Morgunblaðið - 25.09.2021, Side 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
WWW.ASWEGROW.ISUMHVERFISVÆN ÍSLENSK HÖNNUN
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Allir munir Miðgarðakirkju gjöreyðilögð-
ust þegar kirkjan brann til grunna 21.
september. Ítarleg umfjöllun um kirkjuna
og gripina er í Kirkjum Íslands, 9. bindi.
Tryggingar flestra kirkna eru á forræði
sóknanna. „Hver sókn
er sjálfstæð fjárhags-
og stjórnunareining,“
sagði séra Kristján
Björnsson, vígslu-
biskup í Skálholti.
„Kirkjur eru flestar
tryggðar samkvæmt
brunabótamati og það
er frekar lágt.“
Kristján segir að
kirkjugripir séu yfir-
leitt ekki tryggðir sér-
staklega. Einstaka sinnum eru þó dýrir
gripir, eins og t.d. pípuorgel, tryggðir.
Það er ekki síst ef til þeirra hefur verið
safnað. Eins krefjast lánveitendur stund-
um sérstakra trygginga þegar lánað er til
kirkjubyggingar eða orgelsmíði.
Friðlýstar kirkjur eru á þriðja hundrað
og allmargar þeirra sóknarkirkjur. Krist-
ján sagði að oft hafi fámennar eða mann-
lausar sóknir verið sameinaðar öðrum. Þá
fær sameinuð sókn í fangið gamla kirkju
eða kirkjur tryggðar skyldutryggingu.
Nokkrar bændakirkjur eru í einkaeigu,
en þeim hefur fækkað. Þannig var t.d.
bændakirkjan Grundarkirkja í Eyjafirði
afhent söfnuðinum. Tvær kirkjur eru í
eigu ríkisins, Þingvallakirkja og Hóla-
dómkirkja. Skálholtsdómkirkja og allar
fasteignir í Skálholti eru eign þjóðkirkj-
unnar.
Söfnun fyrir kirkju í Grímsey
Kristján hvetur landsmenn til að styðja
byggingu nýrrar kirkju í Grímsey í stað
þeirrar sem brann með framlagi til sókn-
arinnar. „Ég mæli með kr. 10.000 á mann
því það er nálægt því sóknargjöld ein-
staklings í eitt ár, eitt sóknarbarn til liðs-
auka í Miðgarðasókn!“ skrifaði Kristján á
Facebook-síðu sinni. Reikningsupplýs-
ingar sóknarinnar eru banki 565-04-
250731 og kt. 460269-2539.
Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Söngtafla Skorin út og máluð af
Einari Einarssyni djákna. Hann
skar út og gaf kirkjunni fleiri gripi.
Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Altarisstjaki Annar af tveimur
stjökum sem Átthagafélag Siglu-
fjarðar gaf kirkjunni á 20. öld.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Prestatal Í kirkjunni var skjöld-
ur með nöfnum sóknarpresta sem
sátu í eynni og þjónuðu þar.
Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Ljósahjálmur Þrír ljósahjálmar
voru í kirkjunni. Sá elsti var keypt-
ur fyrir árið 1884.
Kirkjur eru flestar lágt tryggðar
- Allt gjöreyðilagð-
ist þegar Miðgarða-
kirkja brann
Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Altaristaflan Arngrímur Gíslason málari frá Skörðum í Þingeyjarsýslu málaði alt-
aristöfluna árið 1879 eftir frægu málverki Leonardo da Vinci af kvöldmáltíðinni.
Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Prédikunarstóll Hann var úr gömlu torfkirkjunni. Á honum
var útskorin mynd eftir Einar Einarsson djákna í Grímsey.
Snorri Guðvarðsson málarameistari málaði stólinn 2002.
Ljósmynd/Kirkjur Íslands
Ljósakróna Leifar af gömlum ljósa-
hjálmi sem geymdur var á kirkjulofti
Miðgarðakirkju.
Séra Kristján
Björnsson