar með hlýju og æðruleysi. Einnig veltum við fyrir okkur þessum spurningum: Hvað get- um við gert? Hvernig getum við hjálpað? – Okkur langar að veita alla þá mögulega hjálp sem hægt væri að veita, en finnum til vanmátt- ar. Að senda samúðarkveðjur og óskir um styrk virðist svo létt- vægt á þessari stundu, en allur okkar hugur fylgir þessum kveðjum og óskum. Allur sá kærleikur sem við búum yfir, sú hlýja og vænt- umþykja sem okkur er unnt að finna til er send með þessari kveðju og við vonum svo heitt og innilega að þið megið finna styrk til að fást við það sem lífið hefur nú lagt fyrir ykkur. Hjartkæri bróðir og mág- kona, foreldrar, systkini og frændfólk, missir ykkar er mik- ill, samúð okkar er öll hjá ykk- ur. Guð blessi yndislegu stúlkuna ykkar. Perlur Þau hanga um hálsinn eins og þung festi, tárin, perlur Guðs á himnum. Minning um ástvin, sem fór. Með tímanum breytast perlurnar, verða ekki tár, heldur fegurstu demantarnir sem við eigum. Minningar. (MSB) Herdís Kristín, Þorsteinn, Magga Sigurbjörg, Guðmundur og Hulda Brynjólfsbörn. Það er ólýsanlega sárt að sitja hér og skrifa niður minn- ingarnar sem við áttum með þér. Þær hefðu átt að vera svo ótal margar í viðbót en það er það sem er svo erfitt við þær. Þú varst rétt að byrja lífið. Ljóshærð, bláeygð, brosmild og glettin sem barn. Þegar þú brostir þínu breiðasta áttu aug- un þín til að hverfa. Hildur Elín var einstaklega listræn, teiknaði fallegar myndir sem eftir var tekið og náði fljótt tökum á gít- argripum enda bæði dugleg að æfa sig og með gott tóneyra. Hún átti auðvelt með að dunda sér við áhugamálin sín. Það voru margar ferðir sem að við fórum í saman en ég held að allir séu sammála um að Flórída-ferðin standi upp úr. Þar nutum við fjölskyldan jóla og áramóta saman og yljum við okkur nú við fallegar minningar úr þeirri ferð. Í þessari ferð sást greinilega hversu barngóð Hildur Elín var því hún naut þess að leika við Heklu Katrínu, þá þriggja ára, öllum stundum en mest þó í sundlauginni. Hekla Katrín var svo sannar- lega heppin og ánægð með frænku sína. Við munum sjá til þess að hún fái að sjá myndir, heyra sögur af þér og halda minningunum um þig á lofti. Við elskum þig. Þín systir og frænkur, Rakel, Helena Bryndís, Hildur Telma og Hekla Katrín. Elsku Hildur Elín Heró okk- ar. Á óbærilega sárri kveðju- stund förum við yfir fjölmargar skemmtilegar og fallegar minn- ingar um þig sem gafst okkur svo mikið og hafðir svo ofsalega mikið fram að færa. Algjör sól- argeisli inn í líf okkar allra. Þú varst gædd miklum mann- kostum, vönduð, eldklár og sterk og jafnframt hlý og skiln- ingsrík. Svo hugrökk, með flott- ar skoðanir og við dáðumst að þér. Viska þín var oft dýpri en árafjöldinn sagði til um. Þú hafðir næma tilfinningu fyrir líðan annarra, alveg fordóma- laus og barðist fyrir réttindum annarra, sérstaklega þeirra sem þurftu sterkan málsvara. Sagðir vel frá, bæði léttum og erfiðum málefnum og varst opinská og hreinskilin. Þú varst gríðarlega fær lista- manneskja og ljóðskáld. Teikn- ingar þínar eru einstakar og með sterkri tjáningu. Það var dásamlegt að sjá verk þín úr Myndlistarskóla og leiklistar- hæfileika þína á sviði. Þú hafðir góðan smekk og gerðir allt fallegt í kringum þig. Þú varst fljót að tileinka þér margs konar þekkingu. Mjög fé- lagslynd, þolinmóð og góð við samferðafólkið þitt. Dugleg og það var gaman að fylgjast með þér æfa á mismunandi tímabil- um ballett, listdans á skautum, körfubolta og crossfit. Kímnigáfa þín var algjörlega frábær. Þú áttir svo auðvelt með að láta okkur kútveltast af hlátri með áreynslulausum lýs- ingum með skemmtilegum hreim eða hnyttnum tilsvörum. Algjörlega fyrirhafnarlaust gastu fengið fólk sem alla jafna er frekar alvarlegt til að liggja í hláturskasti með bráðfyndnum