Morgunblaðið - 25.09.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
Forsætisráðuneytið óskar eftir tilnefningum
til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2021
Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða
félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði
kynjajafnréttismála.
Skipuð hefur verið sérstök valnefnd í samræmi við 2. málsl. 4. mgr. 24. gr. laga nr. 150/2020,
um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem velur úr innsendum tilnefningum.
Tilnefningum skal skila rafrænt eigi síðar en 10. október 2021 til forsætisráðuneytisins á
netfangið for@for.is. Rökstuðningur vegna tilnefningar skal fylgja með.
Sími 552 2018
info@tasport.is
TenerifeAðventuferð
til Berlínar
Allt innifalið á 4* hóteli
ásamt skoðunarferð á
vínbúgarð og á ElTeide
með íslenskri fararstjórn.
Hafið samband á
skrifstofu 552 2018
eða info@tasport.is
Örfá
sæti laus
30. okt.-10. nóv. 2021
2.-6. des. 2021
Verð frá 88.800 kr.
4 nætur á 3* hóteli.
Í Berlín erfjöldinn allur af
jólamörkuðumog býður þessi
borg upp ámargt sem vert er
að skoða og njóta bæði í mat,
drykk ogmenningu .
Innifalið:
Flug + 20 kg innrituð taska og handfar-
angur. Gisting á 3 * hóteli meðmorgun-
mat 4 nætur í tvíbýli.
Frekari upplýsingar og
bókanir sendast á
info@tasport.is
Bókunar-
afsláttur
kr. 8.000
á mann
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undirbúningur að byggingu nýs
flugskýlis Landhelgisgæslunnar á
Reykjavíkurflugvelli er í fullum
gangi. Stefnt er að því að skýlið
verði tilbúið til notkunar um mitt ár
2022. Margir áratugir eru síðan nýtt
og stórt flugskýli var síðast byggt á
Reykjavíkurflugvelli.
Það er ríkisfyrirtækið Öryggis-
fjarskipti ehf. sem byggir flugskýlið
fyrir Landhelgisgæsluna en það hef-
ur fengið götunúmerið Nauthóls-
vegur 86B. Nýlega var auglýst eftir
tilboðum í jarðvinnu vegna skýlisins
og verða tilboð opnuð 30. september
nk. Reiknað er með að jarðvegs-
vinna geti hafist í október og taki um
átta vikur.
Burðargrind verður úr límtré
Þá var í vikunni auglýst eftir þátt-
tökubeiðnum í forval fyrir lokað út-
boð vegna flugskýlisins. Útboðið
felst í verkfræðihönnun og fram-
leiðslu á burðargrind úr límtré
ásamt samlokueiningum í þak og
veggi. Áhugsasmir eiga að hafa sam-
band við verkfræðistofuna Eflu eigi
síðar en 11. október nk.
Hið nýja flugskýli verður 2.822
fermetrar að stærð, 39 metra breitt
og 39 metra langt. Mænihæð verður
12 metrar. Það mun rúma tvær
björgunarþyrlur. Þá verður byggð
tengibygging á tveimur hæðum, sem
tengist núverandi flugskýli og á að
hýsa skrifstofur, mötuneyti starfs-
manna, búningsklefa og hvíldarrými
fyrir stafsfólk. Hægt verður að fjar-
lægja byggingarnar ef flugstarfsemi
leggst af á Reykjavíkurflugvelli í
framtíðinni.
Eins og fram hefur komið hér í
Morgunblaðinu rúmar núverandi
flugskýli ekki öll loftför Gæslunnar,
þrjár þyrlur og flugvél. Að auki upp-
fyllir flugskýlið ekki kröfur um
brunavarnir auk þess sem almenn
aðstaða starfsfólks er alls ófullnægj-
andi og langt frá kröfum nútímans.
Þá sé ekki hægt að viðhafa almennar
öryggiskröfur sem gerðar eru til að-
stöðu þar sem viðhald loftfara fer
fram. Því var mikil þörf á nýju skýli,
sem byggt verður suðaustan við hið
gamla.
