Morgunblaðið - 16.09.2021, Side 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
SPACE hleðslulampi
Hönnuður: Adam Tihani Verð: 35.900,-
DÚKA SMÁRALIND | SÍMI 564 2011 | DUKA.IS
OPIÐ VIRKA DAGA 11-19 | LAUGARDAGA 11-18 | SUNNUDAGA 12-17.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Verkið er í grunninn um mannleg samskipti,
um það hvernig við eigum í samskiptum við
fólk sem við þekkjum og þekkjum ekki, fólk
sem við höfum kannski flokkað í ákveðna hópa
eða skilgreint út frá því hvar það býr, hvernig
það lítur út eða hvaða skoðanir það hefur. Það
er líka um það hvernig við tökumst á við okkur
sjálf, drauma okkar og langanir,“ segir Una
Þorleifsdóttir sem leik-
stýrir nýju verki eftir Hall-
dór Laxness Halldórsson,
Dóra DNA, sem ber titilinn
Þétting hryggðar. Verkið
er frumsýnt í kvöld á Litla
sviði Borgarleikhússins.
Una lýsir verkinu sem
tragikómedíu um samskipti
og mennskuna. „Verkið
gerist í fundarherbergi í
Reykjavík og persónurnar
eru kannski einhvers konar
birtingarmyndir hugmynda um Reykvíkinga
eða Íslendinga almennt,“ segir leikstjórinn.
Neyðast til að eyða tíma saman
„Fjórir Reykvíkingar eru læstir inni í fund-
arherbergi í Borgartúninu af öryggisástæðum.
Þau deila um skipulagsmál, Dominos og hverj-
um er raunverulega hægt að kenna um allt
sem er að. Ef byggðin er of þétt, þá heyrum
við tómahljóðið í hjörtum nágranna okkar og
þá er erfiðara að sofna á kvöldin. Þar liggur
vandinn,“ segir meðal annars í tilkynningu.
Reykvíkingarnir fjórir eru nútímakona úr
Hlíðunum, arkítekt úr Vesturbænum, ungling-
ur úr Breiðholti og iðnaðarmaður úr Grafar-
vogi. Með þessi hlutverk fara Vala Kristín
Eiríksdóttir, Jörundur Ragnarsson, Rakel Ýr
Stefánsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson.
„Þau eru lokuð inni á skrifstofu Reykjavík-
urborgar vegna neyðarástands, komast ekki
burt og neyðast til þess að eyða þarna tíma
saman. Þetta er fólk sem hefði örugglega ann-
ars aldrei hist,“ segir Una.
Þétting hryggðar er fyrsta leikverk í fullri
lengd sem uppistandarinn, rithöfundurinn,
víninnflytjandinn og áhugaboxarinn Halldór,
Dóri DNA, skrifar. Þau Una höfðu þó unnið
saman handritinu að Atómstöðinni sem var
sett upp í Þjóðleikhúsinu haustið 2019 og var
byggt á samnefndri bók Halldórs Laxness.
Um samstarfsmann sinn og leikskáldið Hall-
dór segir Una: „Hann er samtímahöfundur.
Alveg eins og í bókinni sinni, Kokkál, og í ljóð-
unum sínum og uppistandi, þá er hann mjög
mikið að fjalla um samtímann. Í þessu tilfelli
fjallar hann um það hvernig við tölum saman,
hverjum við erum tilbúin að gefa mennskuna
og við hverja erum við hrædd. Getum við verið
sammála um að vera ósammála eða endar það
alltaf illa?“
Að tala en ekki að tala saman
Una segir Halldóri takast vel að vinna með
þá tegund samskipta sem einkenni samtím-
ann, samskipti sem einkennist ekki af hlustun.
„Við heyrum oft ekki hvað sagt er. Á netinu er
fólk til dæmis ekki mikið að tala saman, það er
að tala en það er ekki að tala saman.“
Eva Signý Berger sér um leikmynd og bún-
inga. „Hún er að vinna með hughrif af Reykja-
víkurborg. Borg í uppbyggingu, borg í um-
breytingu. Borg sem umlykur, borg sem
gnæfir yfir. Borgir eru alltaf á hreyfingu.
Þetta er táknmynd fyrir það.“
Lýsing er í höndum Kjartans Þórissonar og
leikgervi í höndum Guðbjargar Ívarsdóttur.
Unu til halds og trausts er síðan sviðshöfund-
urinn Jóhann Kristófer Stefánsson sem marg-
ir þekkja sem tónlistarmanninn Joey Christ.
Skemmtilegt, skapandi og gefandi
Una segir ferlið hafa verið skemmtilegt og
frjótt. „Það er allt öðruvísi að vinna með svona
ný verk en einhverja klassík. Þetta er í fyrsta
sinn sem verkið er sett upp og höfundurinn er
lifandi og á staðnum þannig að samtalið er allt
öðruvísi.“ Þau Halldór hafi verið í miklu sam-
tali við leikarana fjóra sem allir fara með stór
hlutverk í sýningunni. „Þetta er búið að vera
mjög skemmtilegt, skapandi og gefandi ferli.“
Þegar Una er spurð hvort faraldurinn hafi
haft áhrif á ferlið kemur í ljós að þau Halldór
höfðu í raun lagt upp með allt annað verkefni.
„Við ætluðum að vinna verk um Reykjavík
og vera með vinnustofur á öllum bókasöfn-
unum. Við ætluðum að fá Reykvíkinga til að
bjóða okkur í mat og segja okkur frá lífi sínu.
Við ætluðum svo að vinna upp úr því verk. Svo
kemur þessi heimsfaraldur og það frestast allt
og frestast.“ Á endanum ákváðu þau Una og
Halldór að hann myndi skrifa verkið frá
grunni í stað þess að þau færu þá leið sem þau
höfðu hugsað sér.
„Það sem við gerðum í staðinn var að ganga
um öll hverfi Reykjavíkur og reyndum ein-
hvern veginn að skynja Reykjavík til þess að
reyna að komast að því hvað hún er og hver við
erum. Þannig varð þetta verk til.“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Átök Jörundur Ragnarsson, Rakel Ýr Stefánsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson í hlutverkum sínum í sýningunni Þétting hryggðar. Ásamt Völu
Kristínu Eiríksdóttur leika þau fjóra afar ólíka Reykvíkinga sem neyðast til þess að eyða tíma saman þegar þau sitja föst í fundarherbergi.
Tragikómedía um mennskuna
- Nýtt leikverk, Þétting hryggðar, eftir Dóra DNA frumsýnt í Borgarleikhúsinu - Leikstjórinn Una
Þorleifsdóttir segir verkið snúast um mannleg samskipti - Fjórir Reykvíkingar úr samtímanum
Una
Þorleifsdóttir
Meðal mynda sem sýndar verða á
Kvikmyndahátíðinni í London, sem
fram fer 6.-17. október, er áður
ósýnd kvikmynd eftir Stefan og
Franciszku Themerson frá 1931
sem nefnist Europa og talin var
glötuð. Í frétt The Guardian kemur
fram að um sé að ræða kraftmikla
and-fasíska kvikmynd sem nasistar
lögðu hald á á sínum tíma og var
hún fyrir vikið talin glötuð að eilífu.
Kvikmyndin, sem talin var framúr-
stefnulegt meistaraverk, hefur haft
goðsagnakennda stöðu í kvik-
myndasögunni og hafa ýmsar til-
raunir verið gerðar til að endur-
skapa hana. Engum hafði hins
vegar hugkvæmst að eintak af
myndinni hefði varðveist þar til það
fannst fyrir tilviljun í þýska þjóð-
skjalasafninu árið 2019. Stefan og
Franciszka Themerson kynntust
1930 og störfuðu saman sem höf-
undar og kvikmyndagerðarfólk til
æviloka 1988. Europa, sem er 12
mínútur að lengd, byggist á sam-
nefndu fútúrísku ljóði eftir Anatol
Stern. Hjónin notuðu m.a. klippi-
myndir og ljósnæman pappír til að
fanga þann hrylling sem þau höfðu
orðið vitni að í Póllandi, en mynd-
ina bjuggu þau til í svefnherbergi
sínu í Varsjá.
Meistaraverk Stilla úr myndinni Europa.
Europa frá 1931 senn heimsfrumsýnd
Dómnefnd Booker-bókmenntaverð-
launanna hefur upplýsti hvaða sex
bækur bítast um að vera valin besta
skáldsaga ársins 2021 sem skrifuð
er á ensku. Tilnefnd eru Anuk
Arudpragasam frá Srí Lanka fyrir
A Passage North; Damon Galgut
frá Suður-Afríku fyrir The Prom-
ise; Nadifa Mohamed, sem fædd er í
Sómalíu og uppalin í Bretlandi, fyr-
ir The Fortune Men og bandarísku
höfundarnir Patricia Lockwood
fyrir No One Is Talking About This;
Richard Powers fyrir Bewilder-
ment og Maggie
Shipstead fyrir
Great Circle.
Verðlaunin
hafa verið afhent
síðan 1969 og
nemur verð-
launaféð 50 þús-
und sterlings-
pundum sem
samsvarar rúm-
um 8,8 milljónum
ísl. kr. Upplýst verður um vinnings-
hafa ársins 3. nóvember.
Tilnefningar til Booker-verðlauna 2021
Anuk
Arudpragasam