Morgunblaðið - 25.09.2021, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 25.09.2021, Qupperneq 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 Þ rjú íslensk taflfélög taka þátt í Evrópukeppni skák- klúbba sem lýkur nú um helgina í merkri menning- arborg, Struga í Norður-Makedóníu. Meðal keppenda er heimsmeistarinn Magnus Carlsen sem teflir fyrir Offerspill Chess club. Hann mætti til leiks í 3. umferð en virðist hafa dreg- ið sig út úr keppinni eftir stórtap norska klúbbsins í 5. umferð. Skák- félag Selfoss teflir fram langsterk- ustu „íslensku“ sveitinni en í henni eru fjórir rússneskir stórmeistarar, þ. á m. Evrópumeistarinn Anton Demchenko. Sveitinni tókst að vinna öfluga rússneska sveit, KPRF, í 5. umferð sem hafði innanborðs kappa á borð við Alexander Grischuk. En þetta verður að líkindum síðasta verkefni Donchenko, Demchenko, Antipov og Lomatov í bili a.m.k. fyrir skákklúbbinn úr Flóanum því að SSON hefur ákveðið að draga sig út úr keppni efstu deildar Íslandsmóts skákfélaga sem hefst um næstu helgi. Eftir tap fyrir danskri sveit í 6. umferð sat sveitin í 9. sæti af 38 lið- um. Víkingaklúbburinn er að mestu skipaður íslenskum skákmönnum á bilinu 1.800-2.324 elo-stig og hefur náð þokkalegum úrslitum miðað við mannskap en frammistaða Taflfélags Reykjavíkur er mun betri. Eftir stórt tap í 1. umferð vann TR næstu fjórar viðureignir og þar fór fremstur Mar- geir Pétursson sem vann allar skákir sínar. Margeir hefur fyrir löngu þró- að með sér sinn eigin persónulega stíl sem kom vel fram í laglegri vinn- ingsskák í 4. umferð: Evrópumót skákklúbba 2021: Emil Risteski (Gambit Asseko) – Margeir Pétursson (TR ) Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. c3 Margeir fékk Alapin-afbrigðið einnig upp í 1. umferð gegn Markus Ragger. 3. … d5 4. e5 a6 5. h3 Rc6 6. d4 Bg7 7. Be2 f6 8. exf6 Rxf6 9. dxc5 O-O 10. O-O e5 11. Ra3 h6 12. Rc2 Be6 13. Rh2 Kh7 14. Be3 Dd7 15. Bd3 Had8 16. f4 Hvorki betri leikur né verri en aðr- ir kostir. 16. … d4 17. cxd4? Hann gat haldið jafnvægi með 17. fxe5 því að eftir 17. … dxe3 kemur 18. exf6 Bxe6 19. Be4 og hvítur held- ur ákveðnu jafnvægi. Betra er hins vegar 17. … dxc3! og svarta staðan er eilítið betri. 17. … e4! Lykilleikurinn. Riddarinn skrepp- ur til d5 og staða hvíts hrynur. - Sjá stöðumynd 1 - 18. Be2 Rd5 19. Kh1 Rxe3 20. Rxe3 Dxd4 21. Dxd4 Bxd4 22. Rc4 Bxc5 23. b3 Rd4 24. Bg4 Bxc4 25. Hfc1 b5 26. bxc4 b4 27. g3 h5 28. Bd1 e3 29. Kg2 29. … h4! Skapar enn frekari veikingu í stöðu hvíts. 30. Rf3 Rxf3 31. Kxf3 hxg3 32. Be2 g5 33. Kxg3 Hxf4 34. Hd1 34. … Hd2! Úrvinnslan er fumlaus. Svartur býður uppskipti – en á sínum for- sendum! 35. Hxd2 exd2 36. Hd1 Hd4 37. Bg4 Bd6 38. Kf2 Bf4 39. Be2 a5 40. c5 Hd5 41. c6 Hc5 42. Bf3 Kg7 43. Ke2 Kf6 44. Be4 Ke5 45. Bb1 Hxc6 46. Bd3 Hc3 og hvítur gafst upp. Hjörvar Steinn eða Vignir Vatnar Barátta um efsta sætið á Haust- móti Taflfélags Reykjavíkur stendur nú á milli Hjörvars Steins Grétars- sonar og Vignis Vatnars Stefáns- sonar en eftir fimm umferðir af níu í A-flokki mótsins hefur Hjörvar Steinn unnið allar skákir sínar en Vignir Vatnar kemur í humátt á eftir með 4½ vinning. Ljóst er að viður- eign efstu manna í síðustu umferð verður hrein úrslitaskák. Mótinu er skipt tvo flokka en í Opna flokknum eru Arnar Milutin Heiðarsson og Jóhann Ragnarsson efstir með 4½ vinning af fimm mögu- legum. EM taflfélaga er vinsæl keppni Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjórir sigrar í röð Margeir Pétursson við taflið á Íslandsmótinu 2020. Ágæti kjósandi. Til hamingju með daginn! Í dag kjós- um við fulltrúa á Al- þingi næstu fjögur ár. Saman og hvert fyrir sig tökum við ákvarðanir sem munu hafa úr- slitaáhrif á fram- vindu þjóðfélags- mála og stjórnarhætti til framtíðar. Kosið er um ólík dæg- urmál en fyrst af öllu framtíð- armarkmið þjóðarinnar. Miklir hagsmunir eru í húfi. Með einu atkvæði höfum við val um fram- tíð sem velferð okkar allra bygg- ist á. Ungir og kröftugir frambjóðendur Ég fer fyrir lista Sjálfstæð- isflokksins í Norðausturkjör- dæmi og bið um ykkar stuðning. Á framboðslistanum er ólíkt en öflugt fólk samstarfs og sam- stöðu með fjölbreyttan bakgrunn víða að úr kjördæminu. Ungt og kröftugt fólk er komið í fram- varðarsveit ásamt hinum eldri sem búa að mikilli reynslu. Ég leiði stoltur sterkan hóp. Á fundum og ferðum í víð- feðmu kjördæmi síðustu mánuði hef ég fundið sterkan hljóm- grunn sjálfstæðisstefnunnar og meðbyr í Norðausturkjördæmi. Sjálfstæðisstefnan er gott vega- nesti kosningabaráttu. Kjarninn er góður málstaður, bjartsýni og áræðni. Áfram festa og stöðugleiki Sterk staða efnahagslífs og ábyrg stjórn ríkisfjármála hefur gert okkur kleift að takast á við efnahagslegar afleiðingar heims- faraldurs með árangursríkari hætti en flestum. Því fer auðvit- að fjarri, að allt hafi tekist sem skyldi og enn bíða fjölmörg verkefni úrlausnar. Meginatriðið er að lagður hefur verið grundvöllur betri framtíðar og sókn- arfærin eru mörg. Öllu skiptir að þessi árangur glatist ekki. Einvörðungu at- kvæði greidd Sjálf- stæðisflokknum tryggir áfram festu og stöðugleika. Sá styrkur sem kjósendur eru reiðubúnir að veita Sjálfstæð- isflokknum ræður úrslitum. Áfram land tækifæra Sjálfstæðisflokkurinn er flokk- ur kjölfestu íslenskra stjórn- mála, trausts og stöðugleika. Flokkur festu, frjálslyndis og mannúðar sem hefur sýnt skýra forgangsröðun og bjarta sýn um hvernig ná eigi árangri og tryggja íslenskt samfélag áfram í fremstu röð. Við tökum í dag ákvörðun um í hvers konar þjóðfélagi við vilj- um búa. Almenningur veit að trú á einstaklinginn og athafnafrelsi fólks er leið til betri lífskjara. Þar býr trú á tækifæri og bjart- sýni til endurreisnar, uppbygg- ingar og verðmætasköpunar. Með slíkum framfarahug byggj- um við saman sterkari og blóm- legri byggðir. Þannig verður Ís- land áfram land tækifæra. Eftir Njál Trausta Friðbertsson » Almenningur veit að trú á einstaklinginn og athafnafrelsi fólks er leið til betri lífskjara. Njáll Trausti Friðbertsson Höfundur er þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðaustur- kjördæmi. Kjósum Sjálfstæð- isflokkinn í Norð- austurkjördæmi Gestur Pálsson fæddist 25. sept- ember 1852 á Miðhúsum í Reyk- hólasveit, A-Barð. Foreldrar hans voru hjónin Páll Ingimundarson, f. 1814, d. 1894, og Ragnheiður Gestsdóttir, f. 1820, d. 1862. Hann varð stúdent úr Lærða skólanum árið 1875 og nam guð- fræði við Kaupmannahafnarhá- skóla en hvarf frá námi Árið 1882, um það bil sem Kaup- mannahafnardvölinni lauk, gaf hann ásamt þeim Einari H. Kvar- an, Hannesi Hafstein og Bertel Þorleifssyni út tímaritið Verðandi, þar sem þeir birtu eftir sig verk í anda raunsæisstefnunnar en hún var þá að ryðja sér til rúms á Norðurlöndunum. Framlag Gests var smásagan Kærleiksheimilið, ein þekktasta saga hans. Eftir námsdvölina í Kaup- mannahöfn bjó Gestur í nokkur ár í Reykjavík, oft við þröngan kost, og fékkst þá meðal annars við kennslu og skrifstofustörf. Einnig ritstýrði hann blöðum, fyrst Þjóð- ólfi og síðan Suðra, en útgáfu þess blaðs var hætt 1886. Gestur fluttist til Winnipeg árið 1890 þar sem hann tók við ritstjórn Heimskringlu. Ekki varð ritstjóra- ferill hans þó langur þar því hann dó í Winnipeg úr lungnabólgu árið eftir, 19. ágúst 1891. Merkir Íslendingar Gestur Pálsson Í Evrópu eru töluð yfir 200 evrópsk tungumál, auk fjölda tungumála sem eiga uppruna í öðrum heimshlutum. Til að vekja athygli á og fagna þessum fjöl- breytileika hefur Evr- ópski tungumáladag- urinn verið haldinn hátíðlegur þann 26. september frá árinu 2002 að frumkvæði Evrópuráðsins og Evrópusambandsins. Haldið er upp á Evrópska tungu- máladaginn með mismunandi hætti í hverju landi. Árlega hafa Vigdís- arstofnun, STÍL – Samtök tungu- málakennara á Íslandi og Tungu- málamiðstöð Háskóla Íslands tekið höndum saman og fagnað deginum í Veröld – húsi Vigdísar, með við- burðum tileinkuðum störfum tungumálakennara og tungu- málatengdum verkefnum sem skólabörnum er boðið að taka þátt í. Með deginum er vakin athygli al- mennings á mikilvægi fjölbreytts tungumálanáms sem lið í að stuðla að fjöltyngi og fjölmenningarlegum skilningi. Bent er á mikilvægi ævi- langs tungumálanáms jafnt innan sem utan skólakerfisins, hvort sem er af hagnýtum ástæðum eða ein- faldlega til ánægju og skemmtunar. Vigdísarstofnun starfar í nánum tengslum við mála- og menningardeild Há- skóla Íslands. Hún leggur áherslu á fjöl- menningarleg viðhorf og þekkingu á öðrum þjóðum og tungu- málum vegna þess að fjöltyngi felur í sér persónulegan, menn- ingarlegan og efna- hagslegan ávinning. Í tilefni Evrópska tungumáladagsins í ár verður tungumálakennurum boðið í Vigdísarstofnun, þar sem unnið er að uppsetningu tungu- málasýningar sem einkum er ætluð börnum á aldrinum 12-19 ára. Frá og með áramótum verður kenn- urum þessa aldurshóps boðið að heimsækja sýninguna með skóla- hópa til að fræðast um tungumál og þróun þeirra í víðu samhengi. Með sýningunni er meðal annars dregið fram mikilvægi þess að tungumála- og menningarleg fjölbreytni meðal íbúa landsins fái að njóta sín. Sameinuðu þjóðirnar hafa út- nefnt áratuginn 2022-2032 Alþjóð- legan áratug frumbyggjatungu- mála, undir heitinu IDIL 2022-2032. Fulltrúar Vigdísarstofn- unar hafa tekið sæti í stýrihópi og undirbúningsnefnd UNESCO vegna áratugarins fyrir Íslands hönd og vinna nú að stefnumótun í tengslum við þetta alþjóðlega átak. Í byrjun næsta árs mun fara fram kynning á helstu alþjóðlegu stefnu- málum IDIL 2022-2032 en innan stofnunarinnar verður meg- ináhersla lögð á eflingu fámennis-, minnihluta- og frumbyggjatungu- mála og fjöltyngis. Hnattvæðing kallar á þvermenn- ingarlega færni sem tekur mið af fjölbreyttum samskiptum á öllum sviðum mannlífs. Nýjum áskor- unum sem samfélög, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar standa frammi fyrir á alþjóðavettvangi verður ekki mætt nema með hæfni til samskipta þvert á menningar- heima. Hér á landi hefur þekking á erlendum tungumálum auðgað ís- lenska menningu, stuðlað að góðum samskiptum við önnur lönd og ver- ið lykill að framförum á nær öllum sviðum. Eftir Ásdísi Rósu Magnúsdóttur »Með deginum er vak- in athygli almenn- ings á mikilvægi fjöl- breytts tungumálanáms sem lið í að stuðla að fjöltyngi og fjölmenn- ingarlegum skilningi. Ásdís Rósa Magnúsdóttir Höfundur er stjórnarformaður Vigdísarstofnunar. Evrópski tungumáladagurinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.