Í samantekt Minjasafns Reykja-
víkur kemur fram að flugskýlið var
reist árið 1942 og í fyrstu hafði sjó-
hernaðarsveit breska flughersins
þar aðstöðu. Síðar eignaðist Land-
helgisgæslan húsið. Útveggir þess
eru traustir og því verður skýlið
endurbætt til að mæta nútímakröf-
um um brunavarnir, samkvæmt
upplýsingum Ásgeirs Erlendssonar
upplýsingafulltrúa. Í þær fram-
kvæmdir verður ráðist þegar nýja
skýlið verður tilbúið á næsta ári.
Vegna framkvæmdanna við nýja
flugskýlið þarf að rífa mannvirki á
svæðinu og færa til, alls 769 fer-
metra. Einnig þarf að færa eldsneyt-
istank til meðan á framkvæmdum
stendur. Byggingafulltrúi Reykja-
víkur veitti til þess heimild á fundi
sínum í vikunni.
Þegar tilkynnt var á blaðamanna-
fundi fyrr í mánuðinum um að bygg-
ing flugskýlsins væri að hefjast
sagði Georg Lárusson forstjóri
byggingu þessa vera mikið fram-
faraskref fyrir Landhelgisgæsluna
enda sé núverandi aðstaða flug-
deildar stofnunarinnar barn síns
tíma.
„Eftir að þriðja leiguþyrlan af
gerðinni Airbus Super Puma H225
var tekin í notkun í maí hefur flug-
floti Landhelgisgæslunnar aldrei
verið öflugri. Þessi öflugi flugfloti og
starfsfólk flugdeildar Landhelgis-
gæslunnar fá nú viðunandi aðstöðu
sem uppfyllir þarfir samtímans. Við
hjá Landhelgisgæslunni erum afar
þakklát stjórnvöldum og Öryggis-
fjarskiptum ehf. fyrir að láta bygg-
ingu flugskýlisins verða að veru-
leika. Síðast en ekki síst erum við
þakklát borgaryfirvöldum í Reykja-
vík sem hafa sýnt þeirri mikilvægu
starfsemi sem fram fer hjá Land-
helgisgæslu Íslands mikinn skilning
með því heimila byggingu þess,“
sagði Georg Lárusson.
Rúmast ekki í flugskýlinu
Landhelgisgæslan hefur nú yfir
að ráða þremur þyrlum af tegund-
inni Airbus Helicopters og einni
flugvél af gerðinni Dash 8 Q 300 sem
er sérhönnuð til eftirlits-, leitar-,
björgunar- og sjúkraflugs á Norður-
Atlantshafi. Nú er svo komið að
geyma þarf eina þyrlu eða flugvélina
TF-SIF utandyra vegna plássleysis.
Jarðvinna hefst í næsta mánuði
- Búið að auglýsa fyrstu útboðin vegna nýs flugskýlis Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli
- Flugskýlið mun rúma tvær björgunarþyrlur - Endurbætur verða gerðar á gamla flugskýlinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugskýli Gæslunnar Aðstæður til viðhalds hafa verið ófullnægjandi en það stendur allt til bóta með nýja skýlinu.
Nýtt flugskýli fyrir
Landhelgisgæsluna
Nauthólsvík
Háskólinn í
Reykjavík
Nýja flugskýlið mun
tengjast flugskýlinu
Loftmyndir ehf.
Við Reykjavíkurflugvöll
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur
kært hæstaréttarlögmanninn Sig-
urð G. Guðjónsson til lögreglu, Per-
sónuverndar og úrskurðarnefndar
Lögmannafélags Íslands. Þórhildur
kom fram í viðtali í síðasta mánuði
og greindi frá kynferðisofbeldi sem
hún hefði orðið fyrir af hálfu Kol-
beins Sigþórssonar landsliðsmanns.
Fram kemur á vef RÚV að kæran
varði Facebook-færslu Sigurðar frá
því fyrr í mánuðinum þar sem hann
birti myndir af rannsóknargögnum
úr sakamálinu, sem síðar var fellt
niður eftir að Kolbeinn greiddi m.a.
Þórhildi miskabætur og játaði sök.
Í samtali við mbl.is segist Sig-
urður ekki hafa vitað af kærunum.
Kærir Sigurð til
lögreglu og LMFÍ