lýsingum á hversdagslífinu. Það var alltaf svo dásamlegt að hafa þig hjá okkur. Þú varst falleg eins og sólin og við vild- um öll vera í kringum þig. Nær- vera þín var svo góð og við vor- um afar tengd. Samverustundirnar okkar voru hver annarri skemmtilegri og við gerðum óteljandi hluti sam- an. Fórum á fjölmarga staði í borginni, víðsvegar um landið og til annarra landa. Stunduð- um útivist, sund og íþróttir, teiknuðum og föndruðum margt fallegt, fórum á söfn, strendur, tívolí, sýningar, verslunarferðir, garða og hátíðir. Við fjölskyldan stóðum alltaf þétt saman og höfðum mikla innsýn í líf hvert annars. Hitt- umst reglulega í matarboðum, héldum saman veislur, spila- kvöld, spurningakeppnir og önnur skemmtileg boð. Tilveran verður aldrei aftur söm yndislega gullið okkar. Þú átt afar mikilvægan og gull- fallegan stað í hjarta okkar og ert okkur svo ákaflega dýrmæt. Það sem við erum heppin að hafa haft þig með okkur og gert líf okkar svo ríkt. Þú verður alltaf með okkur, í hug okkar og hjarta og í öllu sem er fallegt. Þú fylgir okkur í hversdagsleg- um athöfnum og áskorunum lífsins. Við elskum þig svo innilega heitt. Minningu þína munum við ávallt heiðra. Þínar frænkur, Eva, Helena, Sandra og Rakel. Elsku Kiddi minn. Við fengum mörg afskaplega góð ár saman. Þetta var samt rétt að byrja. Við áttum svo margt eftir að gera saman. Líf- ið er núna, eins og við sögðum svo oft, engin ástæða til að bíða. Guð tók þig frá mér alltof fljótt elsku karlinn minn. Hvernig fer ég að þessu án þín? Ég sakna þín svo ótrúlega mik- ið. Takk fyrir allt. Ég elska þig. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, Kristinn Pedersen ✝ Kristinn Ped- ersen fæddist 30. maí 1948. Hann lést 28. ágúst 2021. Útför Kristins fór fram 9. sept- ember 2021. þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Þín Erla. Elsku pabbi. Það er svo erf- itt að hugsa til þess að þú mun- ir aldrei koma aftur til okkar og njóta með okkur. Ég sit við tölvuna og reyni að skrifa en tárin renna niður kinnarnar því það er svo sárt að vera búin að missa þig pabbi minn. Án þín verður lífið ekki eins, mamma saknar þín svo sárt að hún veit ekki hvernig hún á að halda áfram, en við verðum að styrkja hvert annað og hugsa um allar minningarnar og halda áfram, það hefðir þú vilj- að. Þið mamma voruð með svo skemmtileg plön fram undan, það var kominn tími til að njóta lífsins, fara til útlanda og dvelja þar lengri tíma í einu. Þið voruð bæði við góða heilsu og því er þetta mikið reiðarslag fyrir okkur öll að þú sért fall- inn frá svona hraustur eins og þú varst bæði á sál og líkama. Mikið var gaman þegar þið komuð hjólandi á nýju raf- magnshjólunum ykkar í bakarí- ið til mín og fenguð ykkur kleinuhring og kaffi. Minning- arnar eru margar og mikilvægt að minnast þeirra allra þegar við söknum þín og þig vantar með okkur. Ófáar sumarbústaðaferðirnar fórum við saman fjölskyldan og höfðum gaman af, þú varst dug- legur að fara út á golfvöll með strákunum okkar og kenna þeim grunninn í golfi. Þú varst góður í að hvetja Robba minn áfram í fótboltanum og þú komst á flesta leiki sem hann spilaði og stappaðir í hann stál- inu. Robbi á eftir að sakna þín mikið elsku pabbi. Missir strák- anna er mikill en þeir munu halda í minningarnar um ókomna tíð. Elsku besti pabbi minn, nú kveð ég þig með sárum söknuði. Ég mun ávallt minnast þeirra góðu stunda sem við áttum saman. Eftir situr stórt skarð sem enginn mun fylla, og ég veit að þetta mun taka tíma að sætta sig við það þegar svo kær manneskja er tekin burt frá manni. Ég passa mömmu fyrir þig, ég veit að góði guð mun styrkja okkur og við munum öll styrkja hvert annað í sorg okk- ar. Hvíldu í friði elsku pabbi minn. Helga og synir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.