Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Samstaða, snerpa í viðbrögðum við síbreytilegum aðstæðum, sterk sjálfsjargarviðleitni og skilningur á mikilvægri menntunar. Þetta er að mati Jóhanns Antonssonar á Dalvík meðal helstu skýringa á því að sjávarútvegurinn hefur verið undirstaða í atvinnulífi þar í byggð. Sú staða hefur haldist á meðan víða annars staðar á land- inu hefur hallað undan. Þessa þró- un og sögu greinir Jóhann í bók- inni Sjávarplássið Dalvík sem kom út í sl. viku. Svarfdælasýsl forlag sf. gefur út. Manndómsvígsla Byrjað var um 1850 að sækja sjó frá Böggvistaðasandi fyrir minni Svarfaðardals, þar sem nú heitir Dalvík, á þilskipum sem gerð voru út til hákarlaveiða. Slíkt þótti mik- ið búsílag. „Það þótti mikil mann- dómsvígsla fyrir unga menn að stunda hákarlaveiðar,“ segir Jó- hann Antonsson í bók sinni – en í þessari sjósókn var sótt á Gríms- eyjarsund, Skagagrunn nærri Eyjafirði eða vestar við landið. Vélbátaútgerð frá Dalvík hófst snemma, en fyrst af alvöru um 1940 þegar þar var útbúin höfn. Árið 1934 hóf KEA að frysta kjöt á Dalvík og fimm árum síðar fisk- vinnslu; það er flökun og fyrstingu. Starfsemi kaupfélagsins var næstu áratugina stór þáttur í öllu at- vinnulífi í sjávarplássinu, þar sem hafnaraðstaðan var byggð upp í áföngum. Ágæt höfn gerði Dalvík- ingum mögulegt að taka þátt í síld- arævintýrinu mikla um og eftir miðja 20. öldina, sem skóp mikla peninga. Þá var stofnað Útgerð- arfélag Dalvíkinga – en allt var þetta gert í því skyni að afla hrá- efnis fyrir frystihúsið og treysta avinnu í plássinu. Þannig var alls ekki sjálfgefið að Dalvík yrði út- gerðarstaður, nema hvað aðstæður til slíks voru skapaðar og þá þurfti til harðfylgi og útsjónarsemi. Jóhann getur þess í bók sinni að um tíma hafi Dalvík verið mikið togarapláss. Nokkrir slíkir voru gerðir út til að afla hráefnis fyrir fiskvinnslufyrirtækin í plássinu, þar sem unninn var frystur fiskur, og skreið. Þá voru Dalvíkingar um skeið atkvæðamiklir í rækju- vinnslu og frumkvöðlar í úrhafs- rækjuveiði. Þörf á meira hráefni hvati sameiningar fyrirtækja Upp úr 1990 þegar þrengingar voru í rekstri sjávarútvegsfyr- irtækja víða um land þá var við- bragð margra, að færa fiskvinnsl- una á haf út með svokallaðri sjófrystingu. Á Dalvík var hins veg- ar farið í hina áttina og starfsemi í frystihúsi KEA efld til muna – sem reyndist rétt ákvörðun. Í afkasta- mikið frystihúsið á Dalvík þurfti hins vegar meiri afla, sem réð miklu um samruna sjávarútvegs- fyrirtækja sem hófst árið 1998. Snæfell varð til með samruna Út- gerðarfélags Dalvíkur og fleiri fyr- irtækja við sjávarútvegsrekstur KEA. Áfram rúllaði boltinn og í fyllingu tímans keypti Samherji þennan rekstur. Rekur nú á Dalvík afkastamikla og hátæknivædda fiskvinnslu. Gerir þaðan einnig út togarana Björgvin og Björgúlf, en svo hétu togararar sem fyrr á árum voru gerðir út frá Dalvík. „Úr störfum mínum er minn- isstætt að árið 1974 varð það úr vegna veikinda Aðalsteins Lofts- sonar útgerðarmann sem ég starf- aði þá fyrir, að ég fór til móts við togarann Baldur sem var smíðaður í Póllandi. Leysti úr þeim málum sem þurfti svo skipið kæmist heim,“ segir Jóhann. „Baldur varð síðan varðskip í 200 mílna þorska- stríðinu og þótti þar reynast vel. Var skeinuhættur freigátunum. Seinna var ég svo framkvæmda- stjóri Söltunarfélags Dalvíkur og þá átti að setja á fót niðursuðu- verksmiðju. Af því varð ekki heldur varð fyrirtækið frumkvöðull í út- hafsrækjuveiðum eftir að Snorri Snorrason kom til liðs við félagið.“ Þetta er í grófum dráttum sjáv- arútvegssagan sem greinir frá í bókinni, hvar einnig er brugðið upp svipmyndum úr mannlífinu á Dal- vík. Sagðar eru sögur af fólki sem lét til sín taka í starfi og leik – og markaði spor hvert með sínu móti. Átti brunn heimilda Um tildrög þess að Jóhann Ant- onsson skrifaði bókina Sjávar- plássið Dalvík minnir hann á hér- aðsblaðið Norðurslóð sem hann setti á fót árið 1977 með þeim Hirti Þórarinssyni á Tjörn og Óttari Proppé. „Þá kom eins og af sjálfu sér að ég skrifaði mest um sjávarútveg og þannig myndaðist brunnur ómet- anlegra heimilda. Ég hafði því miklu efni að moða úr. Einnig hafði ég frá upphafi Fiskidagsins mikla tekið saman greinar um sjávar- útveg fyrir Fiskidagsblaðið. Ég fékk hvatningu um að setja þetta efni saman á bók, eins og varð nið- urstaðan. Hér greinir frá málum sem var vert að halda til haga – þróun sem skóp sjávarplássið Dal- vík.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi 2021 Höfnin á Dalvík full af alls konar bátum á mynd sem var tekin sl. vor. Bryggjurnar eru lífæðin í hverju plássi. Ljósmynd/Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson Síldarsöltun Þóranna Hansen og Valrós Árnadóttir, til hægri, við störf. Sjálfsbjargarviðleitnin var sterk - Sjávarplássið Dalvík í bók Jóhanns Antonssonar - Frá hákarlaveiðum til hátæknivæddrar fisk- vinnslu á 12. öldinni - Réttu aðstæðurnar voru skapaðar - Frumkvöðlastarf - Sögur af fólkinu Ljósmynd/Jón Þ. Baldvinsson Silfur Dalvíkingar gerðu það gott á síldarárum. Veiðin var ævintýraleg. Ljósmynd/Jón Þ. Baldvinsson Starf Dalvíkingar hafa alltaf verið umsvifamiklir í skreiðarverkun. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Höfundur Jóhann Antonsson hér með sína glæsilegu og fróðlegu bók.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.