Morgunblaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 65
MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 Þ egar fréttir bárust af vænt- anlegri heimildarmynd breska leikstjórans Edgars Wright um skringisveitina Sparks var von á góðu. Wright er með skemmtilegri kvikmyndagerðar- mönnum sem starfa innan Holly- wood-kerfisins og reytir af sér fyndn- ar og skemmtilegar greinarmyndir eins og að drekka vatn. Eitt meg- ineinkenni þeirra eru mikil sjónræn blæbrigði en ekki síður fjörugt sam- spil hljóðrásar og tónlistar við mynd- efnið – sem honum ferst snilldarlega úr hendi. Myndir hans eru ákaflega músíkalskar í eðli sínu – en hann not- ar í þeim jafnan klassíska dægur- tónlist á frábæran hátt. Því skal eng- an undra að hljómsveitin Sparks sé í miklu uppáhaldi hjá kauða – í vissum skilningi er tónlist sveitarinnar and- hverfa á verkum Wrights, þ.e.a.s. ákaflega hugmyndarík og glettin popptónlist, sem er ákaflega bíóleg og leikræn að upplagi. Sparks er skipuð tveimur bræðr- um, Ron og Russell Mael, sem ólust upp í millistétt í borg englanna í Kali- forníu-ríki Bandaríkjanna. Örlítið er greint frá uppvexti þeirra í myndinni en þeir misstu föður sinn, sem vann í skapandi geiranum, ungir að aldri en áttu náið samband við móður sína sem keyrði þá m.a. til Las Vegas til að fara á tónleika með Bítlunum („That‘s a real mom!“, segja þeir). Þeir stund- uðu báðir háskólanám í kvikmyndum og öðrum skapandi greinum áður en hljómsveitarstússið tók alfarið yfir. Á þeim tíma voru fyrirmyndir þeirra að stórum hluta breskar sveitir eins The Who og Kinks. Sveitin sem þeir skip- uðu ásamt félögum sínum hét Half- nelson fyrst um sinn og tók upp frum- raun sína undir leiðsögn gítarvirtúós- ins og upptökustjórans Todd Rund- gren. Strax frá upphafi var tónlist þeirra í miklu metum hjá tónlistar- mönnum, sem heilluðust af óvenju- legum og frumlegum laglínum og út- setningum þeirra sem snéru upp á popp- og rokkformið. Velgengni og plötusala lét þó á sér standa þar til bræðurnir skildu rokkfélaga sína eft- ir og héldu yfir Atlantshafið til Mekka tveggja hæða rauðra almenn- ingsvagna og steikts dagblaðafisks. Í Bretlandi féll sérviskulegur glys- rokkkokteillinn í kramið og urðu þeir þar stirni um sinn. Almennt er talað um Sparks sem „breskustu“ sveit Bandaríkjanna, mjög margir koma af fjöllum þegar þeir heyra að uppruni hennar liggi ekki í hefðarveldinu Viktoríu. Frægð- in var þó skammvinn þar, til þess voru bræðurnir of mikil ólíkindatól. Megineinkenni þeirra er nefnilega nýjungagirni og kannski eilítið mús- íkölsk mótþróaröskun. Aðdáendur vita aldrei við hverju má búast, sem hefur þýtt að sveitin hefur átt ótal skeið, og er þekkt fyrir mismunandi plötur eftir hvar fæti er stigið niður. Eftir þá liggja 25 plötur á fimmtíu ára ferli, hver og ein ólík þeirri sem á undan kom. Í gegnum myndina er hverri og einni gerð skil og fæst því yfirlitsmynd af mögnuðu lífsferli hljómsveitarinnar og þeim aga og al- úð sem þeir hafa lagt í störf sín. Ítar- leg yfirferðin orsakar að myndin er líklega einum of löng eða rúmlega 140 mínútur. Í einhverju viðtali lýsti leikstjóri því að hann langaði einfaldlega að safna öllum Sparks-klippunum á Youtube á einn stað, svo heimurinn gæti notið. Þetta er nokkuð lýsandi fyrir efnistökin, sem eru ákaflega hefðbundin fyrir heimildarmynd um hljómsveit. Við fáum viðtöl, mynd- bönd og tónleikaklippur í bland við fræga hausa sem lofsyngja bandið en bræðurnir sjálfir eru hressir og skemmtilegir til svara. Á þennan hátt tekst myndinni ætlunarverk sitt – hún skemmtir harðari aðdáendum en kynnir um leið hljómsveitina fyrir þeim sem þekktu lítið eða ekkert til hennar. Sparks hefur ætíð verið hjúpuð dulúð og lítið er vitað um persónulega hagi þeirra bræðra. Það helst að mestu leyti óbreytt og ekki er beinlín- is kafað inn í sköpunarferli þeirra heldur. Í staðin er valhoppað á yfir- borðinu og það er ákaflega skemmti- legt enda viðfangsefnið það sértækt og skoplegt. Margir kaflar í lífi Sparks-verja væru fyrirtaks efni í annars konar bíómyndir. Sjálfir áttu þeir nokkur aðhlaup að hvíta tjaldinu. Áform með meistara Jacques Tati um nýja Herra Hulot kvikmynd með sveitina í fararbroddi var í kortunum áður en sá franski lést snemma á ní- unda áratugnum. Bræðurnir vörðu síðan sex árum í gerð á söngleik eftir manga-sögunni Mai: The Physic Girl sem Tim Burton átti að leikstýra á hátindi frægðar sinnar í kringum árið 1990, en ekkert varð úr. Bíódraumar þeirra hafa þó loks ræst með söng- leiknum Annette, opnunarmynd Cannes í ár sem stórleikstjórinn Leos Carax leikstýrir eftir handriti og tón- list þeirra. Því fær bíóþráður heimild- armyndarinnar gleðilegan endi. Það sem stendur upp úr er elja og þróttur bræðranna – að hafa haldið áfram í gegnum allt mótlæti. Frá áhorfi hefur undirritaður forvitinn og glaður hlýtt á snilldarplötu Spark- verja, sem þeir unnu með ítalska kon- ungi hljóðgervladiskósins Giorgio Moroder, No.1 in Heaven, og velt fyr- ir sér hvenær hann fái loks að syngja „My Way“, og líða eins og Frank Sin- atra leið. Og til þess horfir maður á þessa gerð heimildarmynda. Númer eitt á himnum Elja „Það sem stendur upp úr er elja og þróttur bræðranna – að hafa haldið áfram í gegnum allt mótlæti,“ skrifar rýnir um heimildarmynd Edgar Wright. Bíó Paradís Sparks-bræður/The Sparks Brothers bbbmn Leikstjórn og handrit: Edgar Wright. Kvikmyndataka: Jake Polonsky. Klipp- ing: Paul Trewartha. Bretland/Banda- ríkin. 141 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.