Morgunblaðið - 25.09.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 25.09.2021, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Sauðárkróki Fyrsta haustlægðin ruddist yfir Skagafjörð eins og aðra hluta lands- ins upp úr síðustu helgi og að morgni þriðjudags var Tindastóllinn, sem og önnur fjöll í firðinum, hvítur niður undir byggð, og í framhaldinu hefur vikan verið úrkomusöm og köld. Á trjám og runnum sáust vart fölnað lauf, en nú hefur orðið á nokkur breyting. - - - Vissulega eru kosningar til Al- þingis, þær sem nú fara fram, ekki á hefðbundnum vor- og kosningatíma, en það er ekki það eina sem óvenju- legt er þegar ráða skal stórum mál- um til lykta eins og kjöri til setu á löggjafasamkomu þjóðarinnar. - - - Hér í Skagafirði hefur verið fremur hljótt um þennan merka við- burð, varla að hinn almenni íbúi minnist á hann og þeir frambjóð- endur sem hingað koma hafa ekki farið fram með neinu offorsi. Í byrj- un viku höfðu þó framsóknar- og sjálfstæðismenn riggað upp kosn- ingaskrifstofum en í vikunni hefur heldur verið að færast fjör í leikinn, þótt flest sé nú heldur dauflegra en áður var. - - - En þess utan hefur bæjarlífið innan og utan þéttbýlis verið býsna blómlegt og öflugt. Að sögn Sigfúsar Inga sveitar- stjóra er stöðug en vissulega fremur hæg fjölgun í sveitarfélaginu. Í vik- unni voru Skagfirðingar nákvæm- lega 4.100. Þá voru á milli 50 og 60 íbúðir á mismunandi byggingarstigi í smíðum. Um er að ræða allmörg einbýlis- svo og par- og fjölbýlishús, og sagði Sigfús ljóst að vinna þyrfti að skipulagi nýrra gatna, bæði á Sauðárkróki og í Varmahlíð þar sem spurn eftir byggingalóðum er um- fram framboð. - - - Samstarfsnefnd hefur verið sett á laggirnar og hefur þegar hafið störf, um sameiningu Sveitarfé- lagsins Skagafjarðar og Akra- hrepps, og er nefndinni ætlað að skila niðurstöðum sem fyrst, þannig að um þær verði unnt að kjósa fljót- lega í byrjun næsta árs. - - - Þá er um þessar mundir verið að leggja lokahönd á gerð aðal- skipulags og væntir sveitarstjóri þess að því verði lokið á þessu ári. Þá er unnið að nýju deiliskipulagi Sauð- árkrókshafnar og verður það vænt- anlega samþykkt innan skamms. Er þar gert ráð fyrir verulega bættri aðstöðu smábátaeigenda, svo og reit fyrir aðstöðuhús þeim tengdum. Þá er gert ráð fyrir nýrri löndunar- aðstöðu við suðugarð, nánast við hlið svæðis þar sem ætluð er bygging nýs fiskmarkaðar sem þar mun rísa. - - - Að sögn Dags Þ. Baldvinssonar hafnarstjóra er nú í október von á nýkeyptum dráttarbáti frá Skot- landi, en lengi hefur verið unnið að leit og kaupum á heppilegu tæki til þessara nota. Sagði Dagur að flutn- ingaskipafélögin sem sigla til Sauð- árkróks að jafnaði tvisvar í viku, en ekki síður stjórnendur stóru togar- anna, hefðu lengi bent á að ekki væri vansalaust að ekki væri slíkur bátur til staðar á Sauðárkróki - - - Hér er um að ræða 20 metra langan og 7 metra breiðan bát, byggðan 2007 af Damen-gerð með togkraft um 28 tonn. Sagði Dagur þetta mikið framfara- og öryggismál fyrir höfnina. Þá sagði Dagur að á næsta ári yrði stálþil við Norðurgarð endur- nýjað en veruleg þörf var orðin á því verki, og er samanlögð lengd þilsins um 270 metrar. - - - Unnið hefur verið við endur- bætur á sjóvarnargörðum, á vegum sveitarfélagsins, við Skarðseyri með rúmlega eins metra hækkun nyrst en alls var endurhlaðinn og lagfærð- ur um 450 metra kafli, en þessi garð- ur skemmdist mikið í áhlaupaveðri fyrir nokkrum misserum sem olli miklu tjóni. Þá hefur Vegagerðin lokið varnargarði við Strandveg sem er þjóðvegur í þéttbýli og var það fyrir- tækið Víðimelsbræður sem önn- uðust bæði verkin. - - - Í sumar hefur Vegagerðin nánast lokið við að leggja nýtt malarlag á allan Skagaveg, sem var orðinn verulega illa farinn, svo og á Dals- plássið frá Steinsstaðahverfi og að innsta bæ, en þá var viðhaldsfé til malarvega uppurið. Á næsta ári verður 5,6 km lang- ur kafli af Reykjastrandarvegi byggður upp, breikkaður og lagður bundnu slitlagi út fyrir Fagranesá, þar sem byggð verður nýtt og öflugt ræsi. Mun þetta gjörbreyta aðstöðu þeirra sem reka ferðaþjónust á svæðinu, meðal annars Drangeyj- arferða en gert er ráð fyrir verklok- um fyrir árslok 2022. - - - Fyrirtækið Borgarverk hefur í sumar unnið að lagfæringum á Þver- árfjallsvegi, sem orðinn var mjög illa farinn eftir mikla umferðaraukningu undanfarinna ára. Um var að ræða styrkingu frá vegamótum Skagaveg- ar að Illugastöðum þar sem fram fór sementsfræsing á slitlagi, breikkun lítillega en síðan nýtt yfirborðslag á um 5 km kafla. Á Laxárdalsheiðinni var yfirborðslag fræst, löguð sig- hvörf sem komin voru í veginn, en síðan lagt nýtt slitlag. Er fram- kvæmdum að ljúka þessa dagana. - - - Eitt af fjölmörgum verkum sem Steypustöð Skagafjarðar er um þessar mundir að hefja, er plæging aðalstrengs frá Skeiðsfossvirkjun að Ketilási í Fljótum sem tengist þar við aðalstreng raflínunnar til Siglu- fjarðar, en þá er öll línan þangað komin í jörð, þannig að raforka til bæjarins ætti að vera örugg, en rysj- ótt veðurfar hefur oft á tíðum gert Siglfirðingum skráveifu. - - - Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er nú kominn í fullan gang en skólastarf þar sem og í mörgum öðrum skólum hefur ekki gengið hnökralaust síðustu misseri. En nú bregður svo við eftir nokkra lægð, að heimavist skólans er fullsetin og nemendur alls 660 og er það mesti nemendafjöldi til þessa. Einnig er það nýmæli að nem- endur í iðn- og starfsgreinum eru rúmlega helmingur, sem ekki hefur heldur gerst áður og má það þakka mjög góðu orðspori sem af skólanum fer. - - - Ingileif Oddsdóttir skólameist- ari segist fagna því að unga fólkið sé farið að koma aftur og sækja mjög í verkgreinarnar, skólinn sé að eflast og vaxa og þá sérstaklega vegna góðrar verkgreinakennslu. Sagði Ingileif að kennarar við skólann væru 50 en starfsfólk alls um 70. - - - Þrátt fyrir að skammdegi fari nú verulega að nálgast og jafnvel vetr- artíð, eru Skagfirðingar alltaf bjart- sýnir og oftar en ekki hafa nú haust- in verið góðviðrasöm hér um slóðir, og svo bara í næstu viku hafa allir sigrað í kosningunum, bara misjafn- lega stórt, svo ekki er neinu að kvíða. Framkvæmdagleði í Skagafirði Morgunblaðið/Björn Björnsson Sauðárkrókur Unnið hefur verið við endurbætur á sjóvarnagarði við Strandveg, meðfram þjóðveginum. Íbúðir Bygging nýrra íbúða er langt komin í gamla Barnaskólanum. „Gæsaveiðin virðist ekki vera farin mikið af stað. Ég er þó búinn að fá slatta af heiðagæsavængjum. Mér sýnist að sumir hafi fengið ágætlega af heiðagæs,“ sagði Arnór Þórir Sig- fússon, vistfræðingur hjá Verkís. Hann hefur lengi tekið við vængjum af veiddum gæsum og öndum og not- að þá til að kanna ungahlutfall í veið- inni hvert haust. „Nú er ég byrjaður að fá helsingjavængi og grágæsin er aðeins að byrja að koma. Venjulega byrjar grágæsaveiðin ekki mikið fyrr en seinni partinn í september. Reynsla mín er sú.“ Enginn skortur á heiðagæs Arnór sagði að sér sýndist að mönnum hafi gengið betur við heiða- gæsaveiðar sunnan heiða en norðan. Langvarandi þurrkar voru fyrir norðan í sumar og margar tjarnir sem gæsaskyttur hafa setið við höfðu þornað upp. „Það á að vera nóg af heiðagæs og enginn skortur á henni. Stofninn er það stór að hann þolir vel veiðar,“ sagði Arnór. Talningar benda til þess að grá- gæsastofninn hafi minnkað í seinni tíð, að sögn Arnórs. Hann sagði að verið sé að skoða hvort eitthvað sé að aðferðafræðinni eða hvort fækkunin sé raunveruleg. Efla á rannsóknir á grágæsastofninum til að komast að því. Skoða á útbreiðslusvæði grá- gæsa á Bretlandseyjum en tölur um fjölda grágæsa þar hafa verið tals- vert rokkandi. Grunur leikur á að talningaskekkjur geti haft áhrif þar á. „Það getur líka verið að það sé um fækkun að ræða. Mönnum sem lengi hafa fylgst með gæsum finnst til dæmis að grágæsum hafi fækkað á Austurlandi,“ sagði Arnór. En hvað veldur fækkun ef um hana er að ræða? Mikill veiðiþungi á grágæs „Það er spurning. Einn þáttur get- ur verið veiðin. Veiðiþunginn er gríð- arlega mikill. Hér eru veiddar um 40 þúsund grágæsir á ári að meðaltali samkvæmt veiðiskýrslum. Það hafa verið taldar 70-80 þúsund gæsir á vetrarstöðvunum undanfarin ár eftir að við Íslendingar erum búnir að veiða úr stofninum. Bretar veiða svo líklega eitthvað yfir tíu þúsund gæs- ir. Ef þetta er lagt saman þá erum við kannski að skjóta þriðjung úr stofninum á hverju ári. Grágæsin hefur staðið undir þessu álagi með gríðarlega mikilli ungaframleiðslu. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast með því.“ Annað sem getur hafa haft áhrif á viðgang grágæsa er að heiðagæsin hefur verið í mikilli sókn og sótt í auknum mæli niður á láglendið eins og í Skagafirði. Hún gæti hafa ýtt grágæsinni í burt. Það er þó ekki al- gilt. Arnór þekkir t.d. vel til í Svarf- aðardal og Eyjafirði og segir að þar sé mikið af grágæs. Arnór óskar eftir því að veiðimenn hirði annan vænginn af veiddum gæsum og öndum og hafi samband við hann í gegnum netfangið ats- @verkis.is eða í síma 843-4924. Einnig er hann á Facebook. Þá er hægt að senda honum vængi, Arnór Þórir Sigfússon, Verkís, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík. gudni@mbl.is Spurning hvort grágæsum fækkar - Vængir veiddra gæsa gefa upplýsingar um ungahlutfall - Mikilvægt að veiðimenn skili vængjum Ljósmynd/Arnór Þórir Sigfússon Heiðagæs Gulur hringur er um vængþökurnar sem segja til um aldur. Örin bendir á dvergvængsfjöður sem einnig er notuð við greininguna